Andstaðan við að tryggja að neytendur fái lækkun við dælu Þórður Snær Júlíusson skrifar 14. apríl 2026 07:47 Ríkisstjórnin kynnti í lok síðustu viku aðgerðir sem eiga að vinna skarpt og hratt gegn verðbólgu. Í þeim felst að virðisaukaskattur á eldsneyti verður tímabundið lækkaður úr 24 í 11 prósent í fjóra mánuði – frá byrjun maí og út ágúst – sem áætlað er að skili umtalsverðri lækkun við dæluna og um 0,3 prósenta lækkun á vísitölu neysluverðs sem mælir verðbólgu. Með öðrum orðum er verið að stíga fast inn í þá stöðu sem myndast hefur vegna stríðsátaka í Miðausturlöndum og mun að óbreyttu leiða til umtalsverðra verðhækkana á eldsneyti og aukinnar innfluttrar verðbólgu. Áhrifin eru margþætt. Verðbólga verður auðvitað minni en annars sem mun verða til gagns víða í samfélaginu, til að mynda á húsnæðislán fjölmargra heimila. Aðgerðin er líka miðuð inn á að auka ekki þenslu og felur í sér ólík áhrif á samfélagshópa. Beinu lækkunaráhrifin einskorðast við heimili og aðra sem hafa ekki innskattsrétt í virðisaukaskattskerfinu. Þeir sem nota bíla mest munu verða fyrir mestum áhrifum. Greiningar sýna skýrt að meðaleyðsla bíla er mest hjá lægstu tekjutíundum fjölskyldna og þar er fjöldi bíla mestur. Allt að öllu þá eru þetta fljótvirkar og áhrifaríkar aðgerðir sem lenda þyngst þar sem þörfin er mest. Sterkar vísbendingar um að ávinningi sé ekki skilað Til að þessi aðgerð hafi þau áhrif sem henni er ætlað þurfa þau olíufélög sem selja eldsneyti þó að skila lækkuninni að öllu leyti beint til neytenda í formi lægra verðs við dælu. Að óbreyttu ætti það að þýða að verð til neytenda lækki um 10,5 prósent. Það eru eðlilegar forsendur til staðar um að þörf sé á sértækum aðgerðum til að tryggja slíkt. Í greiningu hagfræðings Visku stéttarfélags, sem birt var í síðasta mánuði, kom til að mynda fram að íslensku olíufélögin séu nær fjórfalt líklegri til að skila verðhækkunum til neytenda en verðlækkunum. Þar sagði einnig að álagningin sem félögin leggja á eldsneytið hafi verið sögulega há undanfarið. Raunar hafi hún aldrei verið meiri en í ár. Í greiningunni sagði skýrt: „Sterkar vísbendingar eru um að afnám vörugjalda og olíugjalda um áramótin hafi ekki að fullu skilað sér í verðlag á dælu og félögin séu smám saman að hækka álagningu sína.“ Vegna þessa segir í greinargerð frumvarpsins sem lagt var fram um tímabundna lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti að Samkeppniseftirlitið geti beitt þeim heimildum sem því eru veittar með lögum til að tryggja að verðið lækki. Því til viðbótar geti „ráðherra samkeppnismála, komi í ljós við slíkt eftirlit að misbrestur sé á því að hin tímabundna lækkun skili sér í útsöluverði eldsneytis, sett reglugerð um tímabundnar aðgerðir til að bregðast við því.“ Tímabundnar aðgerðir geta falist í ákvörðun hámarksverðs eða hámarksálagningar eða annarri stýringu á verðlagningu eða viðskiptakjörum. Á móti því að verja hag fólksins í landinu Það liggur fyrir að ef olíufélögin skila verðlækkuninni til neytenda þá þarf ekkert að gera. Gerist það ekki eru úrræði til staðar til að bregðast við tímabundið, fyrir hönd almennings. Viðbrögð stjórnarandstöðunnar fólu ekki í sér að fagna því að stjórnvöld væru að grípa inn í alvarlegar aðstæður til að verja hag fólksins í landinu. Þvert á móti bræddu þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem nýlega lagði fram efnahagstillögur um að setja ríkissjóð á hausinn á örfáum árum, og Miðflokksins nánast úr sér af vanþóknun yfir þessari aðgerð. Það versta sem þeim dettur í hug að geti gerst er að ríkið tryggi að aðgerðir sem eiga að vinna gegn verðbólgu og létta tekjulægstu hópunum sem verða mest fyrir barðinu á henni lífið fái sannarlega þann ávinning, en að seljendur vörunnar geti ekki undir neinum kringumstæðum stungið honum í vasann. Pólitík hinna fáu á kostnað allra hinna Í raun þarf sú afstaða ekkert að koma mikið á óvart að flokkarnir í stjórnarandstöðu tali af hörku gegn þingmáli sem á að lækka verð á eldsneyti. Pólitísku línurnar hjá hægrinu þegar kemur að neytenda- og efnahagsmálum eru kýrskýrar. Opinbert eftirlit er að þeirra mati vont og fyrirtæki eiga helst að fá að hafa eftirlit með sjálfum sér. Skiptir engu þótt um sé að ræða fyrirtæki sem starfa á mörkuðum þar sem fákeppni eða einokun ríkir þar sem margoft hefur sýnt sig að lækkun á álögum skilar sér ekki í betri kjörum til almennings heldur aukinni arðsemi. Sama gildir um afstöðu þess til skatta, sem standa undir velferðarkerfi og þjónustu hins opinbera. Slíkir eru það versta sem þessi hópur veit um, sérstaklega ef þeir leggjast á breiðustu bökin. Þessari kreddu heldur hægri kanturinn blygðunarlaust fram þrátt fyrir að öllu skynsömu fólki ætti að vera ljóst að brauðmolahagfræðin, þar sem stærri kaka ríkra á að búa til stærri brauðmola fyrir pöpulinn, hefur aldrei virkað fyrir neinn nema efsta lagið og er alltaf á kostnað velferðar hinna. Það er því að einhverju leyti skiljanlegt að andstöðuflokkarnir hrökkvi við þegar komin er til valda ríkisstjórn sem vill að gangverkið virki fyrir alla, ekki bara suma. Stjórn sem er stolt af því að bregðast við aðstæðum sem hafa mikil tímabundin áhrif á líf fólksins í landinu og ætlar að gera allt sem í sínu valdi stendur til að tryggja að þau viðbrögð skili sér þangað sem þau eiga að lenda. Höfundur er framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórður Snær Júlíusson Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Mest lesið Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun