Tölur um vaxandi trúrækni ungs fólks byggðar á sandi Kjartan Kjartansson skrifar 30. mars 2026 11:06 Trúðar á árlegri trúðamessu í Allraheilagrakirkjunni í London. Þeir gætu haft samúð með stjórnendum könnunarfyrirtækis sem enduðu með tertu í andlitinu eftir að þeir skiluðu biblíufélagi gallaðri skoðanakönnunun um kirkjusókn ungs fólks. Vísir/EPA Bresk skýrsla þar sem því var haldið fram að kirkjusókn ungs fólks hefði tekið gríðarlegan kipp hefur verið dregin til baka. Í ljós kom að niðurstöður könnunar byggðust að hluta til á fölskum svörum.
Miklar athygli vakti í Bretlandi þegar Biblíufélagið þar í landi birti skýrslu í fyrra þar sem kom fram að kirkjusókn fólks á aldrinum 18-24 ára hefði fjórfaldast frá 2018 til 2024, farið úr fjórum prósentum í sextán. Þróunin var kölluð „hljóðlát endurvakning“ trúar. Þrátt fyrir að félagsfræðingar bentu á að þær niðurstöður rímuðu illa við önnur gögn og jafnvel tölur ensku kirkjunnar sjálfrar um kirkjusókn var trúarvakning ungs fólks rædd á breska þinginu, í fjölmiðlum og í kirkjum vítt og breitt um landið, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Nú hefur skýrslan verið dregin til baka eftir að könnunarfyrirtækið Yougov viðurkenndi að niðurstöður í könnun sem það gerði fyrir skýrsluna hefðu ekki reynst áreiðanlegar. Fyrirtækið segir að fyrir mannleg mistök hafi svörum frá fólki sem kann að hafa svarað spurningum af handahófi til þess eins að fá þóknun fyrir að taka könnunina ekki verið eytt út. Ítrekað bent á að tölurnar væru rangar Stephan Shakespeare, forstjóri Yougov, segir fyrirtækið bera fulla ábyrgð á mistökunum og að það biðjist afsökunar á hvernig fór. Ráðist hefði verið í úttekt á könnuninni vegna þeirrar umræðu sem niðurstöðurnar sköpuðu. Biblíufélagið sem birti tölurnar í skýrslu sinni segist svikið. Fulltrúa Yougov hafi ítrekað fullvissað það um að tölurnar væru áreiðanlegar. Félagsfræðiprófessor sem gerði athugasemdir við tölurnar en fékk engin viðbrögð frá Biblíufélaginu segist á báðum áttum nú þegar sýnt hefur verið fram á að hann hafði rétt fyrir sér. „Ég veit ekki hvort ég eigi að vera sáttur við að fá uppreist æru eða pirraður yfir þeim tíma sem ég eyddi í að benda á að tölurnar væru klárlega rangar,“ segir David Voas, heiðursprófessor í félagsfræði, við BBC.
Bretland Trúmál Skoðanakannanir Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira