Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Birgir Olgeirsson skrifar 4. maí 2026 19:02 Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, og Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, gætu myndað sterkan meirihluta í borgarstjórn miðað við kannanir. Talsverður ágreiningur er þó um málefnin. Vilhelm Eini tveggja flokka meirihlutinn sem nú blasir við í Reykjavík er meirihluti Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Hvorugt framboðið vill setja slíkt samstarf fremst á blað, en hvorugt lokar heldur dyrunum alveg. Svör oddvitanna sýna þó að bilið á milli flokkanna er talsvertog snýst ekki síst um leikskóla, samgöngur, húsnæði og sjálfa stefnu borgarinnar.
Í nýjustu kosningaspá Vísis, sem hefur verið uppfærð með nýrri Gallup-könnun, er Sjálfstæðisflokkurinn líklegastur til að fá sjö borgarfulltrúa og Samfylkingin sex. Spáin sýnir jafnframt að eini mögulegi tveggja flokka meirihlutinn, eins og staðan er nú, væri með þessum tveimur flokkum. Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Miðflokkur gætu einnig myndað meirihluta, en sá þriggja flokka meirihluti mælist með 64 prósent líkur. Gallup teiknar upp enn sterkari stöðu fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þar mælist flokkurinn með 30,1 prósent fylgi og níu borgarfulltrúa, en Samfylkingin með 22,4 prósent og sex fulltrúa. Vinstrið mælist þriðji stærsti flokkurinn með þrjá fulltrúa, en Miðflokkurinn og Viðreisn fengju tvo hvor samkvæmt könnuninni. Þessi staða er ástæða þess að spurningin um samstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar er farin að sækja á. En af svörum oddvitanna að dæma yrði slíkur meirihluti pólitískt flókinn, jafnvel þótt hann væri tölfræðilega einfaldur. Segir Samfylkinguna ekki fyrsta kost Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, segir flokkinn skynja skýran meðbyr og telur kjósendur kalla eftir breytingum á stjórn borgarinnar. Hún segir flokkinn ganga óbundinn til kosninga en leggur jafnframt áherslu á að fyrsti kostur sé að mynda meirihluta með flokkum sem vilji breyttar áherslur og horfi í sömu átt í málefnum borgarinnar. Hún segir samstarf við Samfylkinguna því ekki vera það sem flokkurinn horfi fyrst til. „Við göngum auðvitað óbundin til kosninga en Samfylking er sá flokkur sem hefur stýrt borginni nánast án hlés í þrjátíu ár og auðvitað væri gott að senda þau í frí þannig að það væri aldrei fyrsti kostur hjá okkur.“ Hildur stillir kosningunum upp sem uppgjöri við núverandi stjórnarhætti í borginni og segir kjarnann liggja í því að Sjálfstæðisflokkurinn verði nógu sterkur til að breytingar verði raunverulega mögulegar eftir kjördag. Að hennar mati eru það einkum samgöngumál, leikskólamál og fjármál borgarinnar sem hafi orðið verst úti. Hún segir flokkinn ekki munu gefa afslátt af þeim málum og lýsir stöðunni sem afleiðingu af þröngri og hugmyndafræðilegri stjórnun. „Þessi mál eru öll hér á öngstræti vegna þess að það hefur verið stjórnlyndi og þröngsýni og svona hugmyndafræðileg stefna í gangi í borginni sem hefur komið þessum málum bara í algjöran hnút. Við viljum bara keyra þessi mál áfram af skynsemi, bjóða fjölbreyttar lausnir og vinna með fólkinu í borginni, ekki gegn því.“ Þótt hún hafni því að útiloka nokkurn fyrir fram er tónninn því skýr: samstarf við Samfylkinguna væri ekki eðlilegi fyrsti valkostur Sjálfstæðisflokksins, ekki síst vegna þess að flokkurinn sækir nú fylgi sitt á loforði um stefnubreytingu. Segir enga málefnalega forsendu vera núna Pétur Marteinsson, oddvitaefni Samfylkingarinnar, svarar sömu spurningu með öðrum áherslum. Hann segist geta unnið með öllum flokkum, en leggur jafnframt ríka áherslu á að það séu málefnin en ekki stærðfræðin sem ráði því hvaða meirihluti geti orðið að veruleika. „Ég bara ítreka það að það eru málefnin sem stjórna og við sjáum ekki málefnalegan grunn í augnablikinu. Við viljum leiða breytingar á grunni jafnaðarmennsku.“ Pétur segir Samfylkinguna vilja leiða breytingar í borginni, en með allt öðrum formerkjum en Sjálfstæðisflokkurinn. Þar skipti mestu að borgin standi vörð um velferðarhlutverk sitt, sérstaklega gagnvart fólki sem standi höllum fæti, og haldi áfram uppbyggingu húsnæðis fyrir ólíka tekjuhópa. Hann dregur upp skýra mynd af því hvar hann telur ágreininginn liggja. Þar nefnir hann rekstur leikskóla, óhagnaðardrifið húsnæði og samgöngusáttmálann sem lykilmál þar sem flokkarnir standi sitt hvoru megin við djúpa pólitíska gjá. „Við getum náttúrulega unnið með öllum en það er alveg gjá á milli þessara flokka. Við viljum standa vörð um eignirnar okkar. Við viljum sjá um leikskólann en ekki láta stórfyrirtæki sjá um leikskólann okkar. Við viljum passa upp á húsnæði fyrir alla en ekki hætta við óhagnaðardrifnu húsnæði. Og ekki síst samgöngusáttmálinn, það er fullkomlega óábyrgt að ætla að henda honum í ruslatunnuna núna.“ Pétur nefnir líka að hann sjái sérstaka hættu í því ef Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur næðu saman að myndun meirihluta. Að hans mati myndi slíkt þýða skarpa hægrisveiflu í stjórn borgarinnar sem Samfylkingin gæti ekki stutt.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Borgarstjórn Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Innlent Fleiri fréttir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Sjá meira