Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 25. apríl 2026 13:35 Silja Sóley Birgisdóttir oddviti Sósíalistaflokksins, Guðmundur Ingi Þóroddsson oddviti Flokks fólksins og Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar er ýmist spáð sæti eða ekki í borgarstjórn í kosningaspá Vísis. Oddvitar í borgarstjórnarkosningum sem tæplega munu ná inn í borgarstjórn samkvæmt nýuppfærðri kosningaspá Vísis eru hvergi bangnir og segja enn langan tíma til kosninga. Oddvita Sósíalistaflokksins er spáð sæti í borgarstjórn, eins og staðan er núna.
Kosningaspá Vísis var uppfærð í dag með niðurstöðum úr nýjustu könnun Maskínu sem birtist í gær . Þar kemur meðal annars fram að sjöundi maður Sjálfstæðisflokksins eigi nú meiri líkur á að ná inn í borgarstjórn en sjötti maður Samfylkingar. Silja Sóley sátt Þannig er helsta breytingin í uppfærðri spá sú að Silja Sóley Birgisdóttir oddviti Sósíalistaflokksins á nú í fyrsta skipti yfir helmingslíkur á að komast inn í borgarstjórn, en líkurnar eru nú 62 prósent en voru 25 prósent í byrjun vikunnar. Silja Sóley er sátt með þessi tíðindi. „Mér finnst þetta bara mjög ánægjulegt og gaman að sjá að fylgið er að rísa, að við séum byrjuð að vekja smá athygli og að málefni okkar eru að fá hljómgrunn í samfélaginu.“ Guðmundur og Einar brattir Á meðan hafa líkurnar á því að Guðmundur Ingi Þóroddsson oddviti Flokks fólksins komist inn minnkað síðan í upphafi viku en þá voru þær 57 prósent en eru nú einungis 42 prósent. Guðmundur segir enn langt til kosninga. „Við erum bara mjög brött, full af orku og við eigum eftir að vinna á, enda hefur það reyndar alltaf verið þannig hjá Flokki fólksins að það skilar meira úr kössunum heldur en kannanir hafa sýnt, þannig ég held svona að þegar fer að líða á þá bara eigum við eftir að þjóta upp.“ Þá er Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar í svipuðum málum en líkur á að hann komist inn hafa minnkað frá því í upphafi viku, eru nú 59 prósent en voru 67 prósent. „Kannanir eru nú bara kannanir og það er stundum sagt að vika sé langur tími í pólitík og nú eru þrjár langar vikur framundan fram að kjördegi og ég er sannfærður um það að við í Framsókn eigum miklu meira inni, samtöl mín við borgarbúa núna á undanförnum dögum og vikum sýna það og ég hef bara fulla trú á verkefninu enda er alveg klárt að meirihlutinn fellur ekki nema að Framsókn nái betri árangri.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Kosningaspá Vísis Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira