Lífið

Innipúkar geti farið á „tryllt djamm“ í Austur­bæjar­bíói í annað sinn

Lovísa Arnardóttir skrifar
Innipúkinn er í Reykjavík að vanda um verslunarmannahelgi.
Innipúkinn er í Reykjavík að vanda um verslunarmannahelgi. Aðsend

FM Belfast, Emmsjé Gauti, Retro Stefson, Gugusar, Kusk & Óviti og Amor Vincit Omnia eru meðal listamanna sem koma fram á Innipúkanum sem verður í annað sinn haldin í Austurbæjarbíó um verslunarmannahelgina. Hátíðin er eins og áður þrír dagar.

„Það er okkur mikil ánægja að snúa aftur í Austurbæjarbíó, sem hefur á undanförnum mánuðum tekið stakkaskiptum og fest sig í sessi sem ný miðstöð menningar og tónlistar í hjarta Reykjavíkur. Að halda Innipúkann í annað sinn í þessu endurbætta og glæsilega húsi gefur hátíðinni nýja vídd og leyfir Innipúkum landsins að fara á tryllt djamm um verslunarmannahelgina án þess að hafa áhyggjur af veðri eða vindum,“ segir Eldar Ástþórsson, elsti púki og einn skipuleggjenda.

Á myndinni eru þeir Ásgeir, Steinþór Helgi og Eldar. Aðsend

Í tilkynningu segir að hátíðin hafi lengi verið griðastaður þeirra sem kjósa malbik fremur en útileguna um verslunarmannahelgina.

„Í ár ætlum við okkur enn stærri hluti og dagskráin endurspeglar fjölbreytni og kraft sem einkennir íslenska tónlistarsenu í dag. Partíbönd, danstónlist, rokk og ról mæta öll spennt, hress, þurr og pínu full,“ segir Eldar.

„Það er gríðarleg ánægja innan herbúða Innipúkans með þessa fyrstu tilkynningu ársins. Við teflum fram risastórum nöfnum sem hafa lengi tryggt besta partý bæjarins, í bland við fersk og framúrskarandi nöfn úr íslensku grasrótinni. Þetta er aðeins byrjunin og við hlökkum mikið til að kynna enn fleiri listamenn á næstunni,“ segir Ásgeir Guðmundsson, frekjupúki og skipuleggjandi.

Í tilkynningu kemur fram að fjölbreyttir viðburðir muni fara fram í kringum hátíðina sem verði tilkynntir síðar auk fleiri listamanna. Miðasalan er hafin á moment.is.


Tengdar fréttir

Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf

Tónlistarmenn og gestir á Innipúkanum eru að sögn viðburðarhaldara hæstánægðir við aðstöðuna í Austurbæjarbíó sem er að mörgu leyti aftur farin að gegna sínu gamla hlutverki sem tónleika- og menningarhús. 

Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum

Innipúkinn fer venju samkvæmt fram í Reykjavík um verslunarmannahelgina. Einvala lið tónlistarmanna kemur fram á hátíðinni, meðal annars Ragga Gísla og Hipsumhaps, Sigga Beinteins og Babies flokkurinn, Ásdís, Birnir, Bríet, Floni og Mugison. 

Ragga Gísla og Hips­um­haps á Innipúkanum sem færir sig um set

Ragga Gísla og Hipsumhapps snúa bökum saman og koma fram í sameiningu í fyrsta sinn á tónlistarhátíðinni Innipúkanum í Reykjavík um verslunarmannahelgina, 1. til 3. ágúst. Hátíðin flytur sig nú um set og verður haldinn í Austurbæjarbíó í stað Ingólfsstrætis þar sem hátíðin hefur verið haldin síðustu ár.

Innipúkinn farinn að taka á sig mynd

Páll Óskar og Skrattar snúa bökum saman og koma í fram á tónlistarhátíðinni Innipúkanum um verslunarmannahelgina. Meðal annara listamanna sem eru tilkynnt til leiks í fyrstu dagskrártilkynningu hátíðarinnar eru Bjartar sveiflur, Ex.Girls, Hatari, Hipsumhaps, Inspector Spacetime, Lúpína, Una Torfa og Vök.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.