Viska og FÍN byggja óhagnaðardrifið húsnæði fyrir háskólamenntaða Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir og Þorkell Heiðarsson skrifa 24. mars 2026 07:32 Fyrir helgi skrifuðu Viska og FÍN – Félag íslenskra náttúrufræðingaundir samkomulag um stofnun óhagnaðardrifins húsnæðisfélags. Þetta er í fyrsta sinn sem stéttarfélög háskólamenntaðra ráðast í uppbyggingu á óhagnaðardrifnu húsnæði fyrir félagsfólk í húsnæðisvanda. Eins og staðan er í dag hafa um 40 þúsund einstaklingar í um 30 stéttarfélögum háskólamenntaðra utan ASÍ og BSRB ekkert aðgengi að slíkum úrræðum. Því viljum við breyta. Fólk með háskólamenntun þarf einnig á aðstoð að halda Í umræðu um kjör háskólamenntaðra er ítrekað tönnlast á þeirri mýtu að allt háskólamenntað fólk falli utan tekju- og eignaviðmiða laga um almennar íbúðir. Það er af og frá. Í nýlegri könnun Visku og FÍN kemur í ljós að 11% af rúmlega 8.000 félagsfólki félaganna tveggja falla undir núverandi viðmið um almennar íbúðir. Fólkið sem helst þarf á aðstoð að halda eru einstæðir foreldrar eða ungt fólk sem vinnur fyrir lág laun t.d. í heilbrigðiskerfi og háskólunum. Mörg segjast vera föst á leigumarkaði og rúmlega 90% segjast þurfa fjárhagslega aðstoð frá aðstandendum til að kaupa sér íbúðarhúsnæði, en telur ólíklegt að þau fái hana. Með því að niðurgreiða húsnæðiskostnað félagsfólks með óhagnaðardrifnum leigukostum geta Viska og FÍN aukið velferð félagsfólks og ýtt undir sparnað, hvort sem fólk hefur í hyggju að kaupa síðar eða velur að vera áfram á leigumarkaði. Hundrað þúsund króna meðgjöf á mánuði skiptir miklu Frá því að lög um almennar íbúðir tóku gildi á árinu 2016 hafa ríki og sveitarfélög veitt stofnframlög til byggingar eða kaupa á um 2.600 íbúðum. ASÍ, BSRB, ÖBÍ, samtök námsmanna og fleiri hafa nýtt sér þessi stofnframlög og hafa af miklum metnaði byggt upp raunverulega valkosti fyrir félagsfólk sitt sem þarf á aðstoð að halda. Flestar þessar íbúðir eru í Reykjavík og samkvæmt nýjustu upplýsingum áformar borgin að 45% nýbyggðra íbúða næstu árin verði niðurgreidd húsnæðisúrræði. Þetta þýðir að sífellt stærra mengi íbúða á verðmætum svæðum verður frátekið fyrir félagsfólk ASÍ, BSRB, ÖBÍ eða námsfólk á næstu árum. Þau sem falla utan þessa hóps, þar á meðal félagsfólk Visku og FÍN, munu horfa fram á hærri húsnæðiskostnað og takmarkaðra framboð. Ekkert þeirra mun að óbreyttu njóta meðgjafar frá ríki og sveitarfélögum. Sú meðgjöf er veruleg því leiguverð almennra íbúða getur verið allt að þriðjungi lægra en á almennum markaði sem oft nemur rúmlega hundrað þúsund krónum á mánuði. Það munar um minna og sérstaklega fyrir ungt fólk og einstæða foreldra sem eiga langt nám að baki, bera byrðar af námslánum og koma seinna út á vinnumarkaðinn en aðrir hópar. Við ætlum ekki að bíða eftir breytingum Með stofnun óhagnaðardrifins húsnæðisfélags stígum við í Visku og FÍN mikilvægt fyrsta skref í átt að auknu húsnæðisöryggi og réttlátara húsnæðiskerfi fyrir okkar félagsfólk. Markmiðið er skýrt; að skapa raunveruleg úrræði fyrir þann hóp sem hingað til hefur staðið utan kerfisins þrátt fyrir augljósa þörf. Við ætlum ekki að bíða eftir breytingum heldur hrinda þeim í framkvæmd. Höfundar eru formenn Visku og FÍN Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Húsnæðismál Stéttarfélög Mest lesið Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Áhugaverðar ákvarðanir Sigurður Ingi Friðleifsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira