Íris bæjarstjóraefni Sjálfstæðismanna í Eyjum Atli Ísleifsson skrifar 10. apríl 2026 07:37 Íris Róbertsdóttir hefur gegnt embætti bæjarstjóra Vestmannaeyja síðustu átta ár. Vísir/Vilhelm Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur samþykkt beiðni um að vera bæjarstjóraefni Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum í komandi sveitarstjórnarkosningum í maí.
Íris greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni í morgun, en einnig félag Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum. „Ég hef ákveðið að verða við þeirri ósk Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum að vera bæjarstjóraefni flokksins í kosningunum í næsta mánuði. Þessa ákvörðun tek ég ekki síst vegna þess að ég hef átt gott og traust samstarf við oddvita flokksins og sömuleiðis hefur verið gott samstarf í nefndum og ráðum allt síðasta kjörtímabil. Ég er þakklát frambjóðendum flokksins fyrir að sýna mér þetta traust og vonast til að listinn fái sterkt umboð kjósenda í komandi kosningum. Þannig get ég áfram lagt mitt af mörkum með góðu fólki fyrir Vestmannaeyjar,“ segir í færslu Írisar. Fyrir Heimaey lætur gott heita Íris var á sínum tíma virk í Sjálfstæðisflokknum en eftir klofning fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2018 gekk Íris til liðs við lista félagsins Fyrir Heimaey og varð bæjarstjóri í Vestmannaeyjum eftir kosningasigurflokksins, stöðu sem hún hefur gegnt síðan. Í febrúar síðastliðnum greint Íris frá því að hún hefði ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þá ákveðið í ferbrúar að ekki yrði boðið fram undir merkjum Fyrir Heimaey í kosningunum í maí. Í færslu á Facebook-síðu Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum segir að frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum hefðu eftir því við Írisi Róbertsdóttur að hún yrði bæjarstjóraefni flokksins. „Íris samþykkti beiðnina, en hún hefur gegnt starfi bæjarstjóra í Vestmannaeyjum undanfarin átta ár.“ Prófkjör fór fram hjá Sjálfstæðisflokknum í Vestmannaeyjum 13. mars síðastliðnum þar sem Eyþór Harðarson hafði betur í baráttu um oddvitasætið gegn Trausta Hjaltasyni. Trausti skipar þó annað sæti listans. Eyþór sagðist eftir sigurinn þó ekki sækjast eftir bæjarstjórastarfi. „Ég hef alltaf sagt það að ég er í ágætisvinnu hér í Ísfélaginu. Ég er ekki að sækjast eftir bæjarstjórastarfi. Við hópurinn sem leiðir listann förum bara yfir það og komumst að einhverri niðurstöðu þegar líður á vorið,“ sagði Eyþór í samtali við fréttastofu.
Vestmannaeyjar Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Tengdar fréttir „Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist skoða það þegar að því kemur hvort hún myndi ráða sig sem bæjarstjóra í Vestmannaeyjum eða annars staðar. Íris tilkynnti nýlega að hún ætli ekki aftur fram. Íris var til viðtals í Bítinu og ræddi þar einnig samgöngumál til Vestmannaeyja sem hún segir óboðleg á þessari stundu. 4. mars 2026 08:30 Fyrir Heimaey lætur gott heita í Eyjum Tekin hefur verið ákvörðun um það innan Fyrir Heimaey, sem hefur haft forystu í bæjarmálapólitíkinni í Vestmannaeyjum, að ekki verði boðinn fram listi í bæjarstjórnarkosningum í vor. 27. febrúar 2026 12:59 Íris kveður stjórnmálin í Eyjum Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hún segist hafa tilkynnt stjórn Heimaeyjar þessa ákvörðun sína. Mikil spenna er um efsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í bænum og Miðflokkurinn er mættur til eyjunnar grænu og fögru. 27. febrúar 2026 11:06 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Ekki í fyrsta sinn sem Trump stingur upp á Ísland yrði hluti af Bandaríkjunum „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Sjá meira
„Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist skoða það þegar að því kemur hvort hún myndi ráða sig sem bæjarstjóra í Vestmannaeyjum eða annars staðar. Íris tilkynnti nýlega að hún ætli ekki aftur fram. Íris var til viðtals í Bítinu og ræddi þar einnig samgöngumál til Vestmannaeyja sem hún segir óboðleg á þessari stundu. 4. mars 2026 08:30
Fyrir Heimaey lætur gott heita í Eyjum Tekin hefur verið ákvörðun um það innan Fyrir Heimaey, sem hefur haft forystu í bæjarmálapólitíkinni í Vestmannaeyjum, að ekki verði boðinn fram listi í bæjarstjórnarkosningum í vor. 27. febrúar 2026 12:59
Íris kveður stjórnmálin í Eyjum Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hún segist hafa tilkynnt stjórn Heimaeyjar þessa ákvörðun sína. Mikil spenna er um efsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í bænum og Miðflokkurinn er mættur til eyjunnar grænu og fögru. 27. febrúar 2026 11:06