Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Orkuveitan 21. apríl 2026 09:27 Margrét Hugadóttir, leiðtogi vísindamiðlunar og Elísabet Jónsdóttir, sýningarstjóri Elliðaárstöðvar. Hvað gerist þegar þú skrúfar frá krananum, kveikir ljós eða sturtar niður? Flest okkar hugsa aldrei um það en á bak við þetta er samspil orku, vatns, tækni og fólks sem vinnur saman á hverjum degi til að halda lífæðum samfélagsins gangandi. Þetta eru kerfi sem styðja heimili, atvinnulíf og daglegt líf. Orkuveitan gerir þennan heim sýnilegan í Elliðaárstöð. Þar sem áður var iðnaðarsvæði er nú lifandi almenningsrými þar sem leikur, fræðsla og menning mætast í hjarta Elliðaárdals. Gamlar og fallegar byggingar hafa fengið nýtt hlutverk og segja sögu þeirra kerfa sem við sjáum sjaldan. Á stað þar sem vatnsaflið var virkjað er nú lögð áhersla á að vekja forvitni um orkuna og virkja hugvit gesta. Þar er boðið upp á vísindamiðlun um orku og veitukerfin, ásamt fjölbreyttum viðburðum og mannlífi sem tengir fólk við það sem liggur undir yfirborðinu. Orkuveitan býður uppá vísindamiðlun um orku og veitukerfin, fjölbreytt viðburði og skemmtilegt mannlíf í Elliðaárstöð. Fjölskyldugleði í dalnum Á sumardaginn fyrsta býður Orkuveitan uppá sannkallaða fjölskyldugleði í Elliðaárstöð frá kl. 13-15 þar sem krakkar og fullorðnir eru hvött til að leika sér og hafa gaman. Í Gestastofu Elliðaárstöðvar er spennandi vísindasýning, vatni verður hleypt á hinn geysivinsæla Vatnsleikjagarð, kaffihúsið Elliði verður opið og skemmtilegir DJ-tónar munu óma um svæðið. Hugmyndasmiðir bjóða upp á fjölskyldusmiðju og hægt verður að taka þátt í Hjólahátíð Reiðhjólabænda frá klukkan 11. Nánari dagskrá má sjá á ellidaarstod.is. Ósýnilegt verður sýnilegt í Elliðaárstöð Elliðaárstöð markaði á sínum tíma upphaf rafvæðingar í Reykjavík og færði íbúum borgarinnar mikil lífsgæði. Eftir að rafmagnið fór að streyma frá helstu vatnsaflsvirkjunum, gátu Reykvíkingar lokað hlóðaeldhúsum, reykmettuðum og heilsuspillandi kytrum, og eldað matinn á rafhellu við rafljós. Í dag getum við vart ímyndað okkur daglegt líf án þess að til okkar streymi hreint drykkjarvatn, varmi, rafmagn og gagnamagn. Við værum fæst til í að búa í húsi án fráveitu. Veitukerfin sem færa okkur þessi lífsgæði eru mikið til ósýnileg og við tökum þeim sem sjálfsögðum. Við sjáum þau ekki nema þegar eitthvað klikkar. Við hugsum sjaldan um hvaðan vatnið kemur, eða hvað þarf til að kveikja ljós og gleymum því að það þarf að vernda vatnið, að það þarf að nota orkuna skynsamlega og að það þarf stöðugt að viðhalda þessum stóru mikilvægu kerfum. Útisvæðið iðar af lífi á sumrin. „Í Elliðaárstöð fræðum við gesti um þessi mál með því að fjalla um orku, vísindi og auðlindir í gegnum leiki og sögur. Með skemmtilegum hætti fjöllum við um hvaðan orkan kemur, hvernig við notum hana og hvernig við getum tekið betri ákvarðanir um orku í framtíðinni. „Við viljum líka að fleiri krakkar velji sér framtíð í iðn- og tæknigreinum og í orkugeiranum og bjóðum upp á fræðslu fyrir nemendur á öllum skólastigum. Við erum í samstarfi við nokkra skóla og frábæra kennara og styðjum við STEAM menntun í skólum. Svo erum við líka með frábært samfélag skólavina, en við miðlum með þeim áhugaverðu efni um orkulæsi, STEAM og auglýsum fræðsluna okkar,“ segir Margrét Hugadóttir, leiðtogi vísindamiðlunar. Skólaheimsókn í Elliðaárstöð. Áfangastaður vísinda, orku og náttúru Elliðaárstöð er í raun stór inni- og útisýning þar sem fróðleiksmolar um orku og veituinnviði eru sýnilegir um allt svæðið. Sýningin Heimili veitna sýnir hvernig veitukerfin tengjast heimilinu. Sýningin Hjartastrengir & vatnsæðar í Gestastofunni sýnir hvernig mikilvæg veitukerfi borgarinnar gegna svipuðu hlutverki og lífsnauðsynleg líffærakerfi mannslíkamans. Á stað sem vatnsaflið var áður virkjað, virkjum við nú sköpunarkraftinn, forvitni og hugvit gesta. Veitukerfin tengja fólkið í samfélaginu Elliðaárstöð segir sögu veitukerfa og menningar í borginni með áherslu á nýsköpun og frumkvöðlastarf. Með þetta að leiðarljósi er Elliðaárstöð í samstarfi við listafólk, félagasamtök, útivistarfólk og fleiri skapandi hópa sem hafa tengst svæðinu í sínum verkefnum. Má þar nefna Sirkuslistafélagið Hringleik sem þróaði sirkussýninguna Megawhat! og vísindasmiðju í samstarfi við vísindafólk Orkuveitunnar. Einnig eru Hugmyndasmiðir með skemmtilegt verkstæði fyrir skapandi fólk og bjóða sumarnámskeið í nýsköpun fyrir börn. Elliðaárstöð tekur þátt í stórum menningarhátíðum, líkt og Barnamenningarhátíð, Hönnunarmars og Listahátíð, og býður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir fjölskyldur og gesti dalsins. Elliðaárstöð er í alfaraleið hjólafólks og hafa Auðlindahringir Orkuveitunnar slegið í gegn hjá hjólreiðafólki. Auðlindasérfræðingar hjá Orkuveitunni og Veitum, sem þekkja veitukerfin inn og út, leiða hjólaleiðsögn um auðlindir og innviði höfuðborgarsvæðisins í sumar. Þetta snýst um að tengja saman fólk og efla samfélagið. Skemmtilegt svæði er í kringum Elliðaárstöðina. Busl og lautarferð í hjarta borgarinnar „Fólk hefur tekið Elliðaárstöð virkilega vel og hafa um 205.000 gestir heimsótt svæðið frá árinu 2021 þegar uppbygging á svæðinu hófst. Með hækkandi sól fjölgar gestum dalsins og hópast fólk hingað í lautarferðir og busl í Vatnsleikjagarðinum á góðviðrisdögum. Kaffihúsið Elliði er rekið yfir vor og sumarmánuði og hafa margir haft það á orði að það sé eins og að vera í útlöndum að koma hingað. Við hlökkum til að sjá svæðið blómstra og fyllast af lífi í sumar,“ segir Elísabet. Sumaropnunartími Elliðaárstöðvar er frá 23. apríl til 30. september Gestastofa Elliðaárstöðvar er opin alla miðvikudaga til sunnudaga frá 13:00–16:00 Kaffihúsið Elliði opnar dyr sínar alla þriðjudaga til sunnudaga frá 11:00–17:00 Elliðaárstöð er í eigu Orkuveitunnar sem er móðurfélag Orku náttúrunnar, Veitna, Ljósleiðarans og Carbfix. Orkumál Reykjavík Menning Mest lesið Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Armar byggir á traustum grunni og horfir til framtíðar Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Dagur verkfræðinnar: Vilja vekja áhuga ungs fólks á tækni- og raungreinum BYKO og Tækniskólinn sameina krafta sína á Verk og vit Auðvelda Íslendingum að skilja ekkert eftir Greiðsluáskorun Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Umferðaröryggi í brennidepli á Forvarnaráðstefnu VÍS Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Sjá meira
Á sumardaginn fyrsta býður Orkuveitan uppá sannkallaða fjölskyldugleði í Elliðaárstöð frá kl. 13-15 þar sem krakkar og fullorðnir eru hvött til að leika sér og hafa gaman. Í Gestastofu Elliðaárstöðvar er spennandi vísindasýning, vatni verður hleypt á hinn geysivinsæla Vatnsleikjagarð, kaffihúsið Elliði verður opið og skemmtilegir DJ-tónar munu óma um svæðið. Hugmyndasmiðir bjóða upp á fjölskyldusmiðju og hægt verður að taka þátt í Hjólahátíð Reiðhjólabænda frá klukkan 11. Nánari dagskrá má sjá á ellidaarstod.is.
Elliðaárstöð er í eigu Orkuveitunnar sem er móðurfélag Orku náttúrunnar, Veitna, Ljósleiðarans og Carbfix.
Orkumál Reykjavík Menning Mest lesið Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Armar byggir á traustum grunni og horfir til framtíðar Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Dagur verkfræðinnar: Vilja vekja áhuga ungs fólks á tækni- og raungreinum BYKO og Tækniskólinn sameina krafta sína á Verk og vit Auðvelda Íslendingum að skilja ekkert eftir Greiðsluáskorun Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Umferðaröryggi í brennidepli á Forvarnaráðstefnu VÍS Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Sjá meira
Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl