Handleggsbrotinn eftir átök við öldungardeildarþingmann Freyja Þórisdóttir skrifar 5. mars 2026 19:25 Fyrrverandi landgönguliðinn Brian McGinnis var fjarlægður úr yfirheyrslusal á Capitol-hæð í Washingon DC. Getty Heyra mátti framhandlegg fyrrverandi landgönguliðans Brian McGinnis brotna í átökum sem áttu sér stað í Washington í dag. Myndskeið af atvikinu hefur verið í mikilli dreifingu síðastliðnar klukkustundir.
Brian McGinnis á yfir höfði sér þrjár kærur eftir að hafa truflað yfirheyrslu í hermálanefnd öldungadeildarinnar á Capitol-hæð í Wasington DC og hrópað: „Ísrael er ástæðan fyrir þessu stríði, Bandaríkin vilja ekki berjast fyrir Ísrael.“ Þessu greinir breski fréttamiðillinn Reuters frá í umfjöllun sem var birt fyrr í dag. Þar kemur fram að átök hafi brotist út þegar þinglögreglumenn á staðnum reyndu að fjarlægja McGinnis úr salnum. Í myndskeiði sem hefur farið eins og eldur um sinu í dag má sjá lögreglumennina reyna að ýta McGinnis, sem var klæddur í hermannabúning, út um dyr salarins. Hann kallar áfram: „Enginn vill berjast fyrir Ísrael,“ en í leiðinni reynir hann að skorða sig af í dyragættinni með þeim afleiðingum að annar handleggur hans klemmist. Fólk í salnum virðist hafa tekið eftir því nánast um leið en í myndskeiðinu heyrist greinilega í mörgum reyna að vekja athygli á handleggnum. Örskammri stundu seinna má heyra brak og einnig er auðvelt að sjá hvernig framhandleggur McGinnis brotnar. Tim Sheehy, öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins, var í salnum þegar átökin áttu sér stað og það sem meira er, hann lagði sitt af mörkum við að ýta McGinnis fram á gang. „Lögreglan á þinghússvæðinu var að reyna að fjarlægja óstöðugan mótmælanda úr yfirheyrslu hermálanefndar. Hann veitti mótspyrnu. Ég ákvað að hjálpa til og draga úr spennunni. Þessi maður kom til þinghússins í leit að árekstrum og fékk þá. Ég vona að hann fái þá hjálp sem hann þarf án þess að valda frekara ofbeldi,“ skrifaði Sheehy í færslu á X. Öldungardeildarþingmaðurinn Tim Sheehy tók þátt í að koma McGinnis út úr salnum en hann hefur tjáði sig um málið í færslu á X.Getty Þinglögreglan á Capitol-hæð hefur einnig sent frá sér tilkynningu vegna málsins en þar kemur fram að bæði lögreglumennirnir og McGinnis hafi hlotið viðeigandi meðferð. „Þrír lögregluþjónar hlutu meðferð vegna áverka og hinn grunaði, sem festi handlegg sinn í hurð til að veita lögregluþjónum okkar mótspyrnu og þvinga sér leið aftur inn í yfirheyrsluherbergið, hlaut einnig meðferð,“ sagði þinglögreglan. Í lok myndskeiðsins má heyra McGinnis biðla til annarra landgönguliða um að neita þátttöku í stríðinu. „Stattu upp sem landgönguliði, stattu upp fyrir Bandaríkjunum, ég bið þig,“ segir McGinn hástöfum á meðan hann er dreginn út ganginn. „Frelsið Palestínu, allt frá sölum Montezuma til strandar Trípólí.“
Bandaríkin Mest lesið Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Innlent Mikill meirihluti féll fyrir íslenskri gervigreindarmynd Innlent Noem rekin Erlent Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Innlent Hola í vegi tók fjóra bíla úr umferð á vanræktum vegkafla Innlent Blöskrar viðbrögðin eftir tilnefningu fyrir mistök Innlent Þór styrkti Kvennaathvarfið og fær að halda pútternum Innlent Jón Baldvin segir söguskýringu Dags af og frá: Samdi við Davíð um EES Innlent Komin með ógeð af því að hlusta á „hverja silkihúfuna á fætur annarri“ Innlent „Þessi umræða er rosalega niðurlægjandi“ Innlent Fleiri fréttir Handleggsbrotinn eftir átök við öldungardeildarþingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Íhugar að reka Noem eftir deilur við þingmenn Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Sjá meira