Faldi sig inni í fataskáp þegar lögregluna bar að garði Freyja Þórisdóttir skrifar 8. mars 2026 19:15 Allir fangaklefar á lögreglustöðinni á Hverfisgötu voru fullir í morgun. Vísir/Vilhelm Ökumaður keyrði utan í bíl og flúði svo heim til sín og beint inn í fataskáp. Annar maður tók til þess ráðs að kasta slökkvitæki, sem hann hafði þegar tæmt yfir lögreglumenn, niður stiga í átt að lögreglunni.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þá hafði lögregla farið af stað vegna óljósrar tilkynningar sem þeim barst um að í íbúð í Reykjavík væru læti og einnig mætti greina þaðan öskur. Þegar á staðinn var komið voru munir brotnir í bakgarði hússins en einn íbúi stóð á svölunum og öskraði. Lögreglumenn gerðu tilraun til að nálgast hann í gegnum sameign hússins en þá tók maðurinn sig til og greip slökkvitæki sem var honum innan handar. Þótti óútreiknanlegur Hann sprautaði úr því að lögreglumönnunum og henti því svo niður stigann á móti þeim er þeir ætluðu að komast að íbúðinni af stigaganginum. Þegar lögreglunni tókst að endingu að komast inn í íbúð mannsins gaf hann færi á samtali en í tilkynningunni kemur fram að hann hafi þótt óútreiknanlegur. Segir einnig í tilkynningunni að sjá hafi mátt hnífaför á herbergisvegg mannsins ásamt augljósum ummerkjum um áfengis- og fíkniefnaneyslu. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa uns hægt verður að taka framburð af honum. Hafa augun opin og varast vasaþjófa Lögreglan tilkynnti einnig um hrinu vasaþjófnaðar í miðborg Reykjavíkur sem hefur staðið yfir síðustu daga og biðlar til fólks að hafa varann á. Vasaþjófarnir virðast helst halda sig í kringum Hallgrímskirkju en nokkur dæmi eru um þjófnað á Skólavörðustíg og á Laugavegi. Ökumaður ók á bifreið en stöðvaði ekki, sá í þeirri bifreið tilkynnti atvikið og við tók eftirför. Tilkynnandinn elti ökumanninn heim til sín en lögregla fann tvo aðila í íbúðinni. Þá hafði annar þeirra falið sig inni í fataskáp en mennirnir voru báðir ölvaðir og vildi hvorugur þeirra kannast við að hafa ekið bifreiðinni. Þeir voru handteknir og vistaðir í fangaklefa. Eftirlýstur aðili var stöðvaður af lögreglu við matvöruverslun í Kópavogi en hann var með útdraganlega kylfu meðferðis. Í tilkynningunni er greint frá því að hann hafi verið ölvaður en að hann hafi verið handtekinn og vistaður í fangaklefa. Veistu meira um málið eða hefur fréttnæma ábendingu? Sendu okkur fréttaskot hér.
Lögreglumál Fíkniefnabrot Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Innlent Fleiri fréttir Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Sjá meira