Hver er þessi Valverde sem allir eru að missa sig yfir? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. mars 2026 14:46 Federico Valverde skoraði þrennu fyrir Real Madrid í fyrri hálfleik og fagnar hér einu markanna. Getty/Manuel Serrano Arce Federico Valverde sýndi heimsklassa frammistöðu á stærsta sviðinu í gærkvöldi þegar hann skoraði öll þrjú mörk Real Madrid í 3-0 sigri á Manchester City. En hver er þessi nýjasta hetja fótboltans?
Valverde er frá Úrúgvæ og hóf atvinnumannaferil sinn árið 2015 hjá Peñarol þar sem hann vann úrúgvæsku úrvalsdeildina á sínu fyrsta tímabili. Hann gekk til liðs við Real Madrid árið 2016 og lék með varaliði félagsins áður en hann lék sinn fyrsta leik með aðalliðinu árið eftir. Miðjumaðurinn lék síðan sinn fyrsta leik í spænsku deildinni á meðan hann var á láni hjá Deportivo de La Coruña tímabilið 2016-2017, þá 19 ára gamall, og spilaði í 26 mínútur sem varamaður gegn Real Sociedad. Federico Valverde earned a perfect 10/10 rating from French publication L'Équipe for his performance against Man City. He's only the 21st player to achieve the honour 🔟 pic.twitter.com/lQqgd96tot— Football on TNT Sports (@footballontnt) March 12, 2026 Valverde lék einnig sinn fyrsta landsleik fyrir Úrúgvæ það ár og hefur síðan þá keppt fyrir hönd þjóðar sinnar í þremur Suður-Ameríkukeppnum. Varð aðalmaður í Real-liðinu árið 2018 Þegar hann sneri aftur til Madríd árið 2018 varð hann lykilmaður í aðalliðinu. Síðan þá hefur hann leikið meira en þrjú hundruð leiki fyrir félagið og hjálpað því að vinna þrjá spænska meistaratitla, tvo heimsmeistaratitla félagsliða, tvo Meistaradeildartitla, tvo sigra í ofurbikar UEFA og svo spænska konungsbikarinn einu sinni. Á tímabilinu 2022–23 skoraði hann tólf mörk í öllum keppnum og stóð þannig undir spá Carlo Ancelotti um að hann myndi skora meira en 10 mörk það tímabil. Með brotthvarfi Luka Modrić og Lucas Vázquez á tímabilinu 2025–26 var Valverde gerður að varafyrirliða liðsins. Síðastliðinn föstudag, í deildarleik Real gegn Celta Vigo, þegar staðan var 1-1, skoraði hann sigurmark á fjórðu mínútu í uppbótartíma og hélt þar með titilvonum þeirra á lífi. Hafði ekki skorað í 26 Meistaradeildarleikjum Fyrir heimsókn Man City hafði þessi 27 ára leikmaður ekki skorað í síðustu 26 Meistaradeildarleikjum sínum og aldrei skorað meira en eitt mark í leik í keppninni. "He's probably one of the most underappreciated Real Madrid players in the history of the club."Nigel Reo-Coker is in awe of Federico Valverde after his "world class performance" for Real Madrid vs. Manchester City 👏 pic.twitter.com/pyAo77CmQm— CBS Sports Golazo ⚽️ (@CBSSportsGolazo) March 11, 2026 Af þeim 39 leikjum sem hann hefur spilað á þessu tímabili hefur hann byrjað 37 þeirra og hefur fjölhæfni hans vakið hrifningu þar sem hann leikur bæði á varnar- og miðjustöðum. Hann er með sex mörk og tólf stoðsendingar í þessum 39 leikjum. Hann hefur komið að sjö mörkum í Meistaradeildinni en bara í þremur leikjum. Þetta voru einu mörkin hans en hann átti einnig tvær stoðsendingar í sigri á Mónakó og tvær stoðsendingar í sigri á Benfica þegar Real Madrid tryggði sér sæti í sextán liða úrslitum.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Spænski boltinn Real Madrid CF Mest lesið Freyr fagnaði eins og óður maður í leikslok Fótbolti Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Enski boltinn „Ísland breytti lífi mínu“ Íslenski boltinn Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Enski boltinn Flaug á hausinn á brautinni í gær en vann EM-gull í kvöld Sport Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Enski boltinn „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Körfubolti Dregur stuðning við Infantino til baka og krefst rannsóknar Fótbolti Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Enski boltinn Draumur að vinna með José Mourinho Fótbolti Fleiri fréttir Hringekja tapreksturs í fótboltanum „Ísland breytti lífi mínu“ Draumur að vinna með José Mourinho Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Neymar vill að þeir neikvæðu haldi sig heima Albert fljótur að skora í bikarsigri Fiorentina Víti í blálokin kom í veg fyrir að mark Andra væri sigurmark „Þegar það rignir þá hellirignir“ „Komin mjög góð holning á liðið“ Freyr fagnaði eins og óður maður í leikslok Nökkvi Þeyr með mark og stoðsendingu í hollensku deildinni Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 0-3 | Slitu sig frá fallsvæðinu og juku eymd Víkings Dregur stuðning við Infantino til baka og krefst rannsóknar Dramatík í lokin þegar Freyr vann norsku meistarana Júlíus skoraði þegar Elfsborg hoppaði upp í þriðja sætið Fyrsti sigurinn í áttatíu daga í fyrsta leik Fanneyjar Ingu „Dásamleg manneskja með risastórt hjarta“ Sancho neitar liðum á Englandi og vill fara erlendis Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Ætla ekki að bjóða í Enzo Fernández í dag Tryllt stemning og töfrandi taktar á N1 mótinu á Akureyri Sjáðu geggjað mark Gylfa í sigri Víkings Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Stefnir langt í Evrópu og á Íslandsmeistaratitil Fær hjartaáfall við að horfa á varnarleik KR Eyjaálfa, fyrir utan Nýja-Sjáland, styður Infantino Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Sjá meira