„Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Boði Logason skrifar 4. apríl 2026 11:01 Mugison er fyrsti gestur Björns í hlaðvarpinu hans, Allt í lagi með Birni Skúlasyni. Hugarafl Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, segir að hann hafi leitað til sálfræðings um aldamótin eftir að hafa glímt við taugaveiklun og oföndun undir álagi. Hann hafi í fyrstu haldið að hann væri að verða geðveikur. Þetta kemur fram í fyrsta þætti af nýju hlaðvarpi í umsjón Björn Skúlasonar, forsetamaka.
Hlaðvarpið er hluti af árverkniátaki Hugarafls, Allt í lagi, sem hefur það að markmiði að opna umræðu um andlega heilsu og hvetja fólk til að nýta sér úrræði þegar á reynir. Þættirnir verða átta talsins og koma út hálfsmánaðarlega og eru sýndir á Vísi á laugardagsmorgnum. Á meðal gesta hjá Birni verða Una Torfa, Elín Hall, Páll Óskar, Alaska 1867, Jón Jónsson og Emilíana Torrini. Í fyrsta þættinum ræðir Björn við Mugison sem fer yfir víðan völl. Á meðal annars ræðir hann hvernig tónlistarferillinn fór á flug, áskoranir sem hann hefur þurft að glíma við á leiðinni á staðinn sem hann er á í dag og einnig mikilvægi þess að leita sér hjálpar við andlegum áskorunum. Klippa: Allt í lagi með Birni Skúlasyni - Mugison Mugison segist fyrst hafa leitað sér hjálpar þegar hann var ungur maður og þá staddur á námskeiði í Birmingham í Englandi. Hann hafi byrjað að ofanda og orðið taugaveiklaður. Í fyrstu hafi hann ekki vitað hvað hafi verið í gangi og hélt að hann væri að verða geðveikur. Ljós og litir hafi triggerað eitthvað hjá honum. „Og það endaði þannig að ég lá einhvers staðar á bílastæði fyrir utan einhverja búð í Bretlandi og náði ekki andanum. Þetta var rosalega vandræðalegt og maður reyndi að fela þetta. Ég sagði ekki neinum frá þessu en svo fór þetta að gerast aftur og aftur. Og maður fór alltaf afsíðis en ég fann að hausinn var algjörlega að bugast,“ segir Mugison. Hann hafi ekki viljað að sínir nánustu hefðu áhyggjur af sér og hafi því falið þessa líðan í dágóðan tíma. „Svo man ég, að ég hélt að ég væri hreinlega að deyja, að einhverju leyti. Maður er svo ýktur. Og ég vissi ekki hvað þetta var, en ég vissi að þetta væri ekki gott. Og þá fór ég bara í símaskrána og fann einhvern sálfræðing og hringdi í hann. Ég var heppinn, hann var skemmtilegur eldri maður sem sagði mér hvað þetta væri,“ segir Mugison. Sálfræðingurinn hafi útskýrt fyrir honum að þetta væri ein leið líkamans til að bregðast við áreiti. Hann hafi þurft að læra að anda, anda djúpt og hugleiða og reyna að hafa stjórn á tilfinningum áður en hann færi í þetta ástand. „Og það var yndislegt, og tók skemmri tíma en ég hélt.“ Hugarafl eru grasrótarsamtök fólks með andlegar áskoranir á Íslandi. Starfsemin er opin öllum 18 ára og eldri sem vilja vinna í geðheilsu sinni á eigin forsendum. Hún er gjaldfrjáls, óháð búsetu og ekki er krafist tilvísunar né greiningar. Horfa má á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan eða á sjónvarpssíðu Vísis.
Hugarafl - Allt í lagi Heilsa Hlaðvörp Tónlist Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Patrick Stewart látinn Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira