Hvernig verjum við Ísland? Finnur Beck skrifar 13. mars 2026 08:03 Ísland, rétt eins og Evrópa öll, stendur á tímamótum í öryggis- og varnarmálum. Innrás Rússlands í Úkraínu, fjölþáttaógnir, óstöðugleiki í alþjóðakerfinu og vaxandi þörf fyrir örugga orku hafa skapað nýja stöðu þar sem ríki neyðast til að spyrja sig grundvallarspurningar: Hvernig verjum við okkur? Hefðbundnar varnir ríkja skipta augljóslega miklu máli en svörin felast þó ekki eingöngu í hernaðarlegri getu. Í stað þess að horfa aðeins til hernaðar er horft til öryggis í víðari skilningi þar sem borgaralegir innviðir, sérstaklega orku- og veituinnviðir, hafa fengið nýtt og aukið vægi. Breytt öryggisumhverfi í Evrópu Ísland hefur um áratuga skeið notið verndar í gegnum varnarsamning við Bandríkin og á grundvelli aðildar að Atlantshafsbandalaginu. Nú standa ríki frammi fyrir fjölþáttaógnum þar sem hefðbundnar varnir mega sín minna en áður. NATO hefur endurunnið grunnviðmið sín um áfallaþol og vernd borgaralegra innviða, þar á meðal orkuöryggi, fjarskipti og flutningskerfi. Sjö grunnviðmið NATO um áfallaþol eru einn lykillinn að stefnumótun og aðgerðum. Eins konar leiðarvísir, bæði fyrir íslensk stjórnvöld og atvinnulífið. Í nýjustu áherslum bandalagsins er lögð sérstök áhersla á að aðildarríki tryggi að borgaraleg kerfi standist truflun og vísvitandi raskanir, hvort sem um er að ræða náttúruhamfarir, viðskiptastríð, netárásir, tæknibilanir eða beinar aðgerðir fjandsamlegra ríkja. Óútskýrðum röskunum og skemmdarverkum á orku- og veituinnviði í nágrannalöndum okkar hefur fjölgað verulega á undanförnum árum. Í þessu samhengi er Ísland hluti af stærri mynd. Þótt við séum herlaus þjóð erum við virkir þátttakendur í Atlantshafsbandalaginu í almannavarna- og öryggissamstarfi, upplýsingamiðlun og vernd mikilvægra innviða. Nýlega heimsótti stjórn Samorku höfuðstöðvar NATO í Brussel til að auka skilning og samtal um orkuöryggi, nýjar ógnir og hvernig best sé að verja ómissandi innviði í breyttu öryggisumhverfi. Varnir gegn fjölþátta ógnum skipta þar lykilhlutverki. Áfallaþol er öryggismál Áfallaþol, hæfni til að standast reiðarslag og komast hratt aftur í fulla virkni, hefur orðið eitt mikilvægasta hugtak evrópskrar öryggisstefnu. Í nýju frumvarpi til heildarlaga um almannavarnir er eftirfarandi skilgreining á hugtakinu áfallaþol sett fram: „Geta kerfis eða samfélags til að forðast, draga úr eða yfirstíga hættuástand með fyrirbyggjandi aðgerðum og viðbrögðum.“ Orku- og veituinnviðir eru þar grundvallarþáttur. Þeir eru ómissandi, hvort sem um er að ræða rafmagn, hitaveitu, vatnsveitu eða fráveitu. Röskun á þessum kerfum getur lamað samfélagið á örfáum klukkustundum. Örugg en samkeppnishæf Mikilvægi viðnámsþróttar og áfallaþols er óumdeilt. Efling viðnámsþróttar og áfallaþols orku- og veituinnviða mun fela í sér umtalsverða fjárfestingu og strangari kröfur á ýmsum sviðum. Það er meginábyrgð stjórnvalda og þeirra sem reka ómissandi innviði að efling áfallaþols skili sér í traustari og öruggari rekstri ómissandi innviða og skili um leið auknu öryggi og bættu aðgengi almennings og fyrirtækja að rafmagni, vatni og veitum. Markvissar fjárfestingar í öryggi verði þannig liður í að efla nýsköpun, tækniþróun og aðgengi sem allt stuðlar að aukinni hagkvæmni og getu þessara kerfa, samfélaginu öllu til hagsbóta. Fjárfesting í orku- og veituinnviðum er þannig ekki eingöngu öryggismál. Hún er forsenda aukinnar framleiðni, hagvaxtar og sjálfbærni til framtíðar. Öflug, stöðug og vel rekin orkukerfi laða að fjárfestingu, skapa sterkara atvinnulíf og gera íslenskum fyrirtækjum kleift að vaxa á alþjóðamarkaði. Þannig verður vernd innviða ekki hindrun, heldur drifkraftur í áframhaldandi verðmætasköpun. Styrkur Íslands Ísland stendur styrkum fótum knúið innlendri grænni orku að 80% leyti. Sú staðreynd skýlir samfélaginu að miklu leyti fyrir þeim neikvæðu áhrifum sem önnur ríki verða nú fyrir þegar ófriður í Miðausturlöndum hefur leitt til gríðarlegrar hækkunar á olíuverði. Fram hefur komið að á fyrstu 10 dögum ófriðarins í Miðausturlöndum hafi hin alþjóðlega olíuverðshækkun haft neikvæð áhrif á ríki Evrópu sem nemur 432 milljörðum króna. Áhrifin eru margföld samanborið við Ísland. Áfallaþol er á okkar ábyrgð Áfallaþol og viðnámsþróttur verður meginþema á ársfundi Samorku þann 17. mars næstkomandi. Þar verður fjallað um stöðu mála í Evrópu, verkefni sem bíða okkar hér á landi og hvernig tryggja megi að innviðir Íslands standist nýjar áskoranir. Íslensk stjórnvöld hafa þegar stigið mikilvæg skref í þessu tilliti og munu m.a. ráðherrar umhverfis, orku- og loftslags, utanríkis- og dómsmála taka þátt í fundinum og ræða þessi brýnu viðfangsefni. Efla þarf samvinnu stjórnvalda og atvinnulífs, skýra ábyrgð, umboð og skyldur fyrirtækja, fjárfesta í nýsköpun og tryggja að lagaumgjörðin mæti nýjum áskorunum og breyttum heimi. Því aðeins getum við treyst því að við vera tilbúin þegar á reynir. Við lifum á tímum þar sem þjóðaröryggi ræðst ekki aðeins af hernaðarlegum vörnum heldur getu samfélags til að standa af sér áföll í innra og ytra umhverfi. Þar skipta orku- og veituinnviðir öllu máli. Lykilþáttur í svari við spurningunni um hvernig við verjum Ísland er því þetta : Með því að byggja upp viðnámsþrótt, verja innviði, afla grænnar orku og fjárfesta af festu í orkuöflun og grunnkerfum landsins án þess að ógna samkeppnishæfni. Það gerir enginn annar en við sjálf. Höfundur er framkvæmdastjóri Samorku. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Finnur Beck Öryggis- og varnarmál Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar