Lögðu Arsenal og fara í úrslit Meistaradeildarinnar Valur Páll Eiríksson skrifar 2. maí 2026 15:03 Jule Brand skaut Lyon í úrslit Meistaradeildarinnar. Pauline Figuet/Getty Images Lyon tryggði í dag sæti sitt í úrslitaleik Meistaradeildar kvenna í fótbolta með 3-1 sigri á Arsenal í Frakklandi. Liðið mætir annað hvort Barcelona eða Bayern Munchen í úrslitum.
Arsenal hafði unnið fyrri leikinn við Lyon 2-1 í Lundúnum og var því með forystuna fyrir leik dagsins í Lyon. Miðvörðurinn stæðilegi Wendie Renard kom Lyon yfir um miðjan fyrri hálfleik af vítapunktinum og korteri síðar, á 36. mínútu, var önnur frönsk landsliðskona, Kadidiatou Diani á ferðinni og tvöfaldaði forystuna. Staðan í hálfleik 2-0 og 3-2 samanlagt í einvíginu, Lyon í vil. Enska landsliðskonan Alessia Russo minnkaði muninn fyrir Arsenal korteri fyrir leikslok og jafnaði einvígið. Það stefndi í framlengingu allt þar til hin þýska Jule Brand skoraði það sem reyndist sigurmark einvígisins á 87. mínútu. Lyon vann 3-1, einvígið 4-3, og er því komið í úrslit Meistaradeildarinnar. Á morgun kemur í ljós hvort ríkjandi Evrópumeistarar Barcelona eða Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í Bayern Munchen mætir Lyon í úrslitum. Staðan er 1-1 eftir fyrri leik liðanna í Þýskalandi en þau eigast við á Nývangi á morgun. Lyon er sigursælasta lið í sögu Meistaradeildarinnar og hefur unnið keppnina átta sinnum, síðast 2022.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Franski boltinn Enski boltinn Arsenal FC Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjá meira