„Gerðum heiðarlega tilraun til að henda þessu frá okkur í restina“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 13. mars 2026 23:31 Jóhann Þór Ólafsson var sáttur með sigur liðsins í kvöld. Vísir/Anton Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, var að vonum ánægður með sigur gegn Stjörnunni eftir að lið hans tryggði sér deildarmeistaratitilinn í stórskemmtilegum leik í Grindavík. „
Mér líður mjög vel með góðan sigur, númer eitt, tvö og þrjú. Þetta var hörku leikur á milli tveggja mjög góðra liða, það var hart barist og mikið um mistök á báða bóga,“ sagði Jóhann eftir leikinn. „Mögulega ekki fallegur körfubolti lengi vel en góður sigur hjá mínum mönnum. Við vorum að spila allt í lagi í fyrri hálfleik en hittum illa, við fórum svo að setja niður skot og þá eitthvernveginn náðum við augnablikinu til okkar og héldum því í rauninni til loka.“ Stjarnan var með forystuna nánast allan leikinn eða þar til Grindavík náði á stórkostlegan hátt að jafna leikinn. Grindvíkingar komust svo yfir í fjórða leikhluta en liðið kastaði næstum því frá sér sigrinum á lokamínútunum. „Við gerðum heiðarlega tilraun til að henda þessu frá okkur í restina með því að flýta okkur en það tókst ekki sem betur fer.“ Aðspurður hvernig honum leið á lokamínútum leiksins þegar Stjörnunni tókst að minnka muninn niður í tvö stig sagði hann: „Þegar öllu er á botninn hvolft þá er þetta bara körfubolti. Miðað við verkefnin sem ég hef fengið í lífinu undanfarin misseri þá er maður bara ánægður að fá að labba héðan út. Ef við hefðum tapað þá hefði það bara verið næsti leikur, ég er ekkert stressaður hvað það varðar, alls ekki.“ Grindavík trónir þá á toppi deildarinnar og eru búnir að tryggja sér deildarmeistaratitilinn og heimavallarrétt út úrslitakeppnina. „Við erum búnir að tryggja efsta sætið en samt tveir leikir eftir. Við verðum að klára þetta á góðum spretti og koma á góðum takti inn í skemmtilegasta tíma ársins.“
Bónus-deild karla UMF Grindavík Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Fleiri fréttir Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira