Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Freyja Þórisdóttir skrifar 12. apríl 2026 08:18 Lögreglan var kölluð til í ólík verkefni víða um höfuðborgarsvæðið í gærkvöldi og í nótt. Vísir/Vilhelm Maður var vistaður í fangaklefa vegna þess að hann neitaði að segja til nafns. Lögregla hafði þá verið kölluð til eftir að tilkynnt var um að maðurinn væri að angra gesti á starfsmannagleði. Tveir aðrir voru vistaðir í kjölfar þess að hafa verið til ama fyrir utan skemmtistaði í miðbæ Reykjavíkur.
Þetta og fleira er meðal þeirra mála sem voru skráð í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan fimm í gærkvöldi. Alls voru rúmlega níutíu mál skráð og gistu sjö í fangageymslu lögreglu í morgun. Dyraverðir í miðbæ Reykjavíkur voru ítrekað truflaðir af manni sem reyndist svo árangurslaust að ræða við eftir að lögreglan hafði handtekið hann og flutt á lögreglustöð eitt. Hann var vistaður í fangageymslu vegna ástands. Tveir voru handteknir grunaðir um sölu og dreifingu fíkniefna en þeir voru saman á ferð í miðbænum. Við handtöku fundust á þeim fíkniefni og fjármunir og svo fleiri fíkniefni við ítarlega leit á lögreglustöð. Voru þeir báðir vistaðir og er málið enn í rannsókn. Látinn laus ef hann segði til nafns Maður var handtekinn eftir að tilkynnt hafði verið um hann utan við starfsmannagleði á vegum fyrirtækis í umdæmi lögreglustöðvar eitt, það er Austurbær, Miðbær, Vesturbær og Seltjarnarnes. Við afskipti lögreglu neitaði maðurinn að segja til nafns og var því handtekinn og fluttur á lögreglustöð. Þar var honum tjáð að hann yrði laus ef hann gæfi upp persónuupplýsingar en hann neitaði því og var mjög ölvaður. Hann var því vistaður vegna málsins. Lögregla í Kópavogi og Breiðholti var kölluð til vegna umferðaróhapps en þar hafði bifreið verið ekið á skilti. Talið er að enginn hafi slasast en bifreiðin er talsvert skemmd. Þá voru alls fimm aðilar handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Allir lausir eftir sýnatöku nema einn sem var vistaður vegna málsins.
Lögreglumál Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Sjá meira