Telja réttarmorð framið á hjúkrunarfræðingi sem var dæmdur fyrir barnamorð Kjartan Kjartansson skrifar 30. mars 2026 15:16 Hópur sérfræðinga lagði nýlega fram álit til að styðja ósk Lucy Letby um að mál hennar verði tekið upp aftur. Margt þykir benda til þess að hún hafi verið fundin sek um morð á hæpnum forsendum. Vísir/EPA Breskur hjúkrunarfræðingur sem var dæmdur fyrir að drepa sjö börn á sjúkrahúsi var fórnarlamb réttarmorðs, að mati fyrrverandi ráðherra. Hann telur lögreglu hafa gert afdrifarík afglöp við rannsókn á dauða barnanna.
Lucy Letby var dæmd í lífstíðarfangelsi fyrir að drepa sjö ungbörn og reyna að drepa sjö til viðbótar á sjúkrahúsi í Chester þar sem hún starfaði sem hjúkrunarfræðingur árið 2015 og 2016. Henni hefur verið neitað um heimild til að áfrýja dómnum. Vaxandi gagnrýni hefur komið fram á dóminn og rannsókn lögreglu á dauða barnanna á undanförnum árum. Lögmenn Letby skutu máli hennar til sérstakrar endurupptökunefndar sem hefur það til athugunar. Davis Davis, þingmaður og Brexit-ráðherra í fyrri ríkisstjórn Íhaldsflokksins, bættist í hóp þeirra sem töluðu máli Letby í þingræðu í síðustu viku. Þar sagði hann lögregluna í Cheshire hafa klúðrað rannsókninni. Töldu Letby seka þar til þeir sáu gögn málsins Mistökin taldi hann meðal annars felast í að engir sérfræðingar í læknis- og tölfræði hefðu verið fengnir til þess að leggja mat á staðreyndir málsins og að lögreglan hefði ekki rannsakað aðrar mögulegar orsakir fyrir dauða barnanna. Mál ákæruvaldsins gegn Letby byggði á stórum hluta á fylgni sem lögregla taldi á milli dauða barnanna og þess hvenær hjúkrunarfræðingurinn var á vakt á nýburadeild sjúkrahússins. Tölufræðingar hafa deilt hart á þá nálgun þar sem þeir telja að gögn hafi verið sérvalin til þess að styðja sakir á hendur Letby. Vísaði Davis í ræðu sinni meðal annars til álits tveggja fyrrverandi lögreglumanna sem hefðu verið sannfærðir um sekt Letby þar til þeir kynntu sér staðreyndir málsins. „Þeir telja nú báðir að málið gegn Letby hafi verið réttarmorð,“ sagði þingmaðurinn. Ekki lært sína lexíu eftir rangmæta sakfellingu móður Davis sagði að lögreglan hefði hafið sakamálarannsókn á Letby eingöngu á grundvelli fundar með tveimur ráðgjöfum Chester-sjúkrahússins. Ráðgjafarnir hefðu sjálfir átt þátt í meðferð barnanna sem verið verið alvarlega ábótavant. Þegar rannsóknin var hafin hafi lögreglan ekki kalla til sérfróða matsmenn og jafnvel dregið til baka ósk um álit frá prófessor í líftölfræði. Ákæruvaldið hafi svo ekki kannað til hlítar trúverðugleika sérfræðivitna sem það kallaði til fyrir dómi. David Davis var ráðherra útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu í ríkisstjórn Íhaldsflokksins.Vísir/Getty Áður hefur komið fram að ástand á sjúkrahúsinu í Chester var erfitt á þeim tíma sem börnin létust. Húsa- og tækjakostur hafi verið slæmur og mikið álag á starfsfólki. Sakar þingmaðurinn lögregluna um að hafa ekki dregið neinn lærdóm af máli Sally Clark, konu sem var ranglega sakfelld fyrir að myrða tvo unga syni hennar árið 1999 á grundvelli rannsóknar lögreglunnar í Cheshire. Clark afplánaði þrjú ár af lífstíðardómi áður en henni var loks sleppt. Dómurinn yfir Clark byggði á gallaðri tölfræði sem sérfræðivitni ákæruvaldsins lagði fram.
Bretland Erlend sakamál Mál Lucy Letby Mest lesið Fella niður 26 flugferðir Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Erlent „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Innlent Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Innlent Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Innlent Þetta er í samkomulaginu um Grænland Erlent Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni Innlent Fleiri fréttir Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Sjá meira