„Maður lifir og deyr með því“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 6. mars 2026 22:04 Óskar Þór Þorsteinsson, þjálfari ÍA. Vísir/Jón Gautur Óskar Þór Þorsteinsson, þjálfari ÍA í Bónus-deild karla í körfubolta, segir að tapið gegn ÍR í kvöld svíði. „
Já, auðvitað gerir það það. Þetta var bara ógeðslega mikilvægur leikur fyrir það sem er framundan og það er bara vont að tapa,“ sagði Óskar í leikslok. ÍR-ingar leiddu stóran hluta leiksins, en misstu ÍR-inga fram úr sér á lokasprettinum. „Við auðvitað missum Ilija (Dokovic) snemma í leiknum og hann spilar bara lítið. Þetta er svona þegar nú þegar þröng rótering verður enn þrengri. Ég veit ekki hvort þetta hafi verið þreyta eða eitthvað svoleiðis, en þeir fengu bara betri skot en við, trekk í trekk síðustu mínúturnar. Mér fannst það kannski skera á milli í lokin.“ Í liði Skagamanna var Darryl Morsell aðal driffjöðurin og skoraði 35 stig fyrir liðið. ÍR-ingar áttu hins vegar ás upp í erminni í Jacob Falko, sem tók yfir undir lokin og var að öllum öðrum ólöstuðum besti maður vallarins, þrátt fyrir að hafa ekki skilað jafn mörgum stigum og Morsell. „Ég hef ekkert upp á Darryl að klaga. Þetta var bara frábær frammistaða hjá honum. Auðvitað gerir hann þarna mistök í lokin þar sem hann missir boltann og klikkar á einhverjum skotum, en það þarf bara að treysta bestu leikmönnunum sínum til að hafa boltann í lokin og maður lifir og deyr með því.“ Eftir tapið eru Skagamenn enn á botni Bónus-deildarinnar og þurfa heldur betur að snúa gengi sínu við til að halda sæti sínu í deildinni. „Við ætlum bara í þessa þrjá leiki til þess að vinna þá, eins og við höfum gert fyrir hvern einasta leik. Ég hef trú á þessu liði sem við erum búin að setja saman. Það er búið að vera mikið bras á okkur í vetur að finna þennan hóp, en þessi hópur hefur sýnt það í síðustu tveimur leikjum að þetta er lið sem getur keppti við hvaða lið sem er. Tindastóll, Stjarnan og Ármann eftir. Við bara mætum í þessa leiki og sjáum hvað við getum gert,“ sagði Óskar að lokum.
Bónus-deild karla ÍR ÍA Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Fótbolti Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Fleiri fréttir Sara Björk komin heim Fer úr Formúlu 1 yfir í NASCAR Borga tólf milljarða í skaðabætur vegna brota læknis skólans Sara Björk snýr heim í Hauka Komin sjö mánuði á leið en spilar samt á Opna bandaríska FIFA tók U-beygju og bannar vatnsflöskur „Eins og fjölskylda í sólarlandaferð“ Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Þetta voru ótrúlegir dagar, en líka alveg magnaðir dagar“ „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val HM-minning: Leið yfir móður hans þegar hún fékk fréttirnar Jelena kölluð inn í landsliðið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Er búinn að glíma við þunglyndi Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City „Stúkan er of þögul“ Ítali í úrslitaleik Opna franska mótsins ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Sjá meira