Körfubolti

Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið

Sindri Sverrisson skrifar
Regína Sigurgeirsdóttir lætur sig helst ekki vanta þegar Tindastóll spilar í úrslitakeppninni. Hún ræddi við Andra Má Eggertsson fyrir leik í gær.
Regína Sigurgeirsdóttir lætur sig helst ekki vanta þegar Tindastóll spilar í úrslitakeppninni. Hún ræddi við Andra Má Eggertsson fyrir leik í gær. Sýn Sport

Það er vandfundin betri stemning á Íslandi en í Síkinu á Sauðárkóki í úrslitakeppninni í körfubolta. Á meðal fastagesta eru tvær vinkonur, gallharðir stuðningsmenn Tindastóls, sem ferðast að sunnan og heiðra minningu eiginmanns annarrar þeirra með því að mæta á leikina.

Andri Már Eggertsson ræddi við vinkonurnar, þær Regínu Sigurgeirsdóttur og Önnu Maríu Elíasdóttur, fyrir sigur Tindastóls gegn Stjörnunni í gærkvöld. Sigur sem hélt Tindastóli inni í úrslitakeppninni en Stjarnan er þó enn yfir, 2-1, í undanúrslitaeinvígi liðanna.

Klippa: Andri ræddi við gallharða stuðningsmenn

„Þetta er bara svo skemmtilegt. Við getum ekki látið okkur vanta,“ sagði Regína og ljóst að gleðin var við völd hjá þeim Önnu Maríu sem tóku virkan þátt í kúrekaþema stuðningsmanna Tindastóls og báru glæsilega, bleika kúrekahatta.

Þó að gaman sé að mæta á leikina þá gera vinkonurnar það einnig af annarri ástæðu. Jón Hreinsson, eiginmaður Regínu, var nefnilega mikill stuðningsmaður Tindastóls en hann lést árið 2022 og vill Regína heiðra minningu mannsins síns með því að mæta á leiki:

„Maðurinn minn heitinn er frá Króknum og Tindastóll komst í úrslitakeppnina árið sem hann lést. Þannig að við ætluðum aldeilis að leiða liðið okkar til sigurs, sem gekk hins vegar ekki, og þar af leiðandi urðum við að fara ár eftir ár, og þetta er bara orðið að fíkn,“ sagði Regína en Tindastóll varð svo Íslandsmeistari í fyrsta sinn í sögunni ári síðar, eða 2023.

Þær Regína og Anna María vilja helst ekki missa af leik og ferðalagið norður er ekki síður skemmtilegt:

„Það er alltaf besta stemningin. Okkur líður ógeðslega vel og erum rosalega spenntar að fara í þessar ferðir,“ sagði Anna María.

„Það er brjáluð stemning hérna. Þetta er aðalstaðurinn,“ sagði Regína.

Til þess að vinkonurnar geti mætt aftur á leik á Sauðárkróki á þessari leiktíð þarf Tindastóll núna að vinna Stjörnuna í Garðabæ á sunnudag. Takist það bíður liðanna oddaleikur í Síkinu næsta miðvikudagskvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×