Bréf ríkisendurskoðanda á borði forsætisnefndar Jakob Bjarnar skrifar 7. maí 2026 14:26 Guðmundur Björgvin telur að verklagsreglur sem forsætisnefnd samþykkti 15. desember á síðasta ári og snúa að honum einum, standist enga skoðun. vísir/anton brink/vilhelm Hildur Sverrisdóttir, sem á sæti í forsætisnefnd, vill ekkert tjá sig um bréf sem Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi sendi þingheimi öllum. Bréfið er kyrfilega merkt trúnaðarmál en þjóð veit þá þrír vita.
Í bréfinu koma fram alvarlegar ávirðingar á hendur Þórunni Sveinbjarnardóttur forseta Alþingis og nefndinni allri. Guðmundur Björgvin íhugar að leita réttar síns gagnvart dómsstólum en hann telur meðal annars brotið á meiðyrðalöggjöfinni við málsmeðferð. „Ég get staðfest að málið sé á borði forsætisnefndar en er þar enn óklárað,“ segir Hildur í samtali við Vísi. Hún vill að öðru leyti ekki tjá sig neitt um það efnislega. Hún vildi vísa öllum fyrirspurnum til forsetans en enn hefur ekki tekist að ná í Þórunni forseta Alþingis vegna málsins en líklegt verður að teljast að það muni draga dilk á eftir sér. Alvarleg staða upp komin milli ríkisendurskoðanda og forsætisnefndar Guðmundur Björgvin ritar bréfið 1. maí á þessu ári og óskar eftir því að Alþingi þrói og samþykki nauðsynlegar lagabreytingar og/eða verkferla sem taki til meðferðar tilkynningar sem snúa að öllum æðstu stjórnendum Alþingis og eftirlitsstofnana þess, þar með talið forseta Alþingis og skrifstofustjóra, umboðsmanni Alþingis og ríkisendurskoðanda. Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis á nú undir högg að sækja eftir að Guðmundur Björgvin sneri vörn í sókn.vísir/anton brink Með EKKO er átt við einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi. Að slíkir verkferlar eigi ekki bara við um hann einan en 15. desember samþykkti forsætisnefnd verklagsreglur sem ná til meðferðar á einelti og áreitni af hálfu hans. Þetta telur Guðmundur Björgvin ekki standast neina skoðun. „Í tengslum við mál sem forsætisnefnd hefur haft til meðferðar síðustu mánuði er nú komin upp mjög alvarleg staða milli forsætisnefndar og ríkisendurskoðanda, sem einmitt varðar grundvallaratriði eins og traust, trúnað, hlutlausa málsmeðferð og vandaða stjórnsýslu.“ Íhugar að leita til dómsstóla vegna brota á meiðyrðalöggjöfinni Guðmundur telur augljóst að forsætisnefnd hefði aldrei átt að taka að sér mál af þessu tagi og telur það verkefni sem forsætisnefnd tók að sér sé nú því sem næst ónýtt í höndum nefndarinnar. Hann hafnar því að hafa sýnt af sér EKKO-háttsemi en bæði málsmeðferð og efnistök nefndarinnar fela að hans mati í sér margföld brot gagnvart ríkisendurskoðanda; „jafnt af hálfu þjónustuaðilans, sem og forseta Alþingis, skrifstofustjóra og forsætisnefndar. Skoðar ríkisendurskoðandi nú m.a. að leita réttar síns fyrir dómstólum vegna þessara brota á stjórnsýslulögum og meiðyrðalöggjöfinni. Enn fremur hyggst ríkisendurskoðandi senda kvörtun til siðanefndar sálfræðingafélagsins vegna málsmeðferðar umrædds þjónustuaðila,“ segir í bréfinu sem Vísir hefur undir höndum. Guðmundur Björgvin segir jafnframt að hann sé sjálfstæður og engum háður og þegar staða sem þessi komi upp sé óhjákvæmilegt annað en að hann veki athygli þingheims á henni. Hann segir mál af þessu tagi viðkvæm, bæði hvað varðar meinta gerendur og þolendur en að hans mati hafi hagsmunir hans verið fyrir borð bornir í málsmeðferð á vegum forsætisnefndar. Trúnaðurinn virkar sem þrúgandi yfirhylming „En ríkisendurskoðandi vill upplýsa alþingismenn um að trúnaður við þær aðstæður sem ríkisendurskoðanda hafa verið skapaðar er ekki verndandi heldur virkar trúnaðurinn sem þrúgandi yfirhylming. Fyrir sitt leyti hefur ríkisendurskoðandi ekkert að fela en að sjálfsögðu verður að virða rétt annarra sem að málum þessum koma.“ Í bréfinu segir að forsætisnefnd sé í eðli sínu pólitískur vettvangur og ekki viðurkenndur þjónustuaðili á sviði vinnuverndar. Þar er engin sérþekking á málum sem þessum til staðar. Guðmundur Björgvin Helgason Ríkisendurskoðandi „Ríkisendurskoðun mun á þessu ári og næsta undirgangast svokallaða jafningjaúttekt, sem felst í gæðaeftirliti erlendra systurstofnana skv. alþjóðlegum stöðlum. Ástæða kann að vera fyrir alþingismenn að velta því fyrir sér hvernig gæðaeftirliti með skrifstofu Alþingis sé háttað.“ Orðsporsáhætta fyrir Alþingi og stjórnsýsluna alla Guðmundur Björgvin segir þá leið sem forsætisnefnd kaus að fara framkalla verulega orðsporsáhættu fyrir Alþingi og stjórnsýslu þess. „Sköpuð hefur verið að líkindum fordæmalaus staða í samskiptum forsætisnefndar og ríkisendurskoðanda. Hvetur ríkisendurskoðandi til þess að sanngirni, heiðarleiki og góðir starfshættir verði hafðir að leiðarljósi við úrlausn þessara mála.“ Að endingu segir Guðmundur Björgvin að þegar nauðsynlegur verkferill liggi fyrir muni hann sem ríkisendurskoðandi leggja fram ítarlega og rökstudda greinargerð um þá háttsemi sem um ræðir. Finna má vísbendingar um hana í umsögn ríkisendurskoðanda, sem forseti Alþingis og skrifstofustjóri hafa nú undir höndum.“ Undir bréfið ritar Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi og hann ítrekar ósk um að alþingismenn fari með þetta mál sem trúnaðarmál.
Alþingi Ríkisendurskoðun Stjórnsýsla Tengdar fréttir Sviðsstjóri lögsækir Ríkisendurskoðun Sviðsstjóri hjá Ríkisendurskoðun hefur höfðað mál á hendur embættinu vegna ákvörðunar ríkisendurskoðanda um að færa hann til í starfi. Málið er höfðað hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. 19. nóvember 2025 21:09 Mál ríkisendurskoðanda á borði forsætisnefndar Forsætisnefnd Alþingis hefur borist formlegt erindi um mannauðsmál Ríkisendurskoðunar. Bryndís Haraldsdóttir, 1. varaforseti þingsins, staðfestir í samtali við fréttastofu að málið og gögnin séu komin til nefndarinnar. Málið sé nú á borði forseta þingsins. 19. nóvember 2025 18:05 Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Fleiri fréttir Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ Sjá meira
Sviðsstjóri lögsækir Ríkisendurskoðun Sviðsstjóri hjá Ríkisendurskoðun hefur höfðað mál á hendur embættinu vegna ákvörðunar ríkisendurskoðanda um að færa hann til í starfi. Málið er höfðað hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. 19. nóvember 2025 21:09
Mál ríkisendurskoðanda á borði forsætisnefndar Forsætisnefnd Alþingis hefur borist formlegt erindi um mannauðsmál Ríkisendurskoðunar. Bryndís Haraldsdóttir, 1. varaforseti þingsins, staðfestir í samtali við fréttastofu að málið og gögnin séu komin til nefndarinnar. Málið sé nú á borði forseta þingsins. 19. nóvember 2025 18:05