Þörf á tafarlausum framkvæmdum í samgöngumálum Hafnfirðinga Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar 17. mars 2026 07:47 Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á yfirstandandi kjörtímabili ítrekað sett samgöngumál í bænum á dagskrá og barist fyrir úrbótum í þeim. Hafnfirðingar vita sem er að samgönguinnviðir í bænum eru víða komnir að þolmörkum og að þörf er á tafarlausum aðgerðum. Fulltrúar Samfylkingarinnar hafa margoft bent á þessar staðreyndir á kjörtímabilinu en oftar en ekki talað fyrir daufum eyrum meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks. Fáum við umboð kjósenda í sveitarstjórnarkosningum 16. maí nk. þá munum við sjá til þess að stefna og sýn bæjarstjórnar verði skýr þannig að enginn velkist í vafa um hver vilji bæjarstjórnar er í þessum efnum og við munum láta verkin tala. Langt í framkvæmdir í Hafnarfirði Sama hvar borið er niður þá er Hafnarfjörður aftarlega á merinni þegar kemur að framkvæmdum í Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Þar gildir einu hvort um er að ræða framkvæmdir sem lúta að almenningssamgöngum og uppbyggingu borgarlínu eða stórum samgöngubótum eins og á Reykjanesbrautinni frá N1 hringtorginu og áfram í átt að Kaplakrika. Hér hafa bæjaryfirvöld einfaldlega sofið á verðinum og ekki tekist að halda sjónarmiðum og hagsmunum Hafnarfjarðar nægjanlega vel á lofti. Stefnir í ófremdarástand við Suðurhöfn Suðurhöfn er eitt þeirra svæða í bænum þar sem við blasir að aðgerða er þörf strax. Umferðargreining sem unnin var fyrir Hafnarfjarðarbæ í tengslum við fyrirhugaða uppbyggingu á hafnarsvæðinu leiðir í ljós að gatnakerfið er þegar komið að þolmörkum. Þegar svo við bætast áform um uppbyggingu íbúða fyrir um 3000 manns og nýs Tækniskóla fyrir um 3000 nemendur og starfsfólk þá er ljóst að það stefnir í algjört ófremdarástand ef ekki verður gripið til aðgerða. Þess vegna hefur Samfylkingin endurtekið kallað eftir því að bærinn hefji formlegar viðræður við Betri Samgöngur m.a. vegna þess að í ljós hefur komið að uppfæra verður Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins þar sem ekki er gert ráð fyrir sérrými fyrir borgarlínu frá verslunarmiðstöðinni Firði að Suðurhöfn. Hvað þá lengra í átt að Völlunum. Í ljósi fyrrnefndrar uppbyggingar er gríðarlega mikilvægt að tryggja góðar tengingar almenningssamgangna við svæðið. Í þessum efnum verður bæjarstjórn að tala með skýrum og afgerandi hætti í þágu bæjarbúa en því miður hefur verulega skort á það hjá núverandi meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í þessu máli og það verið látið reka á reiðanum. Reykjanesbraut að N1 hringtorgi og í átt að Kaplakrika - flöskuháls sem kallar á tafarlausar framkvæmdir Annar flöskuháls í umferðinni sem Hafnfirðingar þekkja vel er Reykjanesbrautin að N1 hringtorginu og svo áfram í átt að Kaplakrika. Á vissum tímum sólarhringsins er umferðarþunginn slíkur að illmögulegt er fyrir þá sem koma úr Setberginu eða af Lækjargötunni að komast inn á Reykjanesbrautina. Slíkur er vandinn að lengi hefur verið rætt um að koma á einhvers konar ljósastýringu á umræddu hringtorgi en það hefur ekki gerst ennþá. Á gríðarlega fjölmennum opnum fundi sem Samfylkingin í Hafnarfirði hélt í síðasta mánuði með Vegagerðinni um samgöngumál sem tengjast bænum, var einmitt mesti þunginn í umræðu um vegabætur á þessum kafla Reykjanesbrautarinnar. Beðið er niðurstaðna úr valkostagreiningu Vegagerðarinnar vegna umrædds vegakafla en líklegt er að bæjarstjórn muni þurfa að taka afstöðu til tveggja kosta; annars vegar mislægra gatnamóta eða stokks/jarðgangna. Samkvæmt Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins eiga framkvæmdir þar að hefjast á allra næstu árum og því brýnt að valkostirnir liggi fyrir sem fyrst enda mikilvægt að hefja framkvæmdir því umferðarhnútarnir á þessum kafla kalla á tafarlausar framkvæmdir. Flóttamannavegur loksins kominn á dagskrá Á fyrrnefndum fundi okkar með Vegagerðinni var einnig talsvert rætt um stöðu Flóttamannavegarins svokallaða. Samfylkingin hefur á undanförnum árum haldið málefnum Flóttamannavegarins á lofti á vettvangi bæjarstjórnar og í kjölfar málflutnings okkar jafnaðarfólks í bæjarstjórn Hafnarfjarðar og með nýrri ríkisstjórn er Flóttamannavegurinn loksins kominn á dagskrá. Í framlagðri samgönguáætlun ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur er ekki lengur gert ráð fyrir því að Vegagerðin skili veginum til þeirra bæjarfélaga sem hann liggur í gegnum, Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs, heldur er nú þvert á móti stefnt að því að Vegagerðin verði veghaldari og muni því sinna rekstri og viðhaldi Flóttamannavegar. Ný samgönguáætlun gerir einnig ráð fyrir 50 milljón kr. framlagi í tengslum við hönnun á veginum á næstu tveimur árum. Þetta er ekki einungis mikilvægt vegna þess að vegurinn þjónar mikilvægu hlutverki til framtíðar sem ígildi ofanbyggðarvegar heldur einnig vegna þess að þegar framkvæmdir hefjast við Reykjanesbrautina við N1 hringtorgið þá mun Flóttamannavegurinn spila stóran þátt í því að taka við hluta umferðarinnar sem annars hefði farið um Reykjanesbrautina. Öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda við Reykjavíkurveg Enn annað mál sem fulltrúar Samfylkingarinnar hafa látið sig varða í samgöngumálum á kjörtímabilinu snýr að bættu umferðaröryggi gangandi og hjólandi vegfarenda yfir Reykjavíkurveg. Á næstu árum mun byggjast upp ný íbúðabyggð í hverfi sem nefnist Hraun vestur þar sem stefnt er að blandaðri byggð. Sú uppbygging kallar á aukna umferð á svæðinu og börn á grunnskólaaldri koma til með að þurfa að þvera veginn í meira mæli en nú er til þess að sækja skóla, íþróttir og tómstundir. Þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir undirgöngum á tveimur stöðum í skipulagi og aðrir kostir eins og mislægar gönguþveranir verið lagðir til, þá er ekki gert ráð fyrir þessum endurbótum í áformum Betri samgangna og Vegagerðarinnar í Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Engir fjármunir lagðir til hliðar í tengslum við væntanlegar framkvæmdir á þessu svæði vegna sérrýmis fyrir borgarlínu. Það er því ánægjulegt að bæjarstjórn hafi í síðasta mánuði samþykkt ítrekaða tillögu Samfylkingarinnar um að fela bæjarstjóra að fara í formlegar viðræður við þessa aðila um málið. Það var orðið löngu tímabært. Samfylkingin ætlar að láta verkin tala Af þessari upptalningu má sjá að það er af mörgu taka í samgöngumálum í Hafnarfirði. Tök meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks á þessum mikilvægu málum hafa því miður einkennst af deyfð og doða. Það er nauðsynlegt að breyting verði þar á sem fyrst því samgöngumál og úrbætur í þeim hvíla þungt á Hafnfirðingum og bæjarbúar kalla eftir lausnum og aðgerðum. Verkin sýna merkin! Á kjörtímabilinu, sem senn lýkur, hefur Samfylkingin í minnihluta lagt áherslu á úrbætur í samgöngumálum í málflutningi sínum og reynt að þoka þeim áfram. Það er ljóst að samgöngumálin verða veigamikil á komandi kjörtímabili og þarf að taka þau föstum tökum eftir aðgerðarleysi síðustu ára. Og það munum við gera í nýjum meirihluta undir forystu okkar jafnaðarmanna á næsta kjörtímabili hljótum við til þess brautargengi í kosningunum 16. maí nk. Við ætlum að láta verkin tala! Höfundur er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar og skipar 3. sæti á lista flokksins í Hafnarfirði í komandi sveitarstjórnarkosningum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hafnarfjörður Samfylkingin Árni Rúnar Þorvaldsson Mest lesið Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun Skoðun Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun