„Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 8. maí 2026 21:27 Matvælastofnun hefur ákveðið að kæra viðskiptavin vegna ógnandi hegðunar. Forstjórinn segir of algengt að starfsfólk verði fyrir hótunum í málum sem tengjast dýravelferð og að ákveðið hafi verið að leita til lögreglu til að tryggja betur öryggi þess. Dæmi séu um að ráðist hafi verið á starfsfólk með barefli.
Hrönn Ólína Jörundsdóttir forstjóri Matvælastofnunar segir að á síðustu árum hafi þurft að kæra tólf viðskiptavini stofnunarinnar vegna ógnandi hegðunar gagnvart starfsfólki og jafnvel barsmíða og nú sé verið að undirbúa þrettándu kæruna. Stofnunin fer með löggjöf og eftirlit með heilbrigði og velferð dýra og plantna og sinnir matvælaöryggi. „Við höfum líka gripið starfsfólk sem hefur upplifað ógnanir og hótanir og upplifað sig óöruggt, og gætt að öryggiskröfum,“ segir hún og bætir við að stofnunin sé að lækka öryggisþröskuldinn fyrir kærur. Stofnunin fái hundruð ábendinga á hverju ári vegna dýravelferðarmála og í örfáum þeirra bregðist fólk afar illa við afskiptum stofnunarinnar. „Þetta hafa aðallega verið ótal ógnanir, ógnandi hegðun, ærumeiðingar og þar fram eftir götunum,“ segir Hrönn. „Það hafa komið upp tilfelli þar sem það er beinlínis gengið í skrokk á fólki, rifið í það, það barið eða jafnvel notað barefli.“ Hrönn segir að almennt virðist meiri harka ríkja í samskiptum. „Hver ástæðan fyrir því er veit ég ekki en hún er líklega flókin.“ Hún segist hafa orðið vör við sömu tilhneigingu í öðrum stofnunum. „Það virðist sem opinberir starfsmenn séu að verða fyrir ógnunum og hótunum.“
Matvælastofnun Dýraheilbrigði Lögreglumál Mest lesið Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Innlent Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Innlent Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Innlent Hættulegt að lána lyf Innlent Fleiri fréttir Tengja „kuldapollinn“ við Ísland við veikari AMOC Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Sjá meira