Vilja 140 milljarða skattalækkun og sölu ríkiseigna fyrir 680 milljarða Birgir Olgeirsson skrifar 31. mars 2026 14:10 Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Jens Garðar Helgason, varaformaður flokksins, kynntu tillögurnar í dag. Aðsend. Sjálfstæðisflokkurinn boðar 140 milljarða króna skattalækkanir, 160 milljarða króna hagræðingu í ríkisrekstri og sölu ríkiseigna fyrir meira en 680 milljarða króna samkvæmt efnahagstillögum sem flokkurinn kynnti í dag. Tillögunum er ætlað að auka ráðstöfunartekjur heimilanna, bæta rekstrarskilyrði atvinnulífsins og lækka skuldir ríkisins.
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Jens Garðar Helgason, varaformaður flokksins, kynntu tillögurnar í Valhöll í dag. Vilja afnema fjölda gjalda og skatta Í skattahlutanum eru meðal annars lagðar til víðtækar breytingar á tekjuskatti, hækkun persónuafsláttar og afnám fjölda gjalda og skatta. Þar má nefna erfðafjárskatt, útvarpsgjald, kolefnisgjald, vörugjöld á ökutæki og stimpilgjald. Þá er einnig gert ráð fyrir lægri fjármagnstekjuskatti, hærra frítekjumarki, lækkun krónutölugjalda, afnámi virðisaukaskatts af barnavörum og sérstökum skattaafslætti til barnafjölskyldna. Flokkurinn teiknar jafnframt upp mynd af því að þessar breytingar skili heimilunum auknu svigrúmi. Þannig er miðað við að einstaklingur með meðallaun fái rúmlega 300 þúsund krónur meira á ári í vasann, einstaklingur á lágmarkslaunum tæplega 160 þúsund krónur og tiltekið hjónadæmi nærri hálfri milljón króna á ári. Einnig er gengið út frá því að eldsneyti, fjölskyldubílar og fasteignaviðskipti gætu orðið ódýrari með afnámi eða lækkun tiltekinna gjalda. Vilja breyta fjármögnun RÚV Samhliða þessu boðar flokkurinn 160 milljarða króna hagræðingu í ríkisrekstri. Þar er meðal annars horft til einfaldari stjórnsýslu, minni skýrslugjafar, breytinga á eftirliti, sameininga ríkisstofnana og niðurlagningar eða skerðingar á ýmsum útgjaldaliðum ríkisins. Meðal þess sem nefnt er í því samhengi eru breytingar á fjármögnun RÚV, sameining Samkeppniseftirlitsins og Neytendastofu og afnám tiltekinna framlaga og styrkja. Þriðja stoðin í tillögunum er síðan sala ríkiseigna. Þar er lagt upp með að ráðast í söluferli á eignum þar sem opinbert eignarhald er ekki talið nauðsynlegt og nota andvirðið til að greiða niður skuldir ríkisins. Söluandvirðið er metið á meira en 680 milljarða króna og sagt geta lækkað vaxtakostnað ríkisins um meira en 45 milljarða króna. Þar undir falla meðal annars eignarhlutir ríkisins í Landsbankanum, Íslandspósti, Isavia, Landsneti og Rarik, auk fleiri félaga og fasteigna.
Sjálfstæðisflokkurinn Efnahagsmál Skattar, tollar og gjöld Rekstur hins opinbera Alþingi Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira