„Dæmisögur Jesú“—Líf sem ber hundraðfaldan ávöxt. Sigurvin Lárus Jónsson skrifar 11. apríl 2026 15:30 Jesús sagði dæmisögur, en hvað eru dæmisögur og hvaða tilgangi þjóna þær? Spurningar um bókmenntaform kunna að virðast sértæk hugarleikfimi fræðimanna, en það sem er undir í slíkum skilgreiningum hefur þó afgerandi áhrif á skilning okkar á innihaldinu. Mörg þekkja dæmisögur Esóps, en þær hafa verið lesnar hérlendis frá miðöldum, og voru vel þekktar á samtíma Jesú. Ólíkt íslensku, leggja fæst tungumál að jöfnu sögur Esóps og Jesú, með því að kalla báðar hefðir dæmisögur. Kemur það til af því að grísku orðin eru ólík: Við Esóp eru kenndar μῦθοιá grísku, en þaðan er orðið mýta komið, og á latínu kölluðust þær fabulae, en þaðan er komið fabúla og að fabúlera. Sögum Jesú á grísku er lýst sem παραβολαί, en það merkir bókstaflega eitthvað sem er lagt saman, er hliðstætt, eða borið saman. Bæði bókmenntaform hafa kennslu að markmiði, dæmisögur Esóps með sögum úr dýraríkinu, á borð við söguna af ljóninu og músinni, eða refnum og vínberjunum, og dæmisögur Jesú með dæmum úr hversdagsleika almennings. Dæmisögur Jesú eru torskildar og höfundar guðspjallanna voru meðvitaðir um það. Í elsta guðspjallinu, Markúsarguðspjalli, er að finna samtal á milli Jesú og vina hans, þar sem kemur í ljós að jafnvel þau sem stóðu honum næst áttu erfitt með að skilja dæmisögurnar. Þar segir að Jesús hafi kennt fólkinu „margt í dæmisögum“ og þegar hann „var orðinn einn spurðu þeir tólf og hinir lærisveinarnir, sem með honum voru, um dæmisögurnar. Hann svaraði þeim: ,Ykkur er gefinn leyndardómur Guðs ríkis. Aðrir, sem fyrir utan eru, fá allt í dæmisögum, að sjáandi sjái þeir og skynji ekki, heyrandi heyri þeir og skilji ekki, svo þeir snúi sér eigi og verði fyrirgefið.‘“ Þrátt fyrir þetta virðast þau sem stóðu Jesú næst ekki hafa skilið boðskapinn og voru því ávítuð af kennara sínum: „Jesús segir við lærisveinana: ,Þið skiljið eigi þessa dæmisögu. Hvernig fáið þið þá skilið nokkra dæmisögu?‘“. Samtal Jesú og ummæli hans um þau sem standa fyrir utan nemendahópinn má túlka með ýmsum hætti en fræðimenn hafa bent á samsvörun með svokölluðum gnóstískum hefðum, sem einmitt byggja á leyndri þekkingu sem lærisveinar Jesú höfðu aðgang að. Margar bókmenntir úr frumkristni hafa það sem stef, en flestar voru þær síðar fordæmdar af kirkjunni. Neðar í sama kafla endurtekur höfundur Markúsarguðspjalls að í „mörgum slíkum dæmisögum flutti Jesús þeim orðið svo sem þeir gátu numið og án dæmisagna talaði hann ekki til þeirra en fyrir lærisveinum sínum skýrði hann allt þegar þeir voru einir.“ Rannsóknir á dæmisögum Jesú hafa einkennst annarsvegar af leitinni að upprunalegu formi dæmisagnanna, og hins vegar af merkingu þeirra í samhengi hvers rits fyrir sig. Þrjú af fjórum guðspjöllum Nýja Testamentisins innihalda dæmisögur, en Jóhannesarguðspjall miðlar annarskonar kennsluhefð frá Jesú, og fjölmargar dæmisögur eru þekktar utan Biblíunnar, m.a. í Tómasarguðspjalli, sem komst fyrst undir hendur fræðimanna á 20. öldinni. Flestar dæmisögur Jesú hafa það erindi að lýsa konungsríki Guðs en það er jafnframt kjarninn í boðskap Jesú. Það á jafnframt við um dæmisöguna sem lærisveinar Jesú skildu ekki, en hún hljómar í Markúsarguðspjalli með eftirfarandi hætti: „,Hlýðið á! Sáðmaður gekk út að sá og þá er hann sáði féll sumt hjá götunni og fuglar komu og átu það upp. Sumt féll í grýtta jörð þar sem var lítill jarðvegur og það rann skjótt upp því það hafði ekki djúpa jörð. En er sól hækkaði visnaði það og sökum þess að það hafði ekki rótfestu skrælnaði það. Og sumt féll meðal þyrna og þyrnarnir uxu og kæfðu það og það bar ekki ávöxt. En sumt féll í góða jörð, kom upp, óx og bar ávöxt, það gaf þrítugfaldan, sextugfaldan og hundraðfaldan ávöxt.‘ Og hann sagði: ,Hver sem eyru hefur að heyra, hann heyri!‘“ Á yfirborðinu virkar dæmisagan einföld, sáðkornin eru boðskapur Jesú, „sáðmaðurinn sáir orðinu“ líkt og Jesús neðar í textanum útskýrir, og útkoman er ólík hjá þeim sem heyra þann boðskap. Þá er líkingin sótt í veruleika sem allir þekkja, akuryrkja byggir á því að safna sáðkornum á uppskerutíma og sá þeim aftur í akur í von um nýja uppsprettu að ári. Við nánari lestur vakna þó upp spurningar í garð lýsingarinnar, til dæmis hvort sá sáðmaður sem stráir sáðkornum óvarlega, sem sagt meðal steina og þyrna jafnt sem og í akur sinn, sé raunsönn lýsing á tíma þegar bændur bjuggu við sára fátækt og skattpíningu, og jafnframt hvort uppskeran geti talist raunhæf: „það gaf þrítugfaldan, sextugfaldan og hundraðfaldan ávöxt.“ Svipaðar dæmisögur sem þekktar eru úr heimspeki fornaldar og úr hinum biblíulega arfi boða að maður uppsker eins og maður sáir, en hér virðist boðskapurinn vera að af litlu kemur mikið. Neðar í sama kafla guðspjallsins er styttri dæmisaga sem segir hið sama, „Við hvað eigum við að líkja Guðs ríki? […] Líkt er það mustarðskorni. Þegar því er sáð í mold er það smærra hverju sáðkorni á jörðu. En eftir að því er sáð tekur það að spretta, það verður öllum jurtum meira og fær svo stórar greinar að fuglar himins geta hreiðrað sig í skugga þess.“ Af hinu smæsta vex hið stærsta. Útskýring Jesú á dæmisögunni um sáðmanninn er eftirfarandi: „,Sáðmaðurinn sáir orðinu. Það hjá götunni, þar sem orðinu er sáð, merkir þá sem heyra en Satan kemur jafnskjótt og tekur burt orðið sem í þá var sáð. Eins það sem sáð var í grýtta jörð, það merkir þá sem taka orðinu með fögnuði um leið og þeir heyra það en hafa enga rótfestu. Þeir eru hvikulir og þegar þrenging verður eða ofsókn vegna orðsins bregðast þeir þegar. Öðru var sáð meðal þyrna. Það merkir þá sem heyra orðið en áhyggjur heimsins, tál auðæfanna og aðrar girndir koma til og kefja orðið svo það ber engan ávöxt. Hitt, sem sáð var í góða jörð, merkir þá sem heyra orðið, taka við því og bera þrítugfaldan, sextugfaldan og hundraðfaldan ávöxt.‘“ Dæmisögurnar má túlka með ýmsum hætti, sem vonarboðskap til þeirra sem sultu og þjáðust undan fátækt og kúgun, sem hvatningu til hins frumkristna safnaðar sem var fámenn hreyfing með stóran boðskap, og sem áminningu um að skapa í hjarta sínu góða jörðu fyrir boðskap kærleikans, en það sem einkennir dæmisögur Jesú er tvennt: Annarsvegar byggja dæmisögur Jesú á lýsingum sem vísa í hversdagslíf almennings, „sáðmaður gekk út að sá“ og hins vegar er þeim ætlað að stuða áheyrendur og vekja af værðardraumi. Konungsríki Guðs er eðlisólíkt þeirri skipan sem við teljum okkur eiga að venjast. Ef við lifum samkvæmt því, er hið ómögulega mögulegt og hið smæsta verður að hinu mesta. Dæmisöguna um sáðmanninn er jafnframt að finna í Matteusarguðspjalli og í Lúkasarguðspjalli, sem og í fleiri ritum úr frumkristni, jafnt þeim sem voru meðtekin af kirkjunni, eins og í Fyrra Klemensarbréfi, og þeim sem síðar urðu fordæmt af kirkjunni, þar á meðal Tómasarguðspjall: Í þýðingu Jóns Ma. Ásgeirssonar hljómar dæmisagan þar: „Sjá, sáðmaður hélt af stað með handfylli af sáðkorni og dreifði úr sáðinu. Féll sumt kornið á troðnar slóðir og fuglar flugu þar að og lásu upp kornið. Annað féll á steina og náði ekki rótfestu í jörðu þannig að engir sprotar uxu af sáðinu. Enn annað sáldraðist á meðal þyrna. Undir þeim kafnaði kornið og varð möðkum að bráð. Sumt féll loks í frjósaman jarðveg og spratt af góður ávöxtur. Skilaði uppskeran sér sextugföld, jafnvel eitt hundrað og tuttuguföld.“ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurvin Lárus Jónsson Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar