Ekki vera sjálfsafgreiðslukassi! Þorsteinn Valdimarsson skrifar 24. mars 2026 08:15 Á Íslandi eru nú 412.936 manns skráð búsett– þar af eru 84.693 erlendir ríkisborgarar – rúm 20% landsmanna.[1] Þetta er að miklum meirihluta fólk sem hefur flutt hingað til lands í atvinnuskyni, meirihluti þeirra frá Evrópska efnahagssvæðinu. Fólk sem atvinnulífið kallar eftir og þarf á að halda. Fólk sem leggur sitt á vogarskálarnar og greiðir auðvitað skatta og gjöld eins og við hin og vinnur sér inn réttindi hinnar samfélagslegu samtryggingar sem við erum svo heppin að búa við. Fólk sem vinnur fjölbreytt störf, mörg koma með nauðsynlega sérfræðiþekkingu til landsins, og mörg sem taka að sér grunnþjónustu í kerfunum okkar: þrif, umönnun, og framlínu iðnaðar, verslunar og þjónustu. Mörg þeirra byrja sem „starfsmenn á plani“, eins og við gerðum flest þegar við hófum þátttöku á atvinnumarkaði. Er þetta allt saman fólk á flótta? Til að taka af öll tvímæli um það – því þessum tölum er oft ruglað saman í opinberri umræðu– er aðeins lítið brot af þessum fjölda flóttafólk. Flóttafólk kemur í gegnum verndarkerfið okkar, kerfi sem ætlað er að tryggja þeim sem hafa ástæðu til að óttast um líf og velferð sína í heimalandi vernd. Ef talin eru saman þau sem hafa fengið vernd á Íslandi á árunum 1997 – 2024 er fjöldinn 9.748 einstaklingar. Þar af er rétt rúmur helmingur (4.913 manns) Úkraínumenn sem hafa sest hér að eftir 2022 á grundvelli fjöldaflóttaákvæðisins. Fjöldi flóttafólks á landinu utan Úkraínumanna er því undir 5.000 manns, eða tæp 6% erlendra ríkisborgara[2] í landinu, um 1,2% íbúa landsins.[3] „Af hverju get ég ekki bara pantað kaffi á íslensku?“ Þessa spurningu, eða tilbrigði við hana, heyri ég oft út undan mér og viðurkenni að stundum hvarflar hún að manni sjálfum. Okkur þykir vænt um móðurmálið og viljum helst nota það í daglegu lífi en ekki aðeins til hátíðabrigða með nánustu fjölskyldu. Sé reynt að svara spurningunni af einlægni en ekki hálfkæringi má benda á að vinnandi fullorðið fólk mætir ýmsum áskorunum þegar kemur að því að tileinka sér sjaldgæft og kenjótt tungumál okkar í hjáverkum. Samkvæmt samanburðarrannsókn sem gerð var fyrir norrænu ráðherranefndina árið 2022 eru helstu áskoranir fullorðinna innflytjenda við upptöku tungumáls eftirfarandi: Takmarkaður tími vegna annarra skuldbindinga, mismunandi menntunarbakgrunnur, aðgengi náms, og síðast en ekki síst skortur á samfélagsneti og tækifærum til æfinga.[4] „Would you like it in a cone or a box?“ Þessa spurningu fékk ég eitt sinn við afgreiðslu í ísbúð. Ég man þetta enn þó að yfir tuttugu ár séu síðan, svo svekkjandi þótti mér spurningin. Þetta var þegar ég var unglingsdrengur nýfluttur til Noregs að reyna að stauta mig fram úr því að panta ís á norsku. Afgreiðslukonan – norsk – missti þolinmæðina og skipti á tungumál sem allir skildu. En þetta sat í mér því ég hefði svo miklu frekar viljað hafa tíma til að vanda mig og æft mig að panta á málinu sem ég var að læra. „Við hvern getum við eiginlega talað íslensku?“ Þá saklausu spurningu fékk ég fyrir nokkru frá myndarlegum írönskum hjónum sem voru nýkomin með vernd hér á landi og ég hitti á förnum vegi. Á meðan þau biðu í hæliskerfinu eftir úrlausn sinna mála höfðu þau nýtt tímann og sótt ókeypis kennslustundir í íslensku sem sjálfboðaliðar Rauða krossins sinntu. En þegar kom að frekari æfingu höfðu þau strandað á skeri. „Í þeim löndum sem við höfum búið í og heimsótt áður kynntumst við samfélaginu með því að fara á markaðinn – maður æfist í tungumálinu við að ræða um verð og gæði við sölufólk. Hér eru bara sjálfsafgreiðslukassar sem taka á móti okkur í búðunum“. Mig rak í vörðurnar þegar kom að því að svara þessari einföldu spurningu – sagði eitthvað um að prófa að fara í sund, þar ofaní eru a.m.k. engar vélar sem sjá um félagstengslin. En betur má ef duga skal. Hlutverk stjórnvalda - hlutverk samfélagsins Auðvelt er að benda á hið opinbera og að þar þurfi að gera betur. Ísland er stórkostlegur eftirbátur annarra OECD-landa í framlögum til tungumálakennslu fullorðinna innflytjenda[5], en það er efni í aðra grein. Það er einnig okkar, almennings í landinu að búa til tækifæri í hversdeginum fyrir íslenskuna að dafna. Rauði krossinn hefur beitt sér í þessum málaflokki með ýmsum verkefnum, sjálfboðaliðar víða um land skapa í viku hverri vinaleg og örugg rými til að æfa sig á íslensku. Ég þykist viss um að miklu fleiri vilji leggja sitt á plóg. Það er miklu betri tilfinning að leggja sitt af mörkum til að leysa vanda heldur en að sitja aðgerðalaus og kvarta yfir honum. Því þetta er hvergi nærri óyfirstíganleg áskorun – en það þarf að efla starfið. Við höfum í starfi okkar með flóttafólki búið til ókeypis, vinaleg og aðgengileg rými þar sem íslenskumælandi sjálfboðaliðar eru tilbúnir að mæta þeim sem eru að læra málið með opnum hug. Við erum þolinmóð, við tölum hægt, við endurtökum okkur ef þarf. Við útskýrum en leiðréttum ekki um of, það má gera mistök. Við fáum okkur kaffi, við spilum, spjöllum og höfum gaman. Umfram allt tölum við saman íslensku. Til brýningar: Starf sjálfboðaliða í tungumálaþjálfun kemur ekki í staðinn fyrir formlegt nám – heldur er því til stuðnings. Vettvangur til að beita þeirri þekkingu sem fólk öðlast í formlegu námi. Vinnum í málinu! Ég finn mikinn meðbyr núna í íslensku samfélagi með íslensku máli. Vitundarvakningu um að það er okkar allra að varðveita málið sem aðferð daglegra samskipta hér á landinu. Við þurfum öll að gera betur. Ég kalla eftir fleiri íslenskumælandi til að ganga til liðs við okkur. Dropinn holar steininn, við getum öll lagt okkar af mörkum til að tryggja tilvist íslenskunnar í daglegu lífi. Það er ekki nauðsynlegt að vera málfræðingur eða hafa kennararéttindi. Með réttu grunnþjálfuninni getum við flest reynst virkilega gagnleg þeim sem eru að læra málið. Með reglulegri notkun málsins kemur færni og sjálfstraust. Æfingin skapar meistarann. Því fleiri sem eru tilbúin til að hjálpa okkur, því meira getum við gert. Legðu þitt af mörkum. Höfundur er verkefnastjóri hjá Rauða krossinum og bíður spenntur eftir að heyra í tilvonandi sjálfboðaliðum. [1] Íbúar landsins | Þjóðskrá [2] Ætla má að hlutfallið sé enn lægra ef reiknuð er inn í dæmið sú staðreynd að hluti þessara tæpu 5.000 manns hafa nú þegar staðist aðlögunarkröfur um ríkisborgararétt, þ.m.t. um íslenskukunnáttu, og teljast því íslenskir ríkisborgarar í dag – en við skulum ekki flækja málið um of. [3] Stjórnarráðið | Upplýsingavefur verndarmála [4] Language Training Services for Adult Immigrants in the Nordic Countries [5] https://www.oecd.org/en/publications/skills-and-labour-market-integration-of-immigrants-and-their-children-in-iceland_96adc300-en/full-report/component-6.html#title-1d11de582c Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun Skoðun Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun