Forvarnir eru fjárfesting – ekki sparnaður Ellý Tómasdóttir skrifar 31. mars 2026 13:31 Ég hef setið í bæjarstjórn Árborgar síðastliðin fjögur ár og starfa jafnframt sem verkefnastjóri frístundaþjónustu og forvarnarfulltrúi. Í þessum hlutverkum hef ég séð vel hversu miklu máli skiptir að grípa snemma inn og byggja upp sterkt samfélag fyrir börn og ungmenni. Á síðustu árum hafa verið teknar ákvarðanir í rekstri sveitarfélagsins sem hafa haft áhrif á forvarnarstarf. Ég tel mikilvægt að staldra þar við og spyrja: erum við að horfa nægilega langt fram á veginn? Reynslan segir okkur að þegar dregið er úr forvörnum erum við í raun ekki að spara. Við erum að færa kostnaðinn til framtíðar. Það á sérstaklega við þegar kemur að börnum og ungmennum, þar sem snemmtæk íhlutun getur skipt sköpum. Rannsóknir hafa sýnt að markvisst forvarnarstarf, í samstarfi við skóla, foreldra og íþrótta- og æskulýðsstarf, skilar árangri. Í mínu daglega starfi sé ég þetta mjög skýrt. Ég hef séð barn sem átti erfitt með að fóta sig finna sig loksins í frístundastarfi og blómstra. Ég hef séð ungmenni fá stuðning á réttum tíma og ná að snúa við erfiðum aðstæðum. En ég hef líka séð hvað gerist þegar þessi tækifæri eru ekki til staðar. Í þessu samhengi skiptir líka máli að horfa til þeirra sem standa í fremstu línu. Í skólum, frístundastarfi og velferðarþjónustu starfar öflugt og faglegt fólk sem sinnir krefjandi og mikilvægu hlutverki á hverjum degi. Til að við náum þeim árangri sem við viljum, þurfum við að skapa aðstæður sem gera þessu fólki kleift að sinna starfi sínu af þeirri fagmennsku og alúð sem það býr yfir. Þegar vel er hlúð að þessum grunnstoðum samfélagsins skilar það sér beint í betri þjónustu og sterkari samfélagi. Þegar við náum til barna snemma og tryggjum þeim aðgengi að uppbyggilegu starfi erum við að leggja grunn að heilbrigðu samfélagi. Forgangsröðunin skiptir þar öllu máli. Þegar þrengt er að þessum þáttum, jafnvel í litlum skrefum, finnur fólk það strax í daglegu lífi. Foreldrar þurfa að hafa meira fyrir því að finna úrræði, börn missa af tækifærum og samfélagið veikist smám saman. Við þurfum að styrkja forvarnarstarf og tryggja að það sé ekki fyrsta sem verður fyrir niðurskurði. Við þurfum að efla íþrótta- og æskulýðsstarf sem nær til allra barna, óháð aðstæðum. Við þurfum að hlusta betur á þau sem standa næst börnunum – foreldra, starfsfólk og börnin sjálf og að lokum þurfum við að horfa á velferð barna og ungmenna sem fjárfestingu í framtíð samfélagsins. Fyrir mér snýst þetta ekki bara um stefnumótun eða rekstur. Þetta snýst um það hvernig samfélag við viljum vera. Samfélag þar sem hvert barn fær tækifæri til að blómstra. Samfélag þar sem við grípum þau sem þurfa á því að halda, áður en vandinn verður stærri. Samfélag þar sem gott er að búa. Þannig á Árborg að vera fyrir alla íbúa. Höfundur 2. sæti á lista Framsóknar í Árborg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Árborg Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Skoðun Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar