Rannsóknin á lokametrunum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. apríl 2026 16:14 Quang Le var bæði einn umsvifamesti veitingamaður landsins auk þess að reka gistiheimili í miðbæ Reykjavíkur. Hann er grunaður um mansal og skipulagða glæpastarfsemi. vísir Rannsókn lögreglu á Quang Le, sem er grunaður um mansal, skjalafals og peningaþvætti, er á lokametrunum. Hann hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi farbann til 3. júlí.
Farbannið var tekið fyrir af Héraðsdómi Reykjavíkur og staðfest af Landsrétti í gær eftir að málinu var skotið þangað. Málið hefur nú verið til rannsóknar í um tvö ár en Quang Le var fyrst úrskurðaður í gæsluvarðhald 6. mars 2024. Eftir að gæsluvarðhaldinu lauk hefur hann sætt farbanni. Sjá nánar: Mál Quangs Le (Davíðs Viðarssonar) Lögregluna grunar að um sé að ræða skipulagða brotastarfsemi sem hafi staðið yfir um margra ára skeið og teygt anga sína yfir landamæri. Quang Le er grunaður um að hafa staðið að mansali, skjalafalsi og peningaþvætti sem og ólöglegri sölu dvalarleyfa og brotum á lögum um atvinnuréttindi útlendinga. Lögregla telur nauðsynlegt að hann sæti farbanni þar sem hætta væri á því að hann myndi reyna að komast úr landi og koma sér þannig undan málsókn eða fullnustu refsingar. Síðast var farbann hans framlengt í janúar og kemur fram í úrskurðinum að lítið hafi gerst síðustu fjóra mánuði í rannsókn lögreglu. Lögreglustjórinn telur þó lengd rannsóknarinnar ekki óeðlilega þar sem um er að ræða eitt umfangsmesta mál sem hefur verið til rannsóknar hér á landi. Lögreglustjórinn lét fylgja með upplýsingaskýrslu um stöðu rannsóknar á málinu. Þar kemur fram að frá því í janúar 2026 hafi rannsóknardeild farið yfir þýðingar á gögnum og ritað tilvikaskýrslur út frá þeim, sent gögn í þýðingu, tekið skýrslur af sakborningum í málinu, framkvæmt trúverðugleikamat á framburði brotaþola, rannsakað prófskírteini sem Quang Le lagði fram við umsókn um dvalarleyfi brotaþola hérlendis, rannsakað handlagða muni í málinu og tekið saman skýrslur um hvern og einn brotaþola í málinu. Quang Le var sjálfur yfirheyrður 13. og 23. mars þar sem gögnin voru borin undir hann. „Í skýrslunni kemur fram að varðandi síma kærða þá hefur ekki enn tekist að afrita hann og rannsaka með fullnægjandi hætti þar sem þau lykilorð sem kærði hefur gefið lögreglu eru ekki rétt, en síðast við skýrslutöku þann 13. mars sl. gaf hann upp lykilorð sem ekki reyndist rétt,“ segir í úrskurðinum. Unnið er að því að ljúka rannsókn málsins eins hratt og mögulegt er. Nú sé verið að vinna úr gögnunum og útbúa tilvikaskýrslur og tímalínur í samræmi við gögnin.
Mál Quangs Le Lögreglumál Mansal Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Sjá meira