Ótrúleg saga Rose Dugdale Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. mars 2026 12:03 Mynd af Bridget Rose Dugdale sem lögregla dreifði árið 1980 þegar hún var grunuð um vopnasmygl. Getty Images Bridget Rose Dugdale hafði heiminn í hendi sér en ákvað að kveikja í honum. Hún fór frá því að dvelja í návist kóngafólks yfir í að verða ein eftirlýstasta og hættulegasta hryðjuverkakona Bretlandseyja.
Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Skuggavaldið rekja prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir þessa sögulegu umpólun og varpa um leið ljósi á mannskæð þjóðernisátök Norður-Írlands sem þekkt eru sem Vandræðin, eða the Troubles. Gyllta búrið og uppreisnin Saga Rose hefst í bresku yfirstéttinni á hefðarsetri í Devon. Líf hennar virtist rækilega kortlagt. Árið 1958 var hún formlega kynnt samfélaginu á sínu „debutante“-tímabili þar sem hún lærði að hneigja sig fyrir Elísabetu drottningu. Í Oxford-háskóla haustið 1959 kynntist hún nýjum, róttækum tíðaranda. Augu hennar opnuðust fyrir arðráni bresku nýlendustefnunnar sem auðæfi hennar eigin fjölskyldu byggðu á. Eftir útskrift fékk hún yfirráð yfir sjóði upp á tæpa milljón punda (sem í dag samsvarar vel yfir þremur milljörðum króna). Í stað þess að lifa hefðbundnu munaðarlífi flutti hún í fátæka verkalýðshverfið Tottenham í London, stofnaði hjálparsamtök og byrjaði markvisst að tæma sjóðinn til að greiða leigu og hitareikninga fyrir efnalítið fólk. Raunveruleikinn og átökin á Írlandi Í Tottenham kynntist hún harðgerða verkamanninum og fyrrum hermanninum Walter „Wally“ Heaton. Hann sýndi henni fram á að breska nýlenduvélin væri blóðug maskína og gerði hana að gallhörðum stuðningsmanni írska lýðveldisins. Jarðarför Rose Dugdale árið 2024 þar sem kista hennar var borin langa leið í Dublin. Getty/Brian lawless Norður-Írland var þá púðurtunna þar sem kaþólski minnihlutinn bjó við kerfisbundna mismunun og skort á mannréttindum. Breski herinn var sendur á göturnar 1969 til að róa öldurnar en varð fljótt litinn hornauga sem fjandsamlegt hersetulið. Við þetta endurreisti Írski lýðveldisherinn (IRA) sig sem harða andspyrnuhreyfingu sem markaði upphaf áratugalangra átaka. Vendipunkturinn: Blóðugi sunnudagurinn Atburðurinn sem endanlega rauf tengsl Rose við hennar fyrra líf var blóðugi sunnudagurinn þann 30. janúar 1972. Þá skutu breskir fallhlífarhermenn fjórtán óvopnaða borgara til bana í friðsamri kröfugöngu í Derry – á sömu götum og Rose og Wally höfðu stuttu áður gengið og krafist réttinda. Við þennan skelfilega atburð sannfærðist Rose um að friðsamleg mótmæli dygðu ekki gegn byssukúlum. Hún tók afstöðu með byltingarsinnum, gerðist einn herskáasti skæruliði ÍRA og stóð fyrir umfangsmiklum hernaðaraðgerðum, líkt og rakið er í nýjasta þætti Skuggavaldsins, sem nú er aðgengilegur á öllum helstu hlaðvarpsveitum og má hlusta á hér að ofan.
Skuggavaldið Írland Mest lesið Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… pitsur? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Áskorun Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Lífið „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Lífið Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Sjá meira