Kanóna frá Írlandi gestur í fyrsta hlaðvarpsþættinum Boði Logason skrifar 27. mars 2026 14:42 Grínistarnir Ari Eldjárn og Jóhann Alfreð eru sniðugir drengir og hafa heillað þjóðina með bröndurum ýmiskonar. Þeir ætla að byrja með hlaðvarp samhliða sýningum á Taskmaster á Sýn+. Vísir Ari Eldjárn og Jóhann Alfreð Kristinsson, tvíeykið sem hefur þegar unnið sér sess í hjörtum Taskmaster áhorfenda, eru að taka samstarfið á næsta stig. Þeir munu saman stýra nýju hlaðvarpi sem fylgir íslensku Taskmaster þáttunum á Sýn+. Vikulega munu þeir kafa djúpt í verkefnin, augnablikin og allt það sem gerðist á bak við tjöldin.
Gestir í fyrsta þættinu eru Sigurður Þór Óskarsson, leikari, sem er einn keppanda hér heima og írski grínistinn og þáttastjórnandinn Dara O'Briain sem fór með sigur af hólmi í 14. seríu þáttaraðarinnar í Bretlandi. „Það semsagt kviknaði þessi hugmynd að vera með smá seríu til hliðar í hlaðvarpi. Við erum að gera Taskmaster í fyrsta sinn hér á Íslandi og vildum reyna að ná aðeins betur utan allt það sem er að gerast í þáttunum og svo bara um þetta konsept sem Taskmaster er. Kíkja aðeins undir gamla góða húddið,“ segir Jóhann Alfreð í tilkynningu. „Svo var keppendahópurinn bara svo skemmtilegur líka. Við vildum ekkert hætta með þeim. Svo þau ætla að koma til okkar eitt af öðru í spjall um þeirra veru í þáttunum og þaðan verður eflaust farið um víðan völl. Þetta á að vera kannski svipað langt og þættirnir sjálfir, svona um 40-50 mínútur hver þáttur og vera gott aukakrydd fyrir öll þau sem vilja kafa aðeins dýpra,“ segir Ari. Dara O'Briain er einn þekktasti grínasti Írlands. Hann er gestur í fyrsta hlaðvarpsþætti Taskmaster.Getty Í tilkynningu segir að þættirnir hafi fengið góð viðbrögð frá notendum á efnisveitunni Sýn+ og að miklar umræður hafi skapast á samfélagsmiðlum eftir hvern þátt. Hlaðvarpið eigi að vera svar við þeirri eftirspurn. „Dara O'Briain, grínisti frá Írlandi var á línunni í fyrsta þætti og sagði okkur aðeins frá sinni þátttöku úti í Bretlandi. Hann er auðvitað kanóna þar, hefur stýrt fjölda þátta og vann sína seríu sem er af mörgum aðdáendum talin ein sú skemmtilegasta sem hefur farið í loftið. Við vildum leyfa þeim aðeins að bera saman bækur, honum og Sigga, um hvernig er að keppa og taka þátt í þessu. Það var svolítið skemmtilegt hvað þeir lýstu svipaðri upplifun varðandi að vera keppandi. Ari kannast við þó nokkra sem hafa tekið þátt úti og ég geri ráð fyrir að við eigum eftir að setja okkur í samband við einhverja fleiri,“ segir Jóhann Alfreð. Hlaðvarpið verður aðgengilegt á Tal og öllum helstu hlaðvarpsþjónustum. Vísir er í eigu Sýnar.
Taskmaster – Ísland Grín og gaman Sýn Hlaðvörp Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Smáralind breytist í tímavél um helgina Lífið samstarf Fleiri fréttir Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Sjá meira