Kona handtekin vegna dánartilkynningar í Morgunblaðinu Lovísa Arnardóttir skrifar 10. apríl 2026 12:33 Dánartilkynningin birtist í Morgunblaðinu í morgun. vísir/Anton Brink Lögreglan á Suðurnesjum hefur handtekið konu í þágu rannsóknar á umsáturseinelti í kjölfar birtingar á dánartilkynningu í Morgunblaðinu nú í morgun. Lögregla ætlar að fara fram á gæsluvarðhald yfir konunni í dag.
Maðurinn sem sagður var látinn, Sölvi Guðmundarson, bar fregnirnar af sér í færslu á Facebook, í skilaboðum til ættingja og vina. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að konan hafi áður verið grunuð um og sætt rannsókn vegna fjölda annarra tilvika umsáturseineltis undanfarin ár og er þeim málum ekki lokið. Lögregla hyggst fara með kröfu um gæsluvarðhald á hendur aðilanum síðar í dag. „Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu,“ segir að lokum. Fjallað var um tilkynninguna í morgun en Sölvi sagði í færslu á Facebook-síðu sinni að tilkynningin hefði verið birt af „fárveikri konu“ og móður hennar. „Þetta er ekkert grín að eiga við svona andskotans viðbjóði meðan lögvaldið klórar sér í rassgatinu!“ sagði hann. Önnur konan sem Sölvi nafngreinir er Íris Helga Jónatansdóttir, sem sjö menn hafa kært fyrir umsáturseinelti. Sölvi tjáði sig um málið í viðtali við Vísi, þar sem hann sagðist fyrst hafa leitað til lögreglu vegna áreitis af hálfu Írisar árið 2024 og þá lagt fram 700 skjáskot af skilaboðum frá henni. Að sögn Sölva voru þau í árslöngu sambandi sem lauk í byrjun mars 2024. „Og rúmlega tveimur vikum seinna byrjaði þetta; endalausar netárásir og skilaboð frá fölskum aðgöngum á Facebook. Hún sendi líka skilaboð á dóttur mína. Í eitt skipti reyndi hún að skera á dekkin á bílnum mínum. Um páskana fór ég austur á Breiðdalsvík og fékk senda mynd frá nágranna mínum þar sem það var búið að maka sultu á veggina í íbúðinni minni,“ sagði Sölvi í viðtalinu sem hægt er að lesa að neðan.
Lögreglumál Mál Írisar Helgu Jónatansdóttur Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Innlent Fleiri fréttir Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Sjá meira