Úttekt á loftslagsstjórnsýslu frestast fram á haust Kjartan Kjartansson skrifar 24. mars 2026 08:36 Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu í Borgartúni var tilkynnt um stjórnsýsluúttektina síðasta haust og átti henni þá að ljúka í vor. Nú er ljóst að lyktir hennar frestast fram á haust. Vísir/Vilhelm Ríkisendurskoðun stefnir nú að því að ljúka úttekt á stjórnsýslu loftslagsmála í haust eftir að hún reyndist tímafrekari en áætlað var í upphafi. Stofnunin réðist í úttektina eftir að stjórnvöld leiðréttu framlag sitt til Parísarsamningsins síðasta haust.
Upphaflega ætlaði Ríkisendurskoðun að ljúka stjórnsýsluúttektinni í vor. Í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis segir stofnunin að úttektin sé í vinnslu en að hún hafi tekið lengri tíma en áætlað var. Nú sé stefnt að því að ljúka henni í haust. Stofnunin sendi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu bréf í nóvember þar sem því var tilkynnt um úttektina. Þá hafði ríkisstjórnin nýlega leiðrétt svonefnt landsákvarðað framlag um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda til Parísarsamningsins. Leiðréttingin var gerð eftir að í ljós kom að stjórnvöld höfðu misskilið eðli samstarfs þeirra við Evrópusambandið í loftslagsmálum um árabil og skilað inn markmiði Evrópusambandsins í stað þess að senda inn sjálfstætt losunarmarkmið. Væntur árangur ekki verið metinn Úttekt Ríkisendurskoðunar er annars vegar sögð árangursmiðuð og beinast að því hvort stjórnsýsla loftslagsmála sé skipulögð með tilliti til árangurs, hvort markmið séu vel skilgreind og mælanleg og hvernig aðgerðaáætlun loftslagsmáli stuðli að árangri. Hins vegar beinist úttektin að skipulagi stjórnsýslulegs kerfis sem hefur verið byggt upp í kringum málaflokkinn. Stofnunin skoðar meðal annars hvort ábyrgðarskipting sé skýr, hvort samstarf ráðuneyta sé til staðar og hvernig upplýsingum og skýrslum sé miðlað. Fyrsta aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda í loftslagsmálum var sett fram af ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Vinstri grænna og Framsóknarflokks árið 2018 og hefur verið uppfærð tvisvar síðan, síðast árið 2024. Sætt hefur gagnrýni í aðgerðaáætlunum að stjórnvöld hafi ekki látið meta hversu miklum samdrætti í losun eða bindingu kolefnis hver aðgerð eigi að skila til þess að Ísland geti mætt alþjóðlegum skuldbindingum sínum.
Loftslagsmál Stjórnsýsla Ríkisendurskoðun Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Framlag Íslands til Parísarsamningsins óháð ESB-markmiði Ísland er með sjálfstæða aðild að Parísarsamninginum sem er ekki háð samstarfi við Evrópusambandið, að sögn fulltrúa sendinefndar sambandsins á Íslandi. Stjórnvöld þurftu nýlega að leiðrétta losunarmarkmið sem var skilað til samningsins vegna misskilnings um eðli samstarfsins við ESB. 13. nóvember 2025 07:01 Áralangur misskilningur um losunarmarkmið Íslands Íslensk stjórnvöld virðast hafa misskilið eigin skuldbindingar vegna Parísarsamningsins um árabil. Misskilningurinn er meðal annars sagður hafa orðið til þess að Alþingi fékk misvísandi upplýsingar um markmið Íslands. 12. nóvember 2025 07:01 Ísland gat ekki gert losunarmarkmið ESB að sínu Íslensk stjórnvöld þurfa að setja sér sitt eigið losunarmarkmið gagnvart Parísarsamkomulaginu eftir að í ljós kom að þau gátu ekki látið duga að vísa til samstarfs síns við Evrópusambandið. Þau nýta sér jafnframt ýtrasta frest til þess að uppfæra markmiðið sem átti að skila síðasta vetur. 26. ágúst 2025 08:51 Mest lesið Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Sniðganga Hvíta húsið Erlent Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Innlent Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Sjá meira
Framlag Íslands til Parísarsamningsins óháð ESB-markmiði Ísland er með sjálfstæða aðild að Parísarsamninginum sem er ekki háð samstarfi við Evrópusambandið, að sögn fulltrúa sendinefndar sambandsins á Íslandi. Stjórnvöld þurftu nýlega að leiðrétta losunarmarkmið sem var skilað til samningsins vegna misskilnings um eðli samstarfsins við ESB. 13. nóvember 2025 07:01
Áralangur misskilningur um losunarmarkmið Íslands Íslensk stjórnvöld virðast hafa misskilið eigin skuldbindingar vegna Parísarsamningsins um árabil. Misskilningurinn er meðal annars sagður hafa orðið til þess að Alþingi fékk misvísandi upplýsingar um markmið Íslands. 12. nóvember 2025 07:01
Ísland gat ekki gert losunarmarkmið ESB að sínu Íslensk stjórnvöld þurfa að setja sér sitt eigið losunarmarkmið gagnvart Parísarsamkomulaginu eftir að í ljós kom að þau gátu ekki látið duga að vísa til samstarfs síns við Evrópusambandið. Þau nýta sér jafnframt ýtrasta frest til þess að uppfæra markmiðið sem átti að skila síðasta vetur. 26. ágúst 2025 08:51