Margt að sjá í nýrri stiklu fyrir þættina um Harry Potter Magnús Jochum Pálsson skrifar 26. mars 2026 10:33 Harry Potter, Hermione Granger, Severus Snape og Albus Dumbledore koma öll við sögu í þáttunum. Fyrsta stiklan fyrir nýju HBO-þættina um galdradrenginn Harry Potter er komin út. Þar má sjá Potter meðal mugga, örlagaríka heimsókn Hagrids, lestarferðina til Hogwarts og þríeykið sameinað. Fyrsta þáttaröðin tekur fyrir fyrstu bókina, Harry Potter og viskusteininn, í átta þáttum.
Þróun þáttanna hófst í janúar 2021, leit að næstu ungu stjörnum seríunnar hófst haustið 2024 þar sem 32 þúsund barnaleikarar sóttu um aðalhlutverkin þrjú og um vorið 2025 var búið að velja þau McLaughlin, Stout, og Stanton í hlutverk Harry, Rons og Hermionear. Francesca Gardiner hefur yfirsýn yfir þættina (e. show-runner), Mark Mylod er leikstjóri þeirra og J.K. Rowling yfirframleiðandi þeirra. Tökur fyrstu þáttaraðarinnar fóru fram síðasta sumar í Englandi og verður fyrsta þáttaröðin frumsýnd á HBO Max næstu jól. Hörðustu Potter-aðdáendurnir hafa beðið eftir þáttaröðinni með töluverðri væntingu og margir forvitnir að sjá hvernig tekst til með nýjum leikurum og lengri frásögn (átta klukkutímum í stað tveggja). Undanfarið hafa birst myndir af persónunum en nú loksins er fyrsta stiklan komin. Kunnugleg andlit í bland við nýgræðinga Stiklan hefst þar sem Harry (Dominic McLaughlin) má þola stríðni í skólanum og harðræði heima fyrir þar sem hann býr með mugga-frændfólki sínu. Heyra má frænkuna Petuniu Dursley (Bel Powley) segja: „Þú heldur að þú sért sérstakur? Það er ekkert sérstakt við þig.“ Því næst sést frá heimsókn vinalega risans Hagrid (sem er leikinn af gamanleikaranum Nick Frost sem margir þekkja úr myndum Edgars Wright) í muggaheima þar sem hann segir drengnum frá galdraskólanum Hogwarts og foreldrum hans heitnum. Harry hleypur í átt að brautarpalli 9 og 3/4 áður en Hogwarts-lestin rennur í hlað. Þá sjást ýmis brot frá Hogwarts-skóla: Harry í quidditch-búningi, kennslustundir í galdrafræðum og þekkt nöfn á borð við Severus Snape (Paapa Essiedu), Minervu McGonagall (Janet McTeer) og Albus Dumbledore (John Lithgow) koma einnig við sögu. Útlit þáttanna virðist munu vera nokkuð áþekkt upprunalegu myndunum nema kannski ívið dekkra hvað myndatöku og lýsingu varðar. Stiklunni lýkur svo þar sem áhorfendur sjá Harry um borð í Hogwarts-lestinni með Hermione og Ron og sá rauðhærði spyr: „Ertu virkilega Harry Potter?“
Bíó og sjónvarp Bretland Bókmenntir Hollywood Tengdar fréttir Næsti Dumbledore fundinn Allt bendir til þess að bandaríski leikarinn John Lithgow muni leika galdrakarlinn Albus Dumbledore í nýrri þáttaröð um Harry Potter. 13. febrúar 2025 15:16 Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Hvað veistu um… London? Lífið Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Stjörnurnar syngja inn haustið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Tim Curry er látinn Hasarmyndahjón heiðursgestir á RIFF Áhrifamikil rómantísk gamanmynd fær framhald Harington tekur við af uppteknum Hoult Ástin sem eftir er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Meghan snýr aftur á skjáinn Etur kappi við Obama og Reynolds Bautista hleypur í skarðið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bestu hlutverk Hayden Panettiere Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Ben Jones er látinn Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Sjá meira
Næsti Dumbledore fundinn Allt bendir til þess að bandaríski leikarinn John Lithgow muni leika galdrakarlinn Albus Dumbledore í nýrri þáttaröð um Harry Potter. 13. febrúar 2025 15:16