Kíkjum í pakkann! Dóra Magnúsdóttir skrifar 7. mars 2026 08:30 Það er spennandi að kíkja í pakkann. Flest munum við þó eftir að það hafi verið harðbannað! Og líklega munum við flest eftir að hafa séð pakka undir trénu á Þorláksmessu og e.t.v. bankað í hann, lyft honum upp, jafnvel hrist hann og velt vöngum. Við sem eigum börn og/eða barnabörn sjáum þau gera það sama, og spennan er mikil. En það er bannað í kíkja í pakkann á Þorláksmessu. En með því endar samlíkingin. Því þegar um stærri pakka er að ræða, segjum til dæmis húsnæðiskaup, þá kíkjum við sko rækilega í pakkann áður en við tökum ákvarðanir. Þegar við erum búin að hnita okkur niður á þá ákvörðun að húsnæðiskaup séu möguleg veltum við staðsetningu fyrir okkur, greiðslugetu, lánamálum, hverfinu, samgöngum, skólum og öðrum innviðum, aðgengi að grænum svæðum. Við mætum svo á opið hús, skoðum vistarverur og kíkjum í veggfasta skápa. Hvernig skyldi dótið mitt, húsgögnin mín, lífið mitt passa inn í þessa íbúð, þetta hús. Hvernig verður framtíð mín og minna innan þessa veggja? Mun mér og mínum farnast vel hér eða ætti ég að gera eitthvað allt annað? Ætti ég að halda áfram að leigja og sleppa því að taka þessa stóru ákvörðun?Þetta ferli heitir að kíkja í pakkann og þarf að gera þegar fólk tekur ákvarðanir um stóra og mikilvæga hluti. Það þarf að hafa allar staðreyndir upp á borðum og byggja ákvarðanir á þeim. Ekki vangaveltum. Um þetta snúast kosningarnar sem boðað hefur verið til 29. ágúst. Þær snúast um hvort Íslendingar vilji taka það skref að fara í aðildarviðræður við Evrópusambandið og vita fyrir víst hvað framtíð innan ESB myndi færa okkur. Þetta verða kosningar um kosningar. Kosningar ganga ekki út á: - Hvort að við ætlum að ganga í Evrópusambandið. Það er skref númer tvö ef þjóðin segir já í fyrri kosningunni. - Aðlögun Íslands að ESB. Haldi einhver því fram þá er það rangt. - Þetta eru ekki kosningar til að fá úr því skorið hvort Ísland fái undanþágur eða sérlausnir. Úr því er skorið við samningaborðið. - Hvort sú fullvalda þjóð sem Ísland er ætli að afsala fullveldi sínu – enda dytti engum heilvita manna í hug að samþykkja það. ESB er bandalag 27 fullvalda þjóða. - Umræður um hvort við ætlum að afsala okkur auðlindum landsins, það með talið fiskinum í sjónum. Enda yrði þess konar samningur aldrei samþykktur og engin ástæða til að halda að sambandið muni krefjast þess vitandi að þannig samningi yrði einfaldlega hafnað. Kosningarnar í lok ágúst ganga einfaldlega út á að skoða hvað ESB býður Íslendingum upp á, og hvort líkur séu á að samstarfið sé gott og gagnlegt. Við getum einfaldlega ekki vitað það nema fá að fá staðreyndirnar á hreint. Þess vegna segi ég já í þegar kosið verður 29. ágúst nk., ég vil endilega kíkja í pakkann. Höfundur er ritari Evrópuhreyfingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dóra Magnúsdóttir Evrópusambandið Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar