Súperdósin snýr aftur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. maí 2026 15:36 Súperdósin er mætt aftur. Coca-Cola á Íslandi mun á næstu dögum hefja sölu á hinni vinsælu 500ml Coca-Cola dós, betur þekktri sem súperdósin. Í tilkynningu segir að endurkoma vörunnar komi í kjölfar mikils ákalls frá neytendum og viðskiptavinum undanfarin ár og nú sé komið til móts við þær óskir.
Nýja súperdósin kemur í sérstökum HM umbúðum í tengslum við heimsmeistaramótið í knattspyrnu og verður fáanleg bæði sem Coca-Cola Original Taste og Coca-Cola Zero Sugar. Fyrsta 500ml Coca-Cola dósin kom á markað hér á landi í kringum árið 1990 og varð fljótt ein vinsælasta umbúðastærð landsins. Vakti sérstaka athygli að til að byrja með var súperdósin ódýrari en 330ml dósin sem áfram var seld samhliða. Súperdósin skipaði sér sérstakan sess í íslenskri gosmenningu og tengja margir hana við samverustundir, ferðalög, íþróttaviðburði og nostalgíu frá liðnum árum. „Það er með mikilli gleði sem við kynnum súperdósina á ný fyrir íslenskum neytendum. Súperdósin á sérstakan stað í hugum margra landsmanna og við höfum ítrekað fengið fyrirspurnir og beiðnir um að fá hana aftur í hillur verslana. Nú er loksins komið að því,“ segir Atli Sigurður Kristjánsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Coca-Cola á Íslandi í tilkynningu. Endurkoma súperdósarinnar er jafnframt sögð liður í áframhaldandi þróun á vöruframboði Coca-Cola á Íslandi þar sem lögð er áhersla á fjölbreyttari valkosti fyrir neytendur. „Undanfarið hafa viðtökur á hinu koffínlausa Coca-Cola Zero Zero farið fram úr björtustu vonum en varan seldist upp á mettíma eftir að hún kom á markað í nýju útliti. Mikill áhugi neytenda á sykurlausum og koffínlausum valkostum undirstrikar sterka stöðu Zero-fjölskyldu Coca-Cola og breyttra neysluvenja íslenskra neytenda.“ Varan mun fara í dreifingu á næstu dögum og verður fáanleg hjá verslunum og samstarfsaðilum um land allt. Súperdósin verður ekki sú eina í 500mL stærð en Pepsi Max hefur verið selt í þeirri stærð hér á landi undanfarin ár.
Gosdrykkir Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira