Sport

Sturla hefur átt erfitt með að borða og sofa

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þökk sé viðtalinu fékk Sturla Holm Lægreid miklu meiri athygli heldur en þeir sem unnu hans greinar á Vetrarólympíuleikunum.
Þökk sé viðtalinu fékk Sturla Holm Lægreid miklu meiri athygli heldur en þeir sem unnu hans greinar á Vetrarólympíuleikunum. Getty/Hendrik Schmidt

Norski skíðaskotfimimaðurinn Sturla Holm Lægreid varð heimsfrægur á Vetrarólympíuleikunum þegar hann játaði framhjáhald fyrir allri heimsbyggðinni. Hann hefur nú rætt upplifun sína af öllu því sem gekk á í framhaldinu af viðtalinu fræga og játaði það að í kjölfarið hafi hann fundið fyrir auknu álagi á líkamanum.

Sturla var með tárin í augunum þegar hann sagði frá framhjáhaldinu á Ólympíuleikunum í Mílan og Cortina.

Líka líkamleg viðbrögð

„Ég held að allir sem hafa upplifað eitthvað svipað geti sett sig í þessi spor. Það verða líka líkamleg viðbrögð. Svona er þetta bara, þetta er hluti af pakkanum,“ sagði Sturla Holm Lægreid við norska ríkisútvarpið í nýju viðtali.

Íþróttir á hæsta stigi snúast um að ná forskoti en með stórum breytingum í einkalífinu getur það haft áhrif á frammistöðuna.

Hjá Lægreid rataði framhjáhaldið og ástarsorgin í beina útsendingu í sjónvarpi og þaðan út til alls heimsins.

„Það er ein sem horfir kannski ekki á í dag. Fyrir hálfu ári kynntist ég ástinni í lífi mínu. Fallegustu, yndislegustu manneskju í heimi og fyrir þremur mánuðum gerði ég stærstu mistök lífs míns og hélt fram hjá henni,“ sagði Lægreid eftir að hann vann bronsverðlaun á Ólympíuleikunum í 20 kílómetra skíðaskotfimi.

Nú segir Lægreid að hann hafi varla getað borðað á meðan á mótinu stóð og að hann hafi grennst.

Er orðinn grennri

„Það var erfitt að borða og sofa, svo ég er orðinn grennri en ég ætti að vera. Það hefur verið gott að vera heima í Bærum og byggja mig aftur upp,“ sagði Sturla við NRK.

Eftir Ólympíuleikana taka við þrjár vikur af keppni hjá skíðaskyttunum. Fyrst á dagskrá er heimsbikarmót í Kontiolahti í Finnlandi. Aðspurður hvernig hann telji að þetta muni hafa áhrif á hann í Finnlandi svarar Lægreid:

„Ég vona að við fáum nóg af góðum mat hér, svo ég geti borðað vel og byggt mig upp aftur, en ég er spenntur fyrir forminu. Það kemur aftur þriggja vikna skorpa og ég nokkrum kílóum léttari eftir Ólympíuleikana,“ bætir hann við.

Vann fjögur verðlaun eftir viðtalið

Bronsið í 20 km einstaklingskeppni voru fyrstu verðlaun Lægreids í því sem varð að mikilli verðlaunasöfnun á Ólympíuleikunum. Hinn 29 ára gamli íþróttamaður vann verðlaun í öllum fjórum greinum sem hann keppti í, nokkur þeirra eftir að hann opnaði sig um framhjáhaldið í beinni útsendingu. Sturla á einnig gull úr boðgöngu frá Ólympíuleikunum í Peking 2022.

„Það hefur gengið furðu vel. Ég hef verið fljótur á skíðunum. Þetta sýnir bara að hlutirnir þurfa ekki að vera fullkomnir en maður verður að vera með hugann við verkefnið. Maður verður að gera sitt besta þegar á reynir og þá þarf maður ekki að hafa fullkominn undirbúning, borða fullkomlega eða sofa fullkomlega. Það er það sem maður gerir á augnablikinu sem er kannski mikilvægast hér og nú,“ sagði Sturla.

Leitaði sér aðstoðar

Fyrrverandi kærasti Sturlu tjáði sig nafnlaust við Verdens Gang daginn eftir viðtalið. Hún sagði að það hefði verið sárt að ganga í gegnum þetta. Sturla baðst afsökunar í kjölfarið og sagðist vona að henni liði vel.

Sturla segir sjálfur í samtali við NRK að hann hafi nýtt sér faglega sálfræðiaðstoð.

„Ég ræddi svolítið við sálfræðing og þess háttar, en ég get líka mælt með því ef maður gengur í gegnum eitthvað í lífinu. Að hafa einhvern til að tala við. Hvort sem það eru vinir, fjölskylda eða sálfræðingur. Allt er betra en ekkert,“ sagði Sturla.


Tengdar fréttir

Notuðu Sturlu í leyfisleysi til að auglýsa pararáðgjöf

Norsku íþróttamennirnir Sturla Holm Lægreid og Johannes Hösflot Klæbo eru tveir af þekktustu íþróttamönnum Vetrarólympíuleikanna í Mílano og Cortina, Klæbo fyrir fern gullverðlaun sín og Sturla fyrir ótrúlegt sjónvarpsviðtal sitt þar sem hann viðurkenndi framhjáhald í beinni sjónvarpsútsendingu.

„Ég er ekki kærastan“

Bandaríska skíðaskotfimikonan Chloe Levins vildi koma einni staðreynd á hreint eftir að samfélagsmiðlar og fleiri fóru að halda því fram að hún væri kærastan sem norski skíðaskotfimimaðurinn Sturla Holm Lægreid hélt fram hjá.

Sturla bað allt liðið afsökunar í kvöldverði

Umdeildasti maður Ólympíuleikanna í Mílanó og Cortina, Sturla Holm Lægreid, til máls í kvöldverði með norska skíðaskotfimilandsliðinu í gærkvöldi og baðst afsökunar á viðtalinu fræga þar sem hann játaði framhjáhald í beinni útsendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×