Lindex opnar þar sem Next var áður Atli Ísleifsson skrifar 26. mars 2026 07:54 Um verður að ræða stærstu Lindex-verslun sem hefur verið rekin á Íslandi. Aðsend S4S ehf. hefur undirritað leigusamning við Kringluna um nýtt verslunarrými fyrir Lindex á Íslandi. Verslunin mun opna í maí og verður staðsett í 955 fermetra rými við hlið H&M þar sem Next hefur verið til húsa undanfarin ár.
Í tilkynningu segir að þetta verði stærsta verslun sem Lindex hefur opnað á Íslandi. Fram kemur að með nýju og stærra rými skapist tækifæri til að bjóða enn fjölbreyttara vöruúrval og bætta verslunarupplifun í samræmi við nýjustu verslunarstaðla Lindex. Tinna Sigrún Pétursdóttir er markasstjóri S4S.Aðsend Haft er eftir Tinnu Sigrúnu Pétursdóttur, markaðsstjóra S4S, að það sé félaginu mikil ánægja að vera komin með verslunarrými í Kringlunni. „Netverslunin og Lindex-klúbburinn hafa farið afar vel af stað og við finnum að það er mikil eftirvænting hjá viðskiptavinum til að geta heimsótt nýjar og glæsilegar Lindex verslanir“. Unnur María Pálmadóttir. Þá er haft eftir Unni Maríu Pálmadóttur, markaðsstjóra Kringlunnar, að Lindex hafi um langt skeið skipað mikilvægan sess í hugum viðskiptavina Kringlunnar og notið þar mikilla vinsælda. „Það er okkur því sérstaklega ánægjulegt að Lindex verði áfram hluti af Kringlunni og styrki enn það fjölbreytta úrval verslana sem við bjóðum viðskiptavinum okkar.“ Fyrr í mánuðinum var greint frá í að S4S hafi skrifað undir samning um opnun verslunar í Smáralind þar sem Útilífs var áður. Fyrirtækið S4S tók formlega við Lindex-umboðinu 1. mars síðastliðinn af LKA19 sem er í eigu hjónanna Alberts Þórs Magnússonar og Lóu Dagbjartar Kristjánsdóttur.
Kringlan Reykjavík Verslun Tengdar fréttir Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Verslun Kappahl í Smáralind verður opnuð klukkan 12, laugardaginn 14. mars næstkomandi. Á sama tíma verður opnar vefverslunin kappahl.is. 12. mars 2026 09:07 Opna Lindex þar sem Útilíf var S4S hefur undirritað leigusamning við Smáralind um nýtt verslunarrými fyrir Lindex á Íslandi. Rýmið er 675 fermetrar að stærð og er staðsett við hlið Hagkaupa í Smáralind, þar sem Útilíf var áður til húsa. 9. mars 2026 13:08 Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Nýjar verslanir Lindex í Kringlunni, Smáralind og á Akureyri verða opnaðar á vormánuðum. Fyrirtækið S4S tekur formlega við Lindex-umboðinu 1. mars næstkomandi og opnar fyrir netsölu í gegnum lindex.is í byrjun mars, þar sem bilið verður brúað fram að opnun verslananna. 20. febrúar 2026 07:49 Mest lesið „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Sjá meira
Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Verslun Kappahl í Smáralind verður opnuð klukkan 12, laugardaginn 14. mars næstkomandi. Á sama tíma verður opnar vefverslunin kappahl.is. 12. mars 2026 09:07
Opna Lindex þar sem Útilíf var S4S hefur undirritað leigusamning við Smáralind um nýtt verslunarrými fyrir Lindex á Íslandi. Rýmið er 675 fermetrar að stærð og er staðsett við hlið Hagkaupa í Smáralind, þar sem Útilíf var áður til húsa. 9. mars 2026 13:08
Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Nýjar verslanir Lindex í Kringlunni, Smáralind og á Akureyri verða opnaðar á vormánuðum. Fyrirtækið S4S tekur formlega við Lindex-umboðinu 1. mars næstkomandi og opnar fyrir netsölu í gegnum lindex.is í byrjun mars, þar sem bilið verður brúað fram að opnun verslananna. 20. febrúar 2026 07:49