Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Kristján Már Unnarsson skrifar 28. apríl 2026 18:48 Magnús Sigurðsson er framkvæmdastjóri flugrekstrar Air Atlanta Lýður Valberg Hið árlega pílagrímaflug Air Atlanta er komið á fulla ferð, þrátt fyrir að vera nærri áhrifasvæði stríðsátakanna í Miðausturlöndum. Milli fimm- og sexhundruð starfsmenn félagsins koma að verkefninu að þessu sinni.
Í kvöldfréttum Sýnar mátti sjá myndir frá Jedda í Sádi-Arabíu en hjá flugfélaginu Atlanta hófst pílagrímaflugið þann 16. apríl. Í höfuðstöðvunum í Kópavogi segja menn átökin ekki hafa haft nein áhrif á verkefnið til þessa. „Að svo stöddu, nei. Það hefur ekki haft nein áhrif. En auðvitað fylgjumst við með ástandinu frá degi til dags. En þetta er mjög mikilvægt fyrir Sádía og fyrir þjóðina, Sádi-Arabíu, að pílagrímaflugið haldi dampi. Og það hefur gert það,“ segir Magnús Sigurðsson, framkvæmdastjóri flugrekstrar Air Atlanta. Við inngöngudyrnar sjá farþegar að flugvélarnar eru reknar af Air Atlanta.kmu Flugvélar Air Atlanta eru merktar Sádía-flugfélaginu. En þegar farþegar ganga um borð sést að þær eru reknar af Air Atlanta. „Við erum með fjórar vélar í fullum rekstri, 777 vélar frá Boeing, sem taka meira en 400 farþega í hverju flugi,“ segir Magnús. Pílagrímar frá Indónesíu á leið um borð í flugvél Air Atlanta.Egill Aðalsteinsson Flugvélar Atlanta flytja múslima til og frá Sádi-Arabíu um langan veg en verkefnið stendur fram til 1. júlí. „Við fljúgum mestmegnis á Indónesíu, sem er um það bil tíu tíma flug. Svo höfum við líka flogið til Taílands og Bangladess í þessu pílagrímaflugi,“ segir Magnús í sjónvarpsfréttinni, sem sjá má hér: Pílagrímaflugið varð fljótlega eftir stofnun Atlanta fyrir fjörutíu árum einn af lykilþáttum í rekstri félagsins. Og svo er enn. „Það eru færri vélar heldur en voru hérna á árum áður. En engu að síður þá er þetta alltaf stór þáttur, mjög stór þáttur í okkar rekstri og mjög mikilvægt.“ Ein af Boeing 777-farþegaþotum Air Atlanta á flugvellinum í Jedda. Flugvélarnar eru merktar Saudia-flugfélaginu, kaupanda þjónustunnar.Egill Aðalsteinsson Og pílagrímaflugið kallar á mikinn starfsmannafjölda. „Þetta eru á milli fimm og sex hundruð manns í það heila. Fyrir utan þá sem eru náttúrulega að vinna hérna í höfuðstöðvunum,“ segir Magnús. Þáttur Flugþjóðarinnar um sögu pílagrímaflugs Íslendinga er sýndur í opinni dagskrá á Sýn klukkan 19:15.
Air Atlanta Flugþjóðin Fréttir af flugi Sádi-Arabía Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Tengdar fréttir „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ Hartnær sexhundruð manns, þar af um eitthundrað og fimmtíu Íslendingar, eru að störfum fyrir Atlanta-flugfélagið á áhrifasvæði stríðsátakanna í Miðausturlöndum. Forstjóri Air Atlanta segir félagið fara að öllu með gát og allt sé gert til að tryggja öryggi starfsfólksins. 11. mars 2026 21:12 Flugfólkið hjá Atlanta flakkar um allan heim „Íslendingar vita kannski ekki mikið um Atlanta. Þeir eru svo ósýnilegir í íslensku viðskiptalífi. Þar er bara yfirbyggingin og skrifstofan. En öll starfsemin er náttúrlega annarsstaðar.“ 29. mars 2026 07:47 Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Þegar Air Atlanta tók að sér viðamikið pílagrímaflug fyrir Saudia-flugfélagið árið 1993 lét Þóra Guðmundsdóttir, annar stofnanda félagsins, hanna og sauma sérstaka flugfreyjabúninga. Í þættinum Flugþjóðin lýsa fyrrverandi og núverandi starfsmenn íslenskra flugfélaga því hvernig var að starfa undir vökulum augum trúarlögreglu í Sádí-Arabíu. 8. febrúar 2026 08:00 Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Starfsmenn íslenskra flugfélaga, sem sinntu pílagrímaflugi í Sádí-Arabíu á árum áður, urðu sumir fyrir þeirri óhugnanlegu lífsreynslu að verða vitni að opinberri aftöku. Þetta kemur fram í þætti Sýnar um pílagrímaflugið í nýrri þáttaröð um Flugþjóðina. 4. febrúar 2026 22:40 Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Pílagrímaflug Air Atlanta stendur nú sem hæst en flugfélagið er með sexhundruð manns að störfum í Sádí-Arabíu um þessar mundir við að flytja múslima sem þrá að sjá hina helgu borg Mekka. Verkefnin fyrir Saudia-flugfélagið eru þó mun víðtækari en þau eru kjölfestan í rekstri Atlanta. 11. júlí 2024 21:42 Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Sjá meira
„Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ Hartnær sexhundruð manns, þar af um eitthundrað og fimmtíu Íslendingar, eru að störfum fyrir Atlanta-flugfélagið á áhrifasvæði stríðsátakanna í Miðausturlöndum. Forstjóri Air Atlanta segir félagið fara að öllu með gát og allt sé gert til að tryggja öryggi starfsfólksins. 11. mars 2026 21:12
Flugfólkið hjá Atlanta flakkar um allan heim „Íslendingar vita kannski ekki mikið um Atlanta. Þeir eru svo ósýnilegir í íslensku viðskiptalífi. Þar er bara yfirbyggingin og skrifstofan. En öll starfsemin er náttúrlega annarsstaðar.“ 29. mars 2026 07:47
Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Þegar Air Atlanta tók að sér viðamikið pílagrímaflug fyrir Saudia-flugfélagið árið 1993 lét Þóra Guðmundsdóttir, annar stofnanda félagsins, hanna og sauma sérstaka flugfreyjabúninga. Í þættinum Flugþjóðin lýsa fyrrverandi og núverandi starfsmenn íslenskra flugfélaga því hvernig var að starfa undir vökulum augum trúarlögreglu í Sádí-Arabíu. 8. febrúar 2026 08:00
Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Starfsmenn íslenskra flugfélaga, sem sinntu pílagrímaflugi í Sádí-Arabíu á árum áður, urðu sumir fyrir þeirri óhugnanlegu lífsreynslu að verða vitni að opinberri aftöku. Þetta kemur fram í þætti Sýnar um pílagrímaflugið í nýrri þáttaröð um Flugþjóðina. 4. febrúar 2026 22:40
Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Pílagrímaflug Air Atlanta stendur nú sem hæst en flugfélagið er með sexhundruð manns að störfum í Sádí-Arabíu um þessar mundir við að flytja múslima sem þrá að sjá hina helgu borg Mekka. Verkefnin fyrir Saudia-flugfélagið eru þó mun víðtækari en þau eru kjölfestan í rekstri Atlanta. 11. júlí 2024 21:42