Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 9. apríl 2026 20:17 Arnar Eggert Thoroddsen er mikið niðri fyrir vegna andláts Björgvins Halldórssonar. Vísir „Maður er mjög sorgmæddur en síðan fyllist maður einhverjum yl og gleði þegar maður sér þessi myndskeið sem sýna hvað hann gerði mikið fyrir íslenskt tónlistarlíf. Hann setti popptónlist í öndvegi og sinnti henni af mikilli elju alla tíð. Það er eitthvað sem við Íslendingar fílum.“
Þetta segir Arnar Eggert Thoroddsen fjölmiðlafræðingur um Björgvin Halldórsson sem var bráðkvaddur í morgun. Fjallað var um andlát Björgvins í kvöldfréttum. „Og bara ótrúlegur tónlistarmaður. Frábær söngvari, lunkinn gítarleikari og rosa iðinn við að koma hlutum á koppinn og gera hluti. Magnaður maður,“ segir Arnar. Líkt og landsmenn þekkja spannar ferill Björgvins áratugi og eftir hann liggja margar af helstu dægurperlum þjóðarinnar, lög sem hann ýmist samdi eða flutti. Björgvin hóf ferilinn ungur með hljómsveitinni Bendix sem stofnuð var í Hafnarfirði árið 1966. Þremur árum síðar var hann valinn poppstjarna ársins og sinnti tónlistinni allt, meðal annars með hljómsveitum á borð við Flowers, Ævintýri, Brimkló, Ðe lónlí blú bojs og HLH-flokknum. Björgvin var auk þess rödd Stöðvar 2 áratugum saman, var dagskrárstjóri Bylgjunnar og kom fram í ýmsum þáttum. Hann hefur gefið út ógrynni jólalaga og stóð um árabil fyrir hinum geysivinsælu tónleikum Jólagestum Björgvins. Arnar segist hrífast af því hvað Björgin sinnti poppinu af mikilli einurð. „Hann var gagnrýndur fyrir þetta. En hann bara gerði þetta hundrað prósent og var fylginn sér, myndi ég kalla þetta. Mér finnst líka ótrúlega flott hvernig hann býr síðan undir restina til þetta Vegas-show, jólakonsertanna, þar sem hann er Elvis og Sinatra, rallað í eitt og það gerði hann ótrúlega grand, ótrúlega smart. Mjög sjarmerandi maður, það geislaði af honum. Það fór mikið fyrir honum en hann var svona alvöru stjarna, alvöru rokkari.“ Hann skilur náttúrulega eftir sig gríðarlega menningararfleifð, eða hvað? „Heldur betur og fyrir mig, poppriddarann, finnst mér bara mjög vænt um að fá að setja svona kraft í þetta. Að hann skilji einmitt eftir sig arfleifð og geri popptónlist að einhverju sem skiptir okkur öll máli, hefur gildi og hann var í fararbroddi þar í áratugi.“
Tónlist Andlát Björgvins Halldórssonar Tengdar fréttir Svala minnist pabba síns Svala Björgvins, dóttir Björgvins Halldórssonar, minnist föður síns í fallegri færslu sem hún birti á Facebook í dag. Björgvin var bráðkvaddur að heimili sínu nú í morgun, 9. apríl, en hann var 74 ára gamall. 9. apríl 2026 15:30 Mest lesið Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Lífið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Bíó og sjónvarp Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Í kossaflensi á listasýningu Lífið Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Fleiri fréttir Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Sjá meira
Svala minnist pabba síns Svala Björgvins, dóttir Björgvins Halldórssonar, minnist föður síns í fallegri færslu sem hún birti á Facebook í dag. Björgvin var bráðkvaddur að heimili sínu nú í morgun, 9. apríl, en hann var 74 ára gamall. 9. apríl 2026 15:30