Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Jakob Bjarnar skrifar 17. apríl 2026 13:31 Fáir ef nokkrir vita eins mikið um jarðveg og Bjarni Hannesson sem titlar sig íþróttavallayfirborðstæknifræðing í símaskrá. Hann segir að nú sé yfirborð golfvallarins í Mosfellsbæ eins og búðingur og við ágang breytist þessi búðingur í drullu. Vísir/Ívar Fannar Bjarni Hannesson yfirvallarstjóri Golfklúbbs Mosfellsbæjar hefur í mörg horn að líta. Nú er völlurinn einkar viðkvæmur því undir yfirborðinu sem er að bráðna er frost og þá verður grasið eins og búðingur. Bjarni varar við því að fólk sé að flækjast á vellinum nú um stundir.
Bjarni er einn reynslumesti vallarstjóri landsins. Hann er með M.Sc. gráðu í sportserves technology frá Cranfield University á Englandi og hann gefur reglulega út myndbönd á Facebook-síðu Golfklúbbs Mosfellsbæjar þar sem hann fer yfir stöðu mála. „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við viljum ekki að fólk sé að fara inn á vellina okkar núna þegar frostið er að fara úr jarðveginum. Yfirborðið getur verið eins og búðingur og þá lendum við í svona tjóni,“ segir Bjarni. Að sögn Bjarna eru þetta erfiðir tímar. Ofsakláði hefur kitlað margan kylfinginn, einkum þegar veður er eins og það er núna, sólin skín og sannkallað golfæði hefur gripið landann. „Heldur betur. Masterinn er búinn, veður gott og maður vill rífa í prikin,“ segir Bjarni hress í bragði. Yfirborðið eins og búðingur sem breytist í drullu Hann segir þetta bara á sumum stöðum og þetta gerist nánast á hverju vori. „Það er óþolandi þegar fólk labbar inn á þessi svæði, það getur farið í taugarnar á manni. Ef frostlagið, sem er undir yfirborðinu, er „solid“ þá minnir það á steypta pönnu sem er undir og jarðvegurinn sem er fyrir ofan er að þiðna, þá verður vatnssósa svæði og við ágang breytist það allt í drullu.“ Bjarni segir þetta mismunandi milli valla og staðsetningar þeirra. Bakkakot fékk til að mynda yfir sig snjó þegar frostakaflinn gekk yfir en Hlíðarvöllur ekki. Snjórinn myndar vörn gegn þessu ástandi. Völlurinn er harðlokaður nú sem stendur en það horfir til bóta. „Þetta verður farið eftir helgi. Þá byrjum við að þjappa grínunum niður aftur.“ Bjarni segist hafa verið í þessu lengi og hann muni vel eftir því þegar vetrargolf var, pinni út á braut og svo var spilað. „Þetta var í lagi þegar ágangurinn var minni en ef ég segði að það væri opið myndu býsna margir mæta og þá færi þetta að verða vesen.“ Reykjavík mætti líta í eigin barm Bjarni segir þetta þannig lúxusvandamál sem megi rekja til þeirrar golfsprengju sem hefur verið á Íslandi undanfarin ár. „Það vantar fleiri golfvelli. Það er frábært ef menn hreyfa sig og golf hefur jákvæð lýðheilsuáhrif. En ef við ætlum að anna þessu þarf að opna fleiri teigtíma. Við þurfum ekki bara keppnisvelli heldur fleiri níu holu golfvelli á borð við Setberg og Bakkakot.“ Bjarni segir, í ljósi þess að nú séu að nálgast kosningar, að Reykvíkingar megi líta í eigin barm. Það sé alltof lítið af völlum í Reykjavík og þá fari menn í nágrannasveitarfélögin. Menn séu vitaskuld velkomnir en nú sé yfirflæði og margir á biðlista. Reykjavík þurfi að horfa í eigin barm og skoða hvort þeir þurfi ekki að bjóða upp á meira úrval.
Golf Mosfellsbær Reykjavík Golfvellir Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Sjá meira