Ég hef borgað í áratugi af húsnæðisláni en skulda samt Sigurður H. Einarsson skrifar 7. apríl 2026 22:32 Ég hef borgað í áratugi af húsnæðisláni en skulda samt. Skulda meira og meira, Og nú fer ég bráðum að hætta á vinnumarkaðinum en Skulda samt. Ég fór á sjóinn, lærði vélstjórn, fór í land og lærði vélvirkjun. Allan tíman hélt ég áfram að borga af húsnæðisláni. Keypti mína fyrstu íbúð 1986. Þá vélvirkjanemi í Stálsmiðjunni. Nú líður að starfslokum, ég skulda ennþá húsnæðislán og kem til með að fara með þau með mér á eftirlaun og líklega munu erfingja mín þurfa að taka við þeim, eða gera þau upp. Hef reynt að útskýra verðtrygginguna fyrir enskum tengdarsyni mínum, sem er stærðfræðingur að mennt. Hann skilur ekki svona rugl. Ég á mér þann draum að börnin mín og barnabörn þurfi ekki að lifa við stíðsvexti og verðtryggingu. Ég mun líklega ekki lifa slíkan tíma. Hef borgar í lífeyrissjóð í rúm 50 ár, stundum bara á sumrin, stundum bara af tryggingu þegar ég var á sjó á síðustu öld. Og af grunnlaunum. Afraksturinn er 160 þús krónur í peningum , í vasan þegar búðið er að skerða og skatta. Eg tek ekki aukavinnu ,eða aukastarf lengur, bakið er viðkvæmt, kransæðarnar búnar að stíflast og lungun að gefa sig. Og lánin fylgja mér í gröfina. Jafnaldrar mínir í Noregi og Englandi eru fyrir löngu orðnir skuldlausir. Oftar en ekki hef ég heyrt að þessi kynslóð miðar við að vera skuldlaus um 50 ára aldur. En íslensku lánin hækka og hækka. Hef hlustað á efnahagsumræðuna í rúma hálfa öld. Það vantar ekki sérfræðngana sem skipta líklega þúsundum. Ný kynslóð sérfræðinga kemur fram, menntaða frá hinum ýmsum háskólum í Evrópu jafnvel S Kóreu. Þeir segja við skulum halda áfram með krónuna næstu áratugi. Sem sagt ég mun ekki lifa það að hér verði evrópuvextir með heilbrigðu húsnæðiskerfi og sanngjörnu lífeyrisskerfi. Hef lifað óraverðbólgu,hrun og lifi okurvexti sumir segja stríðsvexti. Hef lesið greinar eftir marga sérfræðinga í rúma hálfa öld, sérfræðinga sem halda því fram að við værum með besta lífeyriskerfi í heimi. Og með sanngjarnt og eðlilegt lánakerfi. Hef lesið greinar eftir marga sérfræðinga, sérfræðinga sem halda því fram að við væru með besta lífeyriskerfi í heimi en það gleymdist að reikna með skerðingum. Og ekki vantar sérfræðinga efnahagsmálum,þeir skipta hundruðum. Ekkert mál að afnema verðtryggingu sagði Sigmundur Davíð framkvæmdastjóri Wintris. En ekkert breystist sama hvaða stjón hefur verið og alltaf lofa stjórnmálamenn betri tíð með blóm í haga. Ég er orðinn leiður á þessu rugli. Ég vil skoða aðra möguleika. Ég vil kíkja í pakkann. Ég segi já við áframahaldandi viðræðum við Evrópusambandið. Höfundur er vélvirki og vélstjóri og hefur verið með íslenskt húsnæðislán í 40 ár. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Efnahagsmál Húsnæðismál Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar