„Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 24. apríl 2026 19:56 Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði. Ívar Fannar Viðreisn er í algjörri lykilstöðu hvað meirihlutamyndun í borgarstjórn Reykjavíkur varðar. Sjálfstæðisflokkurinn eykur forskot sitt á Samfylkinguna en áfram er mjótt á munum.
Þetta segir Ólafur Þ. Harðarson prófessor emerítus í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands eftir að hafa séð nýja könnun Maskínu sem gefin var út í kvöld. Sjálfstæðisflokkurinn mælist þar með ríflega 25 prósenta fylgi og Samfylkingin með 21 prósent. Bilið á milli turnanna tveggja breikkar því frá síðustu könnun um fjögur prósentustig. Á eftir turnunum tveimur koma þrír flokkar með um tíu prósenta fylgi. Þeir eru Miðflokkurinn, Vinstrið og Viðreisn. Viðreisn er þeirra stærstur með 11,7 prósent en hefur dalað lítillega á milli mánaða. Vinstri og hægri flokkum jafnt skipt Ljóst er af þessu að fá atkvæði geta miklu ráðið þegar kemur að myndun meirihluta í borginni. Lítið þarf til að fulltrúar flytjist á milli flokka, segir Ólafur Þ. Harðarson. „Það er ljóst miðað við þessar tölur og líka í könnunum undanfarið að núverandi vinstri meirihluti er fallinn. Hins vegar eru þessir vinstri flokkar sameiginlega núna með um 44 prósent. Ef við tökum saman Sjálfstæðisflokkinn, Miðflokkinn, Framsóknarflokkinn og kannski Okkar borg, þá eru þeir með 42 prósent. Þannig að þessar fylkingar eru álíka stórar og fengju, miðað við þessa útreikninga, tíu fulltrúa hvor,“ segir hann. Viðreisnar að ráða Verði niðurstöður kosninganna þessar má ætla að Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, verði elt á röndum beint í kjölfarið. „Miðað við líklegar tegundir af meirihlutamyndun þá er Viðreisn í algjörri lykilstöðu. Hún getur ákveðið hvort hún vilji vinna til vinstri eða til hægri.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Viðreisn Borgarstjórn Mest lesið Stærstu skjálftar á svæðinu frá 2008 Innlent Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun Innlent Ökumenn séu of óþolinmóðir fyrir steypta vegi Innlent Þúsund myndavélar fylgjast með því sem fram fer á flugvellinum Innlent Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent Vindmyllan á stærð við tvær Hallgrímskirkjur Innlent Vilja banna rússneska túrista Erlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Innlent Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Stærstu skjálftar á svæðinu frá 2008 Ökumenn séu of óþolinmóðir fyrir steypta vegi Þúsund myndavélar fylgjast með því sem fram fer á flugvellinum Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun „Ó, mér líður svo vel“ Vindmyllan á stærð við tvær Hallgrímskirkjur Draga aflvana bát til hafnar nær Öndverðarnesi Rýnt í flókna stöðu Icelandair Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Reynsluboltinn í Hæstarétti hættur: „Þetta var komið gott“ Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Sjá meira