Víkingar áttu að fá víti: „Þetta er hendi, það er bara klárt“ Valur Páll Eiríksson skrifar 11. apríl 2026 09:00 Ásgeir Helgi handleikur boltann klárlega í atvikinu sem átti sér stað í blálok leiksins. Vísir/Anton Brink Leik Víkings og Breiðabliks hefði hæglega getað lokið með 2-1 sigri gestanna hefðu þeir fengið vítaspyrnu í uppbótartíma leiksins.
Víkingar voru töluvert sterkari aðilinn í síðari hálfleik leiks gærkvöldsins eftir að Blikar höfðu núllað ógnir heimamanna nánast alfarið út fyrir hlé. Það lá töluvert á Blikum sem settust aftarlega á völlinn og Víkingur sóttist eftir sigurmarki í lokin. Í uppbótartíma barst boltinn til Gunnars Vatnhamar innan teigs og hann reyndi að gefa boltann fyrir. Boltinn hæfði bringu Ásgeirs Helga Orrasonar, fór aftur fyrir fætur Gunnars, sem reyndi aftur að gefa fyrir og í það skiptið fór boltinn augljóslega í útstrekkta hönd Ásgeirs, líkt og sést á ljósmynd Antons Brink, ljósmyndara Vísis, efst í fréttinni. Atvikið var rætt í útsendingu Sýnar Sport eftir leik þar sem mat sérfræðinga var afgerandi. „Þetta er hendi. Það er bara klárt,“ sagði Albert Brynjar Ingason eftir leik og Bjarni Guðjónsson tók undir. „Það er rétt hjá Gunnari Vatnhamar. Höndin er svo rosalega langt út. Þetta er hendi,“ sagði Bjarni. Klippa: Víkingur átti að fá víti Leiknum lauk 1-1 þökk sé jöfnunarmarki Gylfa Þórs Sigurðssonar eftir agaleg mistök Antons Ara Einarssonar, markvarðar Breiðabliks. Kristófer Ingi Kristinsson hafði komið Breiðabliki í forystu snemma leiks. Besta deildin rúllar áfram á morgun er fyrsta umferðin klárast. Allir leikir verða í beinni á rásum Sýnar Sport. Sunnudagur 12. apríl 13:00 ÍBV - FH (Sýn Sport Ísland) 16:45 Besta messan (Sýn Sport Ísland) 17:00 KR - Keflavík (Sýn Sport Ísland 2) 17:00 Valur - Þór (Sýn Sport Ísland 4) 17:00 KA - Stjarnan (Sýn Sport Ísland 5) 19:30 Fram - ÍA (Sýn Sport Ísland) 21:35 Stúkan (Sýn Sport Ísland)
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Breiðablik Íslenski boltinn Mest lesið Hausverkur fyrir Iraola Enski boltinn Uppgjörið: KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur Íslenski boltinn „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Bjóða hverjum sem vinnur Littler 84 milljónir Sport Rosenborgarar Freys óstöðvandi Fótbolti „Hefði nú verið betra að vera með tvo sigra“ Íslenski boltinn Mbappé sár eftir HM Fótbolti „Góðir tímar framundan“ Íslenski boltinn „Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Íslenski boltinn Littler rústaði metum og varði titilinn Sport Fleiri fréttir „Góðir tímar framundan“ „Hefði nú verið betra að vera með tvo sigra“ „Mjög ánægður með margt í leiknum en óánægður með jafntefli“ Uppgjörið: KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur „Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Fyrirliði Njarðvíkur til Vals Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-0 | Ágúst Orri hetjan Aðstoðarþjálfari Jökuls í Vesturbæinn „Við eigum harma að hefna“ Sjáðu mörkin þegar ÍA kjöldró Stjörnuna Rúnar: Ég hef aldrei farið á Þjóðhátíð Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Jóhannes Karl: Strákarnir eiga skilið frí yfir helgina Uppgjörið: ÍA-Stjarnan 5-1 | Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Uppgjörið: FH-Fram 0-0 | Mörg mörk síðast en ekkert í kvöld Kláraði Harvard og samdi við Blika Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Var strax sannfærð: „Bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona“ Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Fyrsti sigur ÍR-inga síðan á Þjóðhátíðardeginum Æfir íslenskuna daglega í klefanum Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Sjá meira