Kostnaður við borgarstjórn Reykjavíkur Regína Ásvaldsdóttir skrifar 1. apríl 2026 21:30 Það er ekki beinlínis fallið til vinsælda að verja kerfi þar sem launakjör kjörinna fulltrúa koma við sögu og ég ætla ekki að gera tilraun til þess. Hinsvegar langar mig að varpa ljósi á kostnaðinn við kjörna fulltrúa í Reykjavík annarsvegar og stærstu sveitarfélaga landsins hinsvegar, vegna greinar Lísbetar Sigurðardóttur lögfræðings Viðskiptaráðs undir yfirskriftinni Fremst í yfirbyggingu þar sem spjótunum er beint að Reykjavík. Í sveitarstjórnarlögum er kveðið á um það að sveitarfélög með fleiri en 100 þúsund íbúa skuli hafa 23-31 fulltrúa og að breytingin taki gildi við upphaf kjörtímabilsins 2018 - 2022. Reykjavíkurborg tók þá ákvörðun að vera í lægri kantinum af þessari tölu og sú breyting var gerð að borgarfulltrúar fengu föst laun í stað nefndarlauna eins og fyrirkomulagið var áður. Þá voru helstu ráð og nefndir skipaðar borgarfulltrúum, í stað einstaklinga sem voru ýmist í neðri sætum á listum eða með önnur tengsl við flokkana. Með þessu fyrirkomulagi var stefnt að því að efla tengslin á milliborgarfulltrúa og helstu fagnefnda þannig að það væri samfella í stefnumótun og ákvarðanatöku. Í samtali við þáttastjórnendur í Bítinu á Bylgjunni í morgun lætur Lísbet að því liggja að hærri stjórnsýslukostnaður hjá Reykjavík en öðrum sveitarfélögum sé vegna þessara fjölda borgarfulltrúa á fullum launum. Enginn samanburður var hinsvegar gerður á raunverulegum kostnaði vegna launa kjörinna fulltrúa í þeim sveitarfélögum sem borin eru saman, heldur aðeins fjallað um stjórnsýslukostnað, sem er allur miðlægur rekstur, s.s. upplýsingatækni, lögfræðiþjónusta, mannauðsmál, fjármál og rekstur osfrv. Ég skoðaði því liðinn meðferð sveitarstjórnarmálaí mælaborði Sambands íslenskra sveitarfélaga hjá þeim sveitarfélögum sem greinarhöfundur nefnir sem eru auk Reykjavíkurborgar, Garðabær, Kópavogur, Hafnarfjörður og Reykjanesbær. Liðurinn tekur til launa og rekstrarkostnaðar fyrir kjörna fulltrúa árið 2024. Þar sést að kostnaður pr. íbúa vegna launa bæjarfulltrúa er langhæstur í Garðabæ en lægstur í Hafnarfirði. Reykjavík má vel við una með 4.914 krónur pr. íbúa. Greinarhöfundur fer einnig til höfuðborga Norðurlandanna og telur út fjölda borgarfulltrúa sem eru á föstum launum þar miðað við í Reykjavík. Það er efni í aðra grein að bera saman stjórnkerfið þar en til dæmis í Osló eru 59 borgarfulltrúar í borgarstjórn og fá greitt fyrir fundarsetur og 225 fulltrúar í hverfisnefndum, sem fá annarsvegar fasta þóknun og hinsvegar nefndarlaun. Kjörnir fulltrúar í Osló eru því 264 talsins í sveitarfélagi sem telur 717 þúsund manns. Það er alveg sjálfsagt og mikilvægt að ræða fjölda borgarfulltrúa á föstum launum og hverju það hefur skilað fyrir borgarkerfið. Það væri fróðlegt að heyra frá öllum flokkum, bæði þeim sem hafa verið í meiri -og minnihluta í borgarstjórn hvort þetta fyrirkomulag er betra en það sem var áður. Það er hinsvegar ljóst að það er enginn fjárhagslegur sparnaður í kerfinu að fara tilbaka í gamla farið þar sem borgarfulltrúar voru í öðrum störfum meðfram borgarfulltrúastarfinu. Það sýna tölurnar úr Garðabæ. Höfundur er frambjóðandi í 7. sæti Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Regína Ásvaldsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar