Hvað gerist ef kosið verður að halda áfram viðræðum? Hjörvar Sigurðsson skrifar 10. mars 2026 09:30 Mikil umræða hefur verið uppi á síðkastið um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Þeir sem sannfærðir eru um ágæti Evrópusambandsaðildar benda á meinta kosti hennar og þeir sem sannfærðir eru um annmarka Evrópusambandsaðildar benda á meinta galla hennar. Þeir sem enga sterka skoðun hafa kvarta undan upplýsingaóreiðu og áróðri, oft á sama tíma og þeir halda sjálfir fram ósannindum sem þeir í einlægni trúa. Einna helst hef ég orðið var við gífurlega fjölbreyttan skilning á því um hvað kosið verður í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst og hvað fylgir í kjölfarið velji kjósendur að „halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu.“ Algengasti skilningur þeirra sem ég sé tala fyrir slíku atkvæði er eitthvað á eftirfarandi vegu: Almenningur kýs að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Ríkisstjórnin sendir í kjölfarið nokkra fulltrúa hennar til Brussel. Í nokkra mánuði verja þessir fulltrúar tíma sínum í samræður við fulltrúa Evrópusambandsins. Hlusta þeir á fulltrúa Evrópusambandsins ræða það hvað Evrópusambandið krefst af Íslandi á sama tíma og þeir sjálfir tala máli Íslands, minna á sérstöðu þess í ýmsum málefnum og leggja varnagla við ýmsar kröfur Evrópusambandsins. Fulltrúar Íslands, í samráði við Þorgerði Katrín og, eftir atvikum, Kristrúnu, taka svo endurtekið stöðuna, meta hvar staða Íslands er sterk, hvar hún er veikari og hvar best sé að einbeita samningsafli sínu til þess að ná fram eins góðum samningi og kostur er frá sjónarhorni Íslendinga. Einhvers staðar verður gefið eftir en annars staðar verður knúið fram málamiðlanir af hálfu Evrópusambandsins. Á meðan þessu stendur starfar Alþingi áfram, ríkisstjórnin heldur áfram að finna frumlegar leiðir til að auka skattlagningu á almenning án þess að þurfa að viðurkenna aukna skattlagningu á almenning og stjórnarandstaðan hertekur pontu Alþingis til að gagnrýna fyrirhugaða lögfestingu reglugerðar Evrópusambandsins um takmörkun leyfilegs hávaða sláttuvéla – með öðrum orðum: Allt gengur áfram sinn vanagang. Enn er íslensk löggjöf og íslenskar stofnanir óháðar reglugerð Evrópusambandsins. Þegar samningaviðræðum er lokið kynnir ríkisstjórnin samninginn fyrir almenningi sem svo kýs um hann. Eini kostnaðurinn við þessa vegferð er laun þessara fáu fulltrúa Íslands. Þessi skilningur fólks er auðvitað mjög skiljanlegur, en orðalag talsmanna Evrópusambandsaðildar, fulltrúa ríkisstjórnarinnar og jafnvel valmöguleika atkvæðagreiðslunnar sjálfrar hefur einmitt verið á þennan vegu. Ítrekað er talað um að okkur standi til boða að sækja samning. Að kíkja í pakkann. Að þetta snúist bara um að skoða. Engin skuldbinding. Engar aðgerðir. Formleg gögn segja aðra sögu. Lesi maður tillögu Þorgerðar til þingsályktunar stendur þar skýrt hver næstu skref eftir þjóðaratkvæðagreiðslu verða.[1] Í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst býðst almenningi að velja á milli tveggja valmöguleika: - „Já, halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu.“ - „Nei, ekki halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu.“ Ef seinni valmöguleikinn sigrar verður væntanlega ekkert frekar gert. Gerist það hins vegar að fyrri valmöguleikinn sigrar „færu formlegar aðildarviðræður fram“ í kjölfarið. Hvað eru formlegar aðildarviðræður við Evrópusambandið? Hvað felst í þeim? Evrópusambandið er mjög skýrt í þeim efnum: „During membership negotiations, the candidate country prepares to implement EU laws and standards, also known as the acquis.“ [2] Þ.e. „Í aðildarviðræðum undirbýr umsóknarríkið innleiðingu laga og staðla Evrópusambandsins, einnig þekkt sem acquis.“ „The candidate moves on to formal membership negotiations, a process that involves the adoption of established EU law, preparations to be in a position to properly apply and enforce it and implementation of judicial, administrative, economic and other reforms necessary for the country to meet the conditions for joining, known as accession criteria.“ [3] Þ.e. „Umsóknarríkið fer þá í formlegar aðildarviðræður, ferli sem felur í sér upptöku gildandi laga Evrópusambandsins, undirbúning til að geta beitt þeim og framfylgt þeim á réttan hátt, og innleiðingu dómsmála-, stjórnsýslu-, efnahags- og annarra umbóta sem nauðsynlegar eru til að landið uppfylli skilyrðin fyrir aðild, svokölluð aðildarskilyrði.“ Þetta þýðir að þjóðaratkvæðagreiðslan snýst ekki um að „kíkja í pakkann.“ Hún snýst ekki um að eiga spjall við Evrópusambandið um það hvernig einhver samningur muni líta út – samningur sem verður ekki virkur fyrr en íslenskur almenningur hefur skrifað undir hann í formi seinni þjóðaratkvæðagreiðslu. Verði niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar sú að aðildarviðræðum verði haldið áfram tekur við tímabil innleiðingar á reglugerð Evrópusambandsins. Íslensk lög verða samræmd lögum Evrópusambandsins. Íslenskar stofnanir verða aðlagaðar að stofnunum Evrópusambandsins. Þetta liggur fyrir í opinberum gögnum, bæði ríkisstjórnarinnar sem og Evrópusambandsins. Höfundur er tölvunarfræðingur. [1] https://www.althingi.is/altext/157/s/0875.html [2] https://european-union.europa.eu/principles-countries-history/eu-enlargement_en [3] https://enlargement.ec.europa.eu/enlargement-policy/steps-towards-joining_en Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Evrópusambandið Mest lesið Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar