Malbiksskemmdir gríðarlegar þetta árið Kristján Már Unnarsson og Rafn Ágúst Ragnarsson skrifa 18. mars 2026 21:00 Þorvarður Kristjánsson, framkvæmdastjóri GSG ehf. Lýður Valberg Verktaki sem annast holufyllingar á stofnbrautum höfuðborgarsvæðisins segir malbiksskemmdir gríðarlegar þetta árið. Hann kennir umhleypingum um en einnig uppsafnaðri innviðaskuld.
Malbiksviðgerðarflokkur frá verktakanum GSG var í dag að gera við holur á Vesturlandsvegi við Grafarholt. „Þetta er gríðarlega mikið. Þetta er meira heldur en við áttum nokkurn tímann von á,“ segir Þorvarður Kristjánsson, framkvæmdastjóri GSG ehf. Umhleypingar, þegar frystir og þiðnar á víxl, segir hann fara verst með göturnar. „Ef það byrjar að frysta snemma og svo þiðnar aftur er það okkar versti óvinur. Það þarf ekki nema eina sprungu og vökvinn kemst niður og þá er það verða smá umhleypingar er komin hola. Við sjáum það í janúar þegar það var mjög óvenjulegt veðurfar hérna, þá var þetta ekki að opnast eins hratt og mikið og núna. En nú er þetta orðið ansi kröftugt,“ segir hann. Gert við malbiksskemmdir á Vesturlandsvegi við Grafarholt í dag.Lýður Valberg Þeir nota sérstaka viðgerðarblöndu malbiks í holurnar, sem inniheldur meiri tjöru. „Mér finnst þetta vera að versna ár frá ári. Ég held að við séum enn að súpa seiðið af stórri innviðaskuld sem er búin að vera að safnast upp allar götur frá því að hrunið átti sér stað,“ segir Þorvarður. Malbikinu dreift yfir skemmdina.Lýður Valberg Fyrirtækið sinnir stofnbrautum á Suðursvæði Vegagerðarinnar, sem nær yfir suðvesturhornið. „Við erum með þannig ákvæði að við þurfum að vera snöggir að stökkva til þegar það eru neyðartilfelli,“ segir hann.
Vegagerð Umferðaröryggi Tengdar fréttir Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Fjármálaráðherra segir ríkisvaldið aldrei hafa kynnt eins mörg fjárfestingarverkefni og í ár. Stærstu útboð ársins verða hjá Landsvirkjun en mestu framkvæmdirnar hjá Vegagerðinni. 20. janúar 2026 22:44 Viðhaldsskuld upp á 680 milljarða króna Uppsöfnuð viðhaldsskuld í innviðakerfinu á Íslandi er áætluð 680 milljarðar króna og „gengur ekkert“ að vinna hana niður. Til samanburðar mældist innviðaskuldin 420 milljarðar króna í sambærilegri úttekt sem gerð var fyrir fjórum árum. Mest er uppsöfnuð viðhaldsskuld í vegakerfinu eða á bilinu 265 til 290 milljarðar króna. 12. febrúar 2025 13:16 Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Sjá meira
Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Fjármálaráðherra segir ríkisvaldið aldrei hafa kynnt eins mörg fjárfestingarverkefni og í ár. Stærstu útboð ársins verða hjá Landsvirkjun en mestu framkvæmdirnar hjá Vegagerðinni. 20. janúar 2026 22:44
Viðhaldsskuld upp á 680 milljarða króna Uppsöfnuð viðhaldsskuld í innviðakerfinu á Íslandi er áætluð 680 milljarðar króna og „gengur ekkert“ að vinna hana niður. Til samanburðar mældist innviðaskuldin 420 milljarðar króna í sambærilegri úttekt sem gerð var fyrir fjórum árum. Mest er uppsöfnuð viðhaldsskuld í vegakerfinu eða á bilinu 265 til 290 milljarðar króna. 12. febrúar 2025 13:16