Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Magnús Jochum Pálsson skrifar 8. apríl 2026 10:17 Aubrey Plaza og Christopher Abbott hafa tvisvar unnið saman og hafa greinilega fellt hugi saman því þau eiga nú von á barni. Getty Leikkonan Aubrey Plaza á von á sínu fyrsta barni með kærasta sínum, leikaranum Chris Abbott, í haust. Fyrir rúmu ári síðan lést leikstjórinn Jeff Baena, fyrrverandi eiginmaður Plaza, en þau höfðu skilið nokkrum mánuðum fyrr eftir rúmlega fjórtán ára samband. Bandaríski dægurmálamiðillinn People greinir frá barneignatíðindunum og hefur fréttirnar eftir heimildarmönnum sínum. Plaza hefur síðan staðfest fregnirnar. Hin 41 árs Plaza og hinn fertugi Abbott kynntust fyrst þegar þau unnu saman að kvikmyndinni Black Bear (2020) og síðan leikritinu Danny and the Deep Blue Sea sem var frumsýnt á Manhattan árið 2024. Ekki liggur fyrir hvað parið hefur verið lengi saman. Aubrey Plaza er þekktust fyrir leik sinn í þáttunum Parks and Recreation (2009-15) en hefur einnig leikið í Scott Pilgrim vs. the World (2010), annarri seríu af The White Lotus (2022) og fjölmörgu öðru. Christopher Abbott er ekki eins þekktur og Plaza en hefur leikið í myndum á borð við First Man (2018), Poor Things (2023) og Wolf Man (2025). Um þessar mundir leikur hann á Broadway í nýrri uppsetningu af Sölumaður deyr. Gengið í gegnum margt Síðasta eina og hálfa árið hefur verið rússíbanareið hjá Plaza. Haustið 2024 þá skildi hún við Jeff Baena eftir fjögurra ára hjónaband og rúmlega fjórtán ára samband. Nokkrum mánuðum síðar, í janúar 2025, stytti hann sér aldur. Aubrey Plaza tjáði sig í fyrsta skiptið um skyndilegt Baena í hlaðvarpinu Good Hang With Amy Poehler í ágúst síðastliðnum. „Þú hefur átt þetta hræðilega, hræðilega, tragíska ár. Þú misstir eiginmanninn þinn, þú hefur verið að glíma við það og leitað leiða við að finna fyrir stuðningi. Fyrir hönd allra sem líður eins og þeir þekki þig, og fólksins sem þekkir þig, hvernig líður þér í dag?“ spurði Poehler hana í hlaðvarpinu. „Akkúrat á þessari stundu er ég glöð að vera hérna með þér,“ svaraði Plaza. „Heilt yfir er ég hér, ég er fúnkerandi og mjög þakklát að fá að upplifa heiminn. Það er í lagi með mig en, þú veist, þetta er dagleg barátta, augljóslega, sagði hún jafnframt. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólk með sjálfsvígshugsanir getur hringt í Pieta-samtökin. Píeta síminn er opinn allan sólarhringinn og er 552-2218 og vefsíðan pieta.is. Barnalán Bandaríkin Hollywood Tengdar fréttir Kom fram í fyrsta skipti eftir andlát eiginmannsins Bandaríska leikkonan og grínistinn Aubrey Plaza sneri í fyrsta skipti aftur á skjáinn í gærkvöld eftir andlát eiginmanns hennar, Jeff Baena. 17. febrúar 2025 15:03 Jeff Baena eiginmaður Aubrey Plaza látinn Bandaríski kvikmyndagerðarmaðurinn Jeff Baena, eiginmaður leikkonunnar Aubrey Plaza, er látinn, 47 ára að aldri. 4. janúar 2025 14:44 Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Stjörnurnar syngja inn haustið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Tim Curry er látinn Hasarmyndahjón heiðursgestir á RIFF Áhrifamikil rómantísk gamanmynd fær framhald Harington tekur við af uppteknum Hoult Ástin sem eftir er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Meghan snýr aftur á skjáinn Etur kappi við Obama og Reynolds Bautista hleypur í skarðið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bestu hlutverk Hayden Panettiere Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Ben Jones er látinn Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Sjá meira
Bandaríski dægurmálamiðillinn People greinir frá barneignatíðindunum og hefur fréttirnar eftir heimildarmönnum sínum. Plaza hefur síðan staðfest fregnirnar. Hin 41 árs Plaza og hinn fertugi Abbott kynntust fyrst þegar þau unnu saman að kvikmyndinni Black Bear (2020) og síðan leikritinu Danny and the Deep Blue Sea sem var frumsýnt á Manhattan árið 2024. Ekki liggur fyrir hvað parið hefur verið lengi saman. Aubrey Plaza er þekktust fyrir leik sinn í þáttunum Parks and Recreation (2009-15) en hefur einnig leikið í Scott Pilgrim vs. the World (2010), annarri seríu af The White Lotus (2022) og fjölmörgu öðru. Christopher Abbott er ekki eins þekktur og Plaza en hefur leikið í myndum á borð við First Man (2018), Poor Things (2023) og Wolf Man (2025). Um þessar mundir leikur hann á Broadway í nýrri uppsetningu af Sölumaður deyr. Gengið í gegnum margt Síðasta eina og hálfa árið hefur verið rússíbanareið hjá Plaza. Haustið 2024 þá skildi hún við Jeff Baena eftir fjögurra ára hjónaband og rúmlega fjórtán ára samband. Nokkrum mánuðum síðar, í janúar 2025, stytti hann sér aldur. Aubrey Plaza tjáði sig í fyrsta skiptið um skyndilegt Baena í hlaðvarpinu Good Hang With Amy Poehler í ágúst síðastliðnum. „Þú hefur átt þetta hræðilega, hræðilega, tragíska ár. Þú misstir eiginmanninn þinn, þú hefur verið að glíma við það og leitað leiða við að finna fyrir stuðningi. Fyrir hönd allra sem líður eins og þeir þekki þig, og fólksins sem þekkir þig, hvernig líður þér í dag?“ spurði Poehler hana í hlaðvarpinu. „Akkúrat á þessari stundu er ég glöð að vera hérna með þér,“ svaraði Plaza. „Heilt yfir er ég hér, ég er fúnkerandi og mjög þakklát að fá að upplifa heiminn. Það er í lagi með mig en, þú veist, þetta er dagleg barátta, augljóslega, sagði hún jafnframt. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólk með sjálfsvígshugsanir getur hringt í Pieta-samtökin. Píeta síminn er opinn allan sólarhringinn og er 552-2218 og vefsíðan pieta.is.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólk með sjálfsvígshugsanir getur hringt í Pieta-samtökin. Píeta síminn er opinn allan sólarhringinn og er 552-2218 og vefsíðan pieta.is.
Barnalán Bandaríkin Hollywood Tengdar fréttir Kom fram í fyrsta skipti eftir andlát eiginmannsins Bandaríska leikkonan og grínistinn Aubrey Plaza sneri í fyrsta skipti aftur á skjáinn í gærkvöld eftir andlát eiginmanns hennar, Jeff Baena. 17. febrúar 2025 15:03 Jeff Baena eiginmaður Aubrey Plaza látinn Bandaríski kvikmyndagerðarmaðurinn Jeff Baena, eiginmaður leikkonunnar Aubrey Plaza, er látinn, 47 ára að aldri. 4. janúar 2025 14:44 Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Stjörnurnar syngja inn haustið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Tim Curry er látinn Hasarmyndahjón heiðursgestir á RIFF Áhrifamikil rómantísk gamanmynd fær framhald Harington tekur við af uppteknum Hoult Ástin sem eftir er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Meghan snýr aftur á skjáinn Etur kappi við Obama og Reynolds Bautista hleypur í skarðið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bestu hlutverk Hayden Panettiere Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Ben Jones er látinn Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Sjá meira
Kom fram í fyrsta skipti eftir andlát eiginmannsins Bandaríska leikkonan og grínistinn Aubrey Plaza sneri í fyrsta skipti aftur á skjáinn í gærkvöld eftir andlát eiginmanns hennar, Jeff Baena. 17. febrúar 2025 15:03
Jeff Baena eiginmaður Aubrey Plaza látinn Bandaríski kvikmyndagerðarmaðurinn Jeff Baena, eiginmaður leikkonunnar Aubrey Plaza, er látinn, 47 ára að aldri. 4. janúar 2025 14:44