Milljónum í reiðufé stolið Birgir Olgeirsson skrifar 7. maí 2026 18:35 Lögregla verst fregna vegna málsins en heimildir fréttastofu herma að upphæðin nemi um 3,3 milljónum króna. Vísir/Bjarni Einarsson Grunur er um að allt að 3,3 milljónum króna hafi verið stolið í innbroti í Spin 108 sportbar á Grensásvegi aðfaranótt sunnudagsins 3. maí.
Samkvæmt heimildum fréttastofu var farið inn í spilakassa á staðnum og fé tekið úr þeim. Kassarnir á barnum eru annars vegar á vegum Gullnámunnar og hins vegar Íslandsspila. Gullnáman er rekin af Happdrætti Háskóla Íslands. Íslandsspil eru í eigu Rauða krossins og Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Samkvæmt heimildum fréttastofu brutust þjófarnir aðeins inn í spilakassa Gullnámunnar. Heimildir fréttastofu herma jafnframt að verknaðurinn beri þess merki að hafa verið skipulagður. Ekki liggur þó fyrir hversu margir komu að innbrotinu né með hvaða hætti var komist inn. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur málið til rannsóknar en vildi ekki tjá sig nánar um það þegar eftir því var leitað. Því er óljóst hvort til séu upptökur úr eftirlitsmyndavélum, hvort einhverjir hafi verið yfirheyrðir eða hvort vitni hafi orðið vör við ferðir þeirra sem stóðu að verknaðinum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fjármunum er stolið úr spilakössum hér á landi. Rúm tvö ár eru síðan þjófar stálu á þriðja tug milljóna króna úr spilakassasalnum Catalinu í Kópavogi. Einn var dæmdur fyrir að útvega þjófunum bíl og hjálpa þeim að koma peningunum undan. Þeir tveir sem stálu peningunum eru ekki fundir og sömuleiðis ekki peningarnir. Uppfært klukkan 18:43: Ranglega var sagt frá því að SÁÁ væri einn af eigendum Íslandsspila. Það er ekki rétt því SÁÁ hætti þátttöku í rekstri spilakassa árið 2020.
Lögreglumál Fjárhættuspil Reykjavík Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Þúsundir hælisleitenda synt til Ceuta á nokkrum klukkustundum Erlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bein útsending: Bandero kominn til Sundahafnar Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Bandero nálgast land Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Sjá meira