Smámenni Snorri Sturluson skrifar 1. apríl 2026 09:32 Í æsku kynntist ég smámennum. Þetta voru strákar sem leið illa og þeir kunnu ekki annað ráð við því en að níðast á þeim sem voru minni máttar, þeim sem lágu af einhverjum ástæðum vel við höggi og gátu ekki varið sig, voru öðruvísi, áttu öðruvísi fjölskyldur, voru frá öðru landi, töluðu öðruvísi, höfðu öðruvísi húðlit, klæddu sig öðruvísi, klipptu sig öðruvísi, voru með einhverskonar andlegar eða líkamlegar áskoranir eða skáru sig á einhvern hátt frá hinu svo kallaða normi (hvað sem það nú er). Þetta var kallað stríðni, ef það keyrði um þverbak var það kallað fantaskapur og einstaka sinnum rötuðu svona mál inni á borð hjá skólastjóra, mjög sjaldan samt. Seinna var farið að kalla þessa hegðun einelti og samfélagið fór að átta sig á því hversu skaðleg þessi hegðun er og bregðast við henni. Ég hef upplifað þessa hegðun á marga vegu, ég hef verið áhorfandi að einelti, tekið þátt í því og orðið fyrir því sjálfur, ég þekki þessa vanlíðan. En ég lærði og þroskaðist upp úr þessari hegðun, ég kynntist samkennd, umburðarlyndi og manngæsku, til allra, nema fantanna, þeim þarf að mæta af ákveðni, í kærleik, en ekki af umburðar- né skeytingarleysi því það skilja þeir sem viðurkenningu á hegðun sinni og valdeflast. Í dag er hópur fólk sem hefur hátt á opinberum vettvangi, þau hafa hátt um fólk sem er öðruvísi, þau tala af sannfæringu um ógnina sem að okkur sækir vegna fólks sem er öðruvísi. Þetta öðruvísi fólk er m.a. útlendingar, transfólk, samkynhneigt fólk, fólk af öðrum litarhætti en hvítum og fólk af annarri trú en kristinni. Í grundvallaratriðum fólk sem er ekki hreinir afkomendur Skandínava og Íra sem byggðu þetta land fyrir rúmum þúsund árum og snérist til kristni árið 1000. Þessi hópur fólks er hræddur við allt sem er öðruvísi en það sjálft. Þetta fólk á bágt, það fær ekki næga hlýju og ummönnun, það er með brotna sjálfsmynd, það hefur ekki nægilegt sjálfstraust til að treysta á eigin getu og atgervi og heldur þessvegna að þau sem eru öðruvísi muni taka sviðsljósið frá þeim, stela af þeim konunum (því þessi hópur er að mestu gagnkynhneigðir karlmenn), stela af þeim vinnunni, tækifærunum og þeim lífsgæðum sem eru í boði. Í grunninn eru þetta smámenni sem halda að það sé verið að stela af sér lífsgæðum og varnarviðbragð þeirra er að finna einhvern minni máttar til að níðast á, alveg eins og smámennin á skólalóðinni sem tóku út eigin vanlíðan með einelti, fantaskap og líkamlegu ofbeldi. Þetta er ekkert nýtt í mannkynssögunni, þetta er það sem hratt helförinni af stað, þetta er það sem er að gerast í Ísrael, þetta er það sem er að gerast í Bandaríkjunum og víðar í þessum töluðum orðum, og því miður á Íslandi. Siðlausir tækifærissinnar á sviði stjórnmálanna eru næmir á svona aðstæður og sjá sér leik á borði, þeir næra þessa vanlíðan, þessa tortryggni, þennan ótta til þess að veiða atkvæði með því að beita þau sem eru öðruvísi samskonar einelti og smámennin á skólalóðinni. Það er hörmulegt að horfa upp á fólk í áhrifastöðum í samfélaginu, fólk sem þéna háar fjárhæðir í hverjum mánuði, mörg á háum launum hjá okkur skattgreiðendum, dreifa hræðsluáróðri um fólk sem er öðruvísi til að veiða atkvæði. Þau smætta og lítillækka ofangreinda hópa, leggja þá í einelti. Með þessu einelti er þetta fólk, sem er öðruvísi, sett í stöðu í samfélaginu sem er útilokandi frekar en inngildandi og í verstu tilfellum setja þau saklaust fólk í hættu með því að beinlínis beina reiði og ótta í þeirra átt. Þetta er saklaust fólk sem borgar skattana sína og sinnir fjölskyldum sínum og störfum alveg eins og aðrir íbúar þessa lands. Vegna þess að það er öðruvísi á einhvern hátt á það sér oft fáa málsvara, lítið bakland og getur illa varið sig. Það er minni máttar og berskjaldað gegn árásum. Smámennin ráðast alltaf á þá sem eru minni máttar, því þeir eru smámenni. Gefum smámennum ekki afslátt, leyfum þeim ekki að vaða uppi, mætum þeim af ákveðni, þó með kærleik, því munum að þau eiga bágt smámennin, en um umberum þau ekki, horfum ekki í hina áttina og látum sem ekkert sé, því þá valdeflast smámennin. Við viljum ekki smámenni, við viljum stórmenni, fólk með stór hjörtu, fólk sem getur séð hið góða í öllum, fólk sem vill vaxa, fólk sem vill stækka samfélagið okkar með því að virkja allt fólk, ekki minnka það með því að útiloka fólk. Ekki hlusta á smámennin. Höfundur er heimspekingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar