Sport

Rússinn trompaðist eftir fyrsta rústið á ferlinum

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Daniil Medvedev hefur aldrei tapað jafn sannfærandi á sínum ferli.
Daniil Medvedev hefur aldrei tapað jafn sannfærandi á sínum ferli. Julian Finney/Getty Images

Rússneski tenniskappinn Daniil Medvedev lauk leik með hávaðalátum á Masters 1000 mótinu í Monte Carlo.

Rússinn sem situr í 10. heimslistans féll úr leik án þess að vinna eina einustu lotu í 32-manna úrslitum gegn Ítalanum Matteo Berrettini, sem situr í 90. sæti heimslistans.

Berrettini vann bæði settin án nokkurra vandræða, 6-0, 6-0. Í öðru settinu fór allt úrskeiðis hjá Medvedev og þegar Rússinn tapaði annarri lotunni í því setti byrjaði hann að skella spaðanum sínum ítrekað í jörðina.

Hann slapp með viðvörun fyrir uppátækið og lauk fljótt leik, því það tók Berrettini aðeins 49 mínútur að afhenda Medvedev sitt fyrsta 6-0, 6-0, rúst á ferlinum.

Þetta eru ekki einu óvæntu úrslitin á Masters 1000 mótinu í Monte Carlo. Hinn gríski Stefanos Tsitsipas féll úr leik í fyrstu umferð en hann hefur unnið mótið margsinnis áður og þykir einn sá besti í heiminum á leirvöllum.

Hins vegar hafa tveir efstu menn heimslistans, Carlos Alcaraz og Jannik Sinner, farið þægilega í gegnum fyrstu umferðirnar og áfram í 16-manna úrslitin sem hefjast á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×