Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. apríl 2026 22:21 Sigurður Helgi Pálmason er formaður Þingvallanefndar. Vísir/Vilhelm Þingvallanefnd hefur borist tvö erindi vegna fyrirhugaðra tónleika Kaleo á Þingvöllum í sumar. Formaður nefndarinnar segir að erindin verði tekin fyrir en búið sé að gera ýmsar ráðstafanir svo engar raskanir verði á svæðinu.
Hljómsveitin Kaleo hefur þegar hafið sölu á fyrirhugaða tónleika sem haldnir verða í sumar. Daginn sem almenn miðasala hófst seldust sautján þúsund miðar en alls eru tuttugu þúsund miðar í boði. „Við höfum fengið tvö erindi og við höfum náttúrulega heyrt þessar raddir. Að vísu erum við að taka þetta fyrir á fundi á morgun og þar förum við yfir þessar áhyggjur þeirra sem eru að lýsa þeirra skoðun á þessu máli og það er eðlilegt,“ segir Sigurður Helgi Pálmarsson, formaður Þingvallanefndar og þingmaður Flokks fólksins, í viðtali í Reykjavík síðdegis. Nefndin hafi þegar samþykkt að tónleikarnir verði haldnir á Þingvöllum en þeir verði á afmörkuðu svæði. Nú þegar heimsæki um 1,6 milljónir manna þjóðgarðinn ár hvert, mest um tíu þúsund manns á dag. „Fjöldinn sem slíkur sem er að sækja tónleikana, í stóra samhenginu, er nú ekkert svakalega stór,“ segir Sigurður. Ákvörðunin hefur hlotið einhverja gagnrýni. Álfheiður Ingadóttir, sem var formaður Þingvallanefndar árin 2009-2013 og heilbrigðisráðherra, skorar á nefndina að draga til baka leyfið fyrir tónleikunum. Björn Bjarnason, sem sat í nefndinni um tólf ára skeið, gagnrýndi einnig leyfið. Ekkert óeðlilegt við að fara nýjar leiðir Sigurður minnir á að það hafi áður verið haldnir tónleikar á Þingvöllum en markmið tónleikanna sé að höfða sérstaklega til Íslendinga og vonast til að þeir finni fyrir löngun til að heimsækja Þingvelli. „Það er ekkert óeðlilegt að við reynum að finna einhverjar nýjar leiðir. Þetta eru leiðir sem að við erum að sjá úti í heimi á mjög þekktum stöðum sem eru einnig undir UNESCO,“ segir Sigurður. Allir gestirnir muni ganga á möl eða steyptum vegum og sé þegar búið að ráða hundruð starfsmanna til að sjá um öryggisgæslu. Ekki sé þetta þá í fyrsta skipti sem slíkur fjöldi sækir þjóðgarðinn en á Lýðveldishátíðinni árið 1974 hafi verið um sextíu þúsund manns. „Þetta er bara mjög afmarkaður staður í raun og veru þar sem tónleikarnir eru haldnir og fólkinu er beint að því svæði.“
Kaleo Þingvellir Reykjavík síðdegis Tónleikar á Íslandi Tónlist Tónleikar Kaleo á Þingvöllum 2026 Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Sjá meira